Fálkinn


Fálkinn - 15.01.1938, Síða 4

Fálkinn - 15.01.1938, Síða 4
4 F Á L K I N N Elsta þjóðhöfðingjaætt veraldarinnar. Hirohito Japanskeisari er 124. keisari sinnar ættar. Æðsti maður ágengustu þjóð- arinnar í heiminum verður .'18 ára 29. apríl og lieitir Hiroliito Japanskeisari og ræður yfir 413 eyjum, sem einu nafni nefnasl Nihon eða Nippon á japönsku, en heitið Japan kannast Jap- anar ekki við, þó að það þýði „sólarupprás“, enda er það af- bökun úr kínversku. En auk hins eiginlega Japans ræður keisarinn, svo viðurkent sje, yf- ir eyjunni Formosa, Eoreaskaga sem Japanar innlimuðu 1910 og skirðu Cho Sen og suðurhluta fíirohito keisari. eyjunnar Sakkalín. IJessi lönd öil eru rúmlega sex sinnum stærri en Island, en íhúafjöld- inn er nærfelt 900 sinnum méiri. En auk þessa hafa Japanar slegið eign sinni á landflæmi i Mandsjúríu, sem eru miklu stærri en heimalandið, og' eins og sakir standa hafa þeir á valdi sínu meiri hlutann af Norður-Kína, með meiri íhúa- fjölda en Japanar eru til sam- ans. Keisarinn i Japan heyrist til- tölulcga sjaldan nefndur í sam- handi við þau slórtíðindi, sem eru að gerast með Japönum siðari árin. Að jafnaði er mest talað um herforingjaklíkuna og einstöku auðmenn, sem ráði mestii um, hvað hafst sje að. Keisarinn kemur þar lílið við sögu, svo sjeð verði. Þó er vald hans mildu meira en þjóðhöfð- ingja með þingbundinni kon- ungssljórn yfirleitt, þó að svo eigi að heila, að þingræði ligfi verið i Japan síðan 11. febr. 1889. En stjórnarfyrirkomulag Japana er engan veginn eins lýðræðisbundið og t. d. Breta. Það er sniðið eftir fyrirkomu- laginu, sem Þjóðverjar höfðu í lið sinna síðustu keisara. Keis- arinn hefir 11 ráðherra við hlið sjer, sem hann tilnefnir sjálfur og seíur af. En löggjafarvaldið er iijá þingi í tveimur deildum. í efri deild sitja 373 þingmenn: frændlið keisarans, æðstu aðals- menn og kjörnir fulltrúar lág- aðalsins og hæstu skattgreið- anda auk afreksmanna, sem keisarinn nefnir til æfilangrar selu í deildinni, eins og enska lorda. En i neðri deild sitja 381 þingmenn kosnir til fjögra ára i senn og hafa kosningarrjett karlmenn yfir 25 ára, svo fremi þeir gjalda ákveðna upphæð i skatt. Keisarinn velur forseta deildanna. Og hann getur neit- að að staðfesta lög frá þinginu. Þannig er hann stórum valda- raeiri en þjóðhöfðingjar lýð- ræðislanda. Hirohito er fyrsti arftaki jap- önsku keisaraættarinnar, sem út fyrir Japan liefir komið. Sem tvítugur krónprins tókst hann ferð á hendur til Evrópu og heimsótti þá ýms lönd og var lengi i ferðinni. Hefði hann þó orðið lengur, ef ekki liefði tek- ið að brydda á geðveiki hjá keisaranum föður lians og var Hirohito þá kvaddur héim. Braust brjálæðið rit á keisaran- um þannig, að við þingsetningu gerði hann sjer trekt úr papp- írsörk og fór að syngja gegnum trektina meðan forsetinn var að halda ræðu sina. Eftir þetta tók Hírohito við stjórninni og á dánardegi keisarans, 26. des. 1926 varð hann keisari. En tæpum tveimur árum síðar var hann krýndur hátiðlega í hin- um gamla fornlielga keisarabæ, Kioto, í nóvemher 1928. Hirohito gekk í heilagt hjóna- hand 1924 og kvæntist Nagako dóttur Kuni fursta, sem er af einni elstu og tignustu ætta Japana. En drotningarnar í Japan láta ekki mikið á sjer bera fremur en kvenfólk yfir- leitt austur þar, og er núverandi cirotning engin undantekning. Keisarahjónin eiga finnn börn. Elst er Sohigeko prins- essa og þá prinsessurnar Ka- /uko og Atzuko, en svo krón- prinsinn, Akihito, sem fæcídist 1933 og yngstur er Masohito prins, tveggja ára gamall. Samkvæmt gömlum erfisögn- um er Hirohito afkomandi hins Keisarahöllin í Tokio. Hún sjest mjög sjaldan á al- mannafærl, gefur sig ekkert að stjórnmálum gn helgar sig ein- göngu liúsmóðurstörfum og móðurskyldum. Einu afskiftin sem hún hefir utanhúss eru þau að hún gefur sig allmikið að liknarstarfsemi og er formaður i ýmsum þessháttar fjelögum og er það eftirherma frá Ev- rópu. l'yrsta þjóðhöfðingja í Japan. „Keisara“ væri rangt að segja, því að ekki var farið að kalla míkadóana í Jápan keisara fyr en 1868, enda liöfðu þéir þá um Ixríð ekki liaft nein veraldleg: völcl heldur verið lokaðir inni í margar aldir eins og hvert annað heilagt stofustáss. En samkvæmt fornritunum „Kod- jiki“ og „Nihongi“ stofnaði S'íu-velda ráðstefnan i Bruxelles átli að bjáða Japönum bprginn. En þeir höfðu ekki svo mikið við að senda þahgað fulltrúa. Á myndinni sjesl sendinefnd Bandaríkjanna og formaður hennar, Norman Davies, i miðju.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.