Fálkinn - 11.02.1933, Qupperneq 1
16 siðnr 40 anra
SKAUTAHLAUP.
/ vetur hafa verið miklar frosthörkur víða um Mið-Evrópu svo að þar hefir verið venju fremur mikið um skautahlaup. Ein-
mitt áiþeim tíma sem sunnanáttin var mest hjer voru frosthörkurnar svo miklar I. d. í Póllandi að fólk fraus í hel þar og
varð úti í byljum, en samgöngúr teptust dögum saman. Seint i janúar fóru fram skautahlaup i Davos og gerðust þar þau
tíðindi, að norskur maður, tiltölulega lítt þektur, Egnestangen að nafni setii þar tvö ný heimsmet, 500 metra á b2,5 sekúnd-
um og 3000 metra á h mín. 59,2 sek. og varð fyrstur á 1500 metra skéiðinu, en hinn finski skautakappi Thunberg fjekk ann-
að sætið í 500 og 1000 metra hlaupinu. Eitt heimsmetið enn setti Hollendingurinn Heiden í 5000 metra hlaupi á 8 mín. 19,2
sekúndum. Hefir þetta því orðið frægt skautamót enda mun isinn og aðstæður allar hafa verið sjerstaklega hagstætt. Mynd-
in hjer að ofan sýnir fólk vera að skemta sjer á skautum á Puglsangsöen skamt frá Kaupmannahöfn.