Fálkinn - 15.01.1938, Blaðsíða 2
2
F Á L K 1 N N
----- GAMLA BlÓ -------
Kvikmyndastjarnan.
Fjörugur og skemtilegur gaman-
leikur. — Aðalhlutverkin leika:
MAE WEST,
RANDOLFH SCOTT,
WARREN WILLIAM.
Gamla Bíó sýnir bráðlega gaman-
mynd, sem nefnist „Kvikmynda-
stjarnan". Aðalhlutverkið leikur
Mae West, sem lengi liefir verið i
einna mestu afhaldi allra kvik-
myndadísa í Ameríku. Hún hefir
sjálf búið efnið undir myndatöku
og er ])að því einkanlega sniðið við
hennar eigið liæfi. Leikurinn er
fyrst og fremst skopleikur, þar sem
aðalpersónan er fræg kvikmýndadís,
og má þvi segja, að Mae West leiki
þarna sjálfa sig. Þarf eigi inörgum
orðum um. þa.ð að fara, að leikur
liennar í þessari mynd er gaman-
samur og skemtilegur. Jafnframt því
scm hún bregður spaugilegu ljósi
yfir þá þáttu leiklistar sinnar og
þá aðferð, sem hún hefir beitt til
þess að ná frægð og hylli, skopast
hún um leið að því, hvernig frægar
kvikmyndaleikkonur eru orðnar svo
innlífaðar i leikvenjur sínar, að þær
fylgja þeim líka í daglegu lífi. Leik-
urinn er orðinn þeiin að list og
vana, hluti af þeim sjálfum. Þar til
heyrir meðal annars ýmiskonar ásta-
brall, — löngunin til að vinna sigra
á karlmönnunum, hafa þá í hendi
sjer, kveikja þeim tálvonir og kasta
þeim svo frá sjer. Alt þelta sýnir
Mae West prýðilega í þessari mynd.
Auk þess er efni myndarinnar fjöl-
þætt og spennandi, en út í það skal
ekki farið hjer, til þess að draga
ekki úr eftirvæningu áhorfanda.
FRÁ SHANGHAJ.
Japanskur dáti i fremstu víglínu
er að horfa á reykjarmökkinn upp
af virkjum Kínverja, eftir að Jap-
anar hafa kveikt i þeim með tund-
urskeytum.
Hermálaráðuneyti Bandaríkjanna
kvað vera að undirbúa sig undir að
geta s'afnað sjálfboðaliði i lierinn
með stuttum fyrirvara. Hefir það
skipað ráðningarmenn um öll ríkin,
undir stjórn sjerstakrar skrifstofu.
Jjannig að hægt verði að ná í hálfa
miljón sjálfboðaliða á tveimur mán-
uðum ef nauðsyn krefur. En á fjór-
um mánuðúm Jjykist liermálastjórn-
in geta náð í hálfa aðra miljón
sjálfboðaliða.
Eirikur Jónsson skósmiður,
N jálsg. 52 verður 60 ára 19. þ. m.
Elínborg Guðmundsdóttir, Sk.~
vörðust. 15 varð 60 ára 13. þ. m.
MILCII HEItSHÖFÐINGI,
einn af foringjum loflhersins þýska,
var nýlega gestur enska hersins og
si oðaði þá sprengju-flugstöðina í
Mildenhall í Suffolk. Myndin sýnir
hann í þeirri ferð.
Bilstjóri einn í Aarhus fann ný-
lega ávísún á götunni, og varð býsna
giaður þegar hann sá, að hún liljóð-
aði upp á 135.000 krónur. Fór hann
þegar til lögreglunnar og skilaði
ávísuninni, vitanlega í von um stór-
eflis fundarlaun. Lögreglan fór með
avísunina til bankans, sem í hlut
átti, en hann gaf þær upplýsingar
að ávísunin væri ógild og hefði ein-
hver verslunarskólapiltur líklega gef-
ið hana út að gamni sínu, enda væri
óleyfilegt að gefa út svo háa ávísun
á banka sem þessi var. Svo að
bílstjórinn varð fyrir vonbrigðum.
Enski presturinn J. Nohbs í Bar-
roow. HiII nálægt Chesterfield hefir
bannað ungum stúlkum í prestakaili
sinu að nota vararoða og farða i
andliti þegar þær ganga til altaris
hjá honum. Hefir liann oftar en einu
sinni tekið upp vasaklútinn sinn og
strokið vararoðann af stúlkunum
þegar ])ær hafa lagst á hnjen við
gráturnar. — Jeg hefi ekkert á móti
því að stúlkur reyni að vera eins
fallegar og þær geta, en það verður
að vera með eðlilegu móti, og mjel-
uð andlit og litaðar varir vil jeg
ekki sjá Við altarið hjá mjer, segir
síra Nobhs.
Það hefir komið á daginn nýlega,
að þrjú sænsk tónskáld hafa tekið
sjer fyrir hendur að semja óperu úl
af sama efninu, en efnið er hin al-
kunna saga „Singoalla“ eftir Victor
Bydberg. Fyrst kom tónskáldið Vil-
hehn Jörunson frá Skáni og til-
kynti blöðunum, að hann hefði sam-
ið óperu upp úr „Singoalla“ og snú-
ið sjer til Gautaborgarháskóla við-
víkjandi rjettindum til efnisins, því
að þeim háskóla ánafnaði Rydberg
cigur sinar. En nú sneri hinn kunni
operusmiður Nathanael Berg sjer til
háskólans og ljet hann vita, að ef
hann leyfði Jörunson efnið, þá
skyldi háskólinn verða fyrir ó]>æg-
indum, og að konunglega óperan i
Stokkhólmi hefði ])egar fengið ó-
peru eftir sig til meðferðar. Og
loks hefir tónskáldið Gunnar Fru-
miere tilkynt, að hann hefði óperu
nn „Singoalla“. Háskólinn í Gauta-
borg hefir tilkynt, að hann l.'et i
riálið afskiftalaust, svo að söngleika-
húsið í Stokkhólmi fær allan vand-
ann af að gera upp á milli tónskáld-
anna.
------- NÝJA BÍÓ. -----------
Voroleði i Wien.
Austurrísk skemtimynd með
hrífandi músik eftir ROBERT
STOLZ. Myndin gerist í Vínar-
borg á stórveldisdögum Austur-
ríkis og XJugverjalands. Aðallilut-
verkin leika hinir vinsælu þýsku
og austurrísku leikarar
FRANZISKA GAAL,
PAUL HÖRBIGER,
WOLF ALBACH-RETTY
THES LINGEN
og gamla konan
ADELE SANDROCK.
„Vorgleði i Wien“ heitir mynd,
setn Nýja Bíó sýnir bráðlega, —
s'tórkostleg og ýndisleg Vínarmynd
með gleði, lífi og fjöri, músik og
mannfagnaði. Myndin skýrir frá því,
hvernig hið fræga hergöngulag
„Deutchmeister-marchinn“ varð til.
Fyrir stríð var vorsýningin í Vín-
arborg einhver mesti hátíðardagur
ársins. Gamli keisarinn Franz Joseph
kannaði l)á sálfur herlið sill ríð-
andi á gæðingi og þúsundir
manna voru viðstaddar sem áhorf,-
endur. Vorið 1895, er liersýning
þessi var haldin, kom fyrir merki-
leg nýung, sem vakti mikla athygli
Ár eftir ár voru sömu hergöngulög-
in leikin meðan hersýningin fór fram.
Undrun manna var ])ví ekki litil,
þegar ein herdeildin Ijek nýtt her-
göngulag, sem allir tóku þegar eftir
og vakti óskipta aðdáun. Hljóðfallið
var töfrandi og allir blístruðu undir
óafvitandi.
En hvernig gat staðið á þessu — og
hvað mundi keisarlnn segja? Það
varð kunnugt næsta dag. Sjálfur keis-
arinn hafði skipað að leika þetta
lag, og inúan skamins spurðisl það,
hver höfundurinn var. Það var ungur
liðsforingi Willieim AugusL Jurek að
nafni. Næsta dag léku allar hljóm-
sveitir í Vín þetta hergöngulag og
allir rauluðu það fyrir munni sjer
og enn í dag er það vinsælast af öll-
um Vinarhergöngulögum. — Höfund-
ur lagsins var í ráðum með samning
handritsins að myndinni. Hann and-
aðist í fyrra. Inn í efni myndarinnar
er vafið yndislegri ástarsögu. Hlut-
verk hóndadótturinnar, sem keinur
lil Vínar til þess að freista gæfunn-
ar, leikur liin yndislega Franziska
Gaal. í myndihni kemur einnig fram
gamli keisarinn, Franz Josepli, leik-
inn af Paul Hörbigcr. Þes’sa fallegu
og skemtilegu mynd þurfa allir
að s.iá.
Hvað sem annars má um Hitlers-
stjórnina segja, verður að telja
henni það til hróss, að óþörfum
hundum og köttum fer nú sífækk-
andi í Þýslcalandi, einkum í hæjun-
um. Er þjóðinni farið að skiljast að
henni sje sæmra að verja fje sínu
til barnauppeldis og handa fátækum
börnum en að ala á því óþarfa kvik-
indi, sem engum koma að gagni.