Fálkinn


Fálkinn - 27.06.1936, Blaðsíða 13

Fálkinn - 27.06.1936, Blaðsíða 13
F Á L K I N N 13 GEORGES SIMENON: Líkið á krossgötunum. í stiganum marraði i sömu þrepunum. Carl Andersen lá í herbergi sínu stvnjandi áður en Maigret kom inn, en hann þagnaði um leið og hanli sá hann. Honum tókst að vinna bug á sársaukanum, en óttann gat hánn ekki dulið. „Hvar er Elsa?“ spurði hann. „í herbergi sínu“. „Það er golt“. Honum virtist verða rórra. Hann stundi við, greip hendinni um öxlina og lileypi brúnum. „Ekki held jeg að jeg deyji af þessu". Það, sem óliugnanlegast var við manninn, var gleraugað. Það stakk svo mjög í stúf við yfirbragð andlitsins. „Jeg vildi helst, að hún sæi mig ekki i þessu ástandi...Haldið þjer að hægt sje að koma öxlinni í samt lag aftur? Eruð þjer búinn að gera boð eftir skurðlækni?“ Það var líkt um hann og frú Michonnet, að kvíði hans var svo undur barnalegur. Það var þrábeiðni í augnaráðinu. Hann beiddist huggunar. en mest virtist hann hugsa um það, hvort áverkinn myndi valda varanlegu líkamslýti. Annars virtist liann vera gæddur óvenju miklu viljaþreki, og þreki til þess að vinna bug á sársauka. Mai- gret, sem sjeð hafði bæði sárin, kunni að meta þetta, sem fagmaður. „Viljið þjer segja Elsu það?“ „Viljið þjer ekki sjá hana?“ „Npi. Það er best, að þetta sje eins og jeg hefi sagt. En segið henni, að jeg sje hjer, og að mjer muni balna. Að jeg sje með fullri rænu og að öllu leyti eins og jeg á að mjer að vera, og að hún skuli vænla hins besta. Endurtakið það, að hún skuli vona. Að hún skuli lesa nokkur vers í biblíunni .... til dæmis Jobs bók .... Já, það má vera að þjer brosið. Því að þið, Frakkar, þekkið ekki biblíuna. Von .... „Jeg ekki altaf mina“ .... Það er Guð, sem talar .... Guð, sem þekkir sína .... Segið henni það. Og ennfremur: „Það er meiri fögnuður á himn- um yfir ....“. Hún skilur það. Og ennfrem- ur: „Hinn rjettláli er reyndar níu sinnum á degi hverjum . . . .“ Þetta var dásamlegt. Særður og sárþjáð- ur, tók hann sjer í munn orð biblíunnar, með lielgri lotningu, — í áhevrn tveggja lög- regluþjóna. „Þú skalt vona! .... viljið þjer segja það við hana? Sá, sem saklaus er, þarf ekkerl að óttast . . . . “ Hann hleypti brúnum. Hann hafði tekið eftir brosi á vörum Grandjeans. En síðan tautaði hann fyrir munni sjer: „Frakkar!“ Með öðrum orðum: trúleysingjar! Eða efasemdamenn, ljettúðugir spottarar, glat- aðir. Hann sneri sjer til veggjar, vonsvikinn. „Viljið þjer segja henni þetta!“ En þegar þeir Maigret og fjelagi hans opnuðu dyrnar á herbergi Elsu, sáu þeir, að það var mannlaust. Gróðrarhúss-andrúmsloft! Þykkur mökk- ur af sigarettureyk, konuilmur svo magnað- ur, að nægja myndi til þess að gera skóla- dreng, — jafnvel fullorðinn karlmann, ruglaðan í kollinum. En þarna var enginn! .... Glugginn var lokaður . . . . Þá leið hafði Elsa ekki farið. Málverkið, sem skýldi felustaðnum í veggnum, með verónalskömtunum, lyklin- um og skammbyssunni hjekk á sínum stað. Maigret vjek því til hliðar. Skammbvss- una vantaði. „Starið ekki svona á mig, í öllum bæn- um!“ Maigret leit um leið gremjulega til yfir- lögregluþjónsins, sem fylgdi hverri lireyf- ingu hans, með lotningarfullri aðdáun. Maigret beit tönnunum svo fast í pípu- munnstykkið, að það brotnaði, og pípuhaus- inn hraut fram á gólfið. „Hefir hún flúið?“ „Haldið munni.“ Hann var fokvondur. Grandjean horfði á hann undrandi, og reyndi að liafa svo hægt um sig, sem honum var unt. Enn var ekki kominn dagur. Bakarabifreiðin og gamall Ford-skrjóður, á gjögtandi hjólum, snigluð- ust eftir þjóðbrautinni, fram lijá húsinu. Alt í einu tók Maigret viðbragð, fór fram í ganginn og liljóp ofan stigann. Og um leið og hann kom niður í salinn, — en báðir hinir stóru gluggar stóðu opnir, — kvað við æg'ilegt óp, neyðarkall, langdregið og óliugn- anlegt. Það var verið að kvelja einhvern. Það var kvenmaður, sem var að æpa, það var eins og verið væri að kyrkja hana. Það var erfitt að gera sjer grein fyrir því, hvort þetta var langt eða skamt í burtu, livort það var heldur uppi á húsþakinu, eða niðri í jörðinni. Og skelfingarhreimurinn í röddinni var svo átakanlegur, að lögregluþjónninn, sem staðið hafði á verði við hliðið, kom hlaup- andi lieimað húsinu, nötrandi af ótta. „Herra fulltrúi, heyrðuð þjer ópið?“ „Hallu kjafti í andskotans nafni“, þrum- aði Maigret, óður af gremju. Hann var naumast búinn að sleppa orð- inu, þegar þeir heyrðu skothvell, hljómlaus- an, svo að ómögulegt var að átta sig á því, hvort skotið hafði verið til liægri eða vinstri, í garðinum eða frá húsinu, úr skóginum eða af veginum. Þá heyrðu þeir fótatak í stigarium. Carl Andersen kom ofan stigann, stirður eins og staLir, og hjelt liendninni um brjóst sjer. Hann lirópaði eins og vitskertur maður: „Það er hún!“ Hann saup hveljur. Gleraugað var star- andi og hreyfingarlaust, en það varð ekki greint á liyern hann horfði með heila aug- anu. IX. 1 fylkingu. Það liðu nokkrar sekúndur, — seinasta bergmálið dó út á meðan. Þá heyrðist ann- að skot. Carl Andersen hjelt áfram, út á malborna stjettina. Einn lögregluþjónninn, sem verið liafði á verði í garðinum, tók viðbragð og hljóp inn í eldhúsgarðinri. I honum miðjum var brunn- ur, og vinda yfir opinu. Hann skygndist of- an í brunninn, en liörfaði samstundis aftur á bak og flautaði í hljóðpípu sína. „Komið honum inn í húsið, með góðu, eða með valdi, ef ekki er annað hægt!“ kallaði Maigret lil LLicasar og benti á Danann, þar sem hann stóð, riðandi. Og alt gerðist þetta i einu, í morgunrökkr- inu. Lucas gaf einum manna sinna bend- ingu. Þeir gengu tveir til sjúklingsins, revndu fyrst að fá hann með sjer með góðu, en þeg- ar Andersen vildi engum fortölum sinna, tóku þeir á honum og drógu hann með sjer, sparkandi og spriklandi, og þrált fyrir öll mótmæli. Maigret gekk að brunninum, en lögreglu- þjónninn stöðvaði hann, og kallaði til hans: „Farið gætilega!“ Og það var ekki að ófyrirsynju, því að í sömu audránni hvein í kúlu, sem þaut fram hjá þeim, en livellurinn, niðri í brunninum, bergmálaði i löngum bylgjum. „Hver er þarna niðri?“ „Unga stúlkan .... og karímaður .... þau eru að slást, upp á líf og dauða“. Maigret færði sig nær, með varúð. En hann gat lítið greint. „Lánið mjer ljóskerið yðar!" Hann fjekk rjett aðeins tóm til, að gera sjer grein fyrir því, sem var að gérast niðri i brunninum, áður en skotið var annari kúlu, og munaði minstu, að hún mölvaði ljóskerið, sem hann hjelt á. Karlmaðurinn var Miclionnet. Brunnur- inn var ekki djúpur, en hann var víður .... og vatnslaus. Og þarna voru þau að berjast. Að því er Maigret sýndist, hjelt Michonnet um kverk- ar Elsu og var að reyna að kyrkja hana. Hún var með marglileypu í hendinni. En hann hjelt um úlnlið hennar, og stjórnaði byssunni eftir sinni vild. „Hvað eigum við að gera?“ spurði lög- regluþjónninn. Hann var yfir sig kominn af skelfingu. Öðru hvoru heyrðu þau stunur, neðan úr brunninum. Elsa var að kafna og barðist um á hæl og lmakka, sem óð væri. „Michonnel! — — gefist upp!“ kallaði Maigret, til þess að gera skyldu sína. En hinn virti hann ekki svars, en sendi Maigret enn eitt skot. En þá hugsaði Mai- gret sig ekki lengur um. Brunnurinn var um það bil þriggja metra djúpur. Maigret fleygði sjer ofan og kom niður á hrygginn á vátryggingamanninum, en sparkaði allharkalega til Elsu um leið. Alt komst á ringulreið. Og enn var skotið einu skoti. Kúlan straukst við brunnbarm- inn og þaut upp í loftið. En til þess að ganga tryggilega frá Michonnet, barði Maigret báð- um hnefunum í liöfuð honum, eins og hann væri að liamra klett. Við fjórða höggið leit Miclionnet til lians, eins og lielsært dýr, riðaði og fjell til jarðar. Annað augað var sokkið og kjálkinn úr liði. Elsa lijelt báðum höndum um háls sjer og' barðist við að ná andanLim. Það var bæði hryggilegt og um leið í mesta máta hlægi- legt, þetta einvigi á brunnbotninum, i kol- svarta myrkri, og megnri fýlu af úldnum (’)- þverx-a — og púðurreyk. Og enn hlægilegra var eftirspilið: Miclionnet var halaður upp

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.