Fálkinn - 27.06.1936, Blaðsíða 1
Konungshöllin í Stokkhólmi.
Af öllum byggingum Stokkhólms vekuv konungshöllin einna mesta athygli, bæði vegna stærðarinnar og hins þróttmikla stíls,
sem hún er gerð í. Þessi mesta konungshöll norðurlanda stendur á norðanverðum Stadsholmen út að Norrström og aðalleiðin
að henni er um Norrbro, sem liggur á litlum hólma í sundinu, cn á þeim hólma stendur ríkisþinghúsið, sem bygt var á ár-
unum 1898—1905. En smíði konungshallarinnar var byrjuð árið 1790, eftir teikningum er gert hafði hinn frægi bygginga-
meistari Nicolai Tessin yngri, en ekki komst höllin upp fyrr en 6“4 árum síðar, en í stjórnartíð sinni Ijet Oscar konungur II.
endurbæta höllina afar mikið á sinn eigin kostnað. I höllinni er bústaður bæði konungsins og rikiserfingjans og einnig eru
þar salir til ríkisráðsfunda o. fl: Frægasti salur hallarinnar er „Vita havet“, sem er afar íburðarmikill. — Myndin er tekin
að kvöldlagi og speglast götuljósin í Norrström.