Fálkinn - 09.04.1938, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
Frá Þingvöllum.
NÁTTÚRUFRIÐUN.
Framh. af bls. 5.
er „NáttúrufræSingur“ Arna
Friðrikssonar. Þetta rit er ekki
sist skemtilegt fyrir það, sem
vmsir menn úti á landi skrita
i það um atlmganir sinar á
náttúrufyrirbærum, sem eru
þess virði, að aímenningur fái
vitneskju um þau. Þessi skrif
sýna, að víðsvegar um land eru
til menn, sem hafa það luigð-
arefni samfara dægurstritinu
að veita því athygli, sem gérist
kringum þá í ríki gróðurs,
dýra og sleina, menn sem hafa
skilning á því, að hók nátt-
úrunnar er fjölskrúðugri en
nókkur þeirra, sem prentuð er.
Hjer hefir lengi verið til
Fornleifafjelag og ársrit þess
hefir flutt fjölda ritgerða um
forna staði og menjar, staða-
nöfn og fleira, og fyrir for-
göngu þess hafa verið gerðar
rannsóknir á rústum víðsvegar
i;m land. Jafnvel hellarnir liafa
verið rannsakaðir hinir
fornustu mannabústaðir á ís-
Jandi. En þó merkilegl megi
virðast hefir þetta fjelag aldrei
safnað svo mörgum meðlimnm
innan vjebanda sinna, að það
liafi náð til almennings. Það
kann að vera, að- almenningur
liafi haldið, að það væri vis-
indalegt og „ólífrænt“ fyrir sig.
Skógrækt ríkisins er eina
ríkisstofnunin, sem segja má að
liafi náttúrufriðun á stefnnskrá
sinni. Fyrir tilstilli skógræktar-
stjóra liafa ýmsar skógarieifar
verið friðaðar og fyrir tæpum
átta árum var skógræktarfjelag
stofnað til þess að vekja menn
til athafna í skógrækt.
Hjer er til Ferðafjelag, sem
á fáum árum er orðið eitt af
fjölmennustu fjelögum lands-
<ins. Verkefni þess er að kynna
mönnum Iandið og það sjer:
kennilegasta sem það hefir að
geyma, ekki síst óbygðirnar. En
jafnframt þvi að greiða al-
menningi götu inn í hinn mikla
þjóðgarð íslands, legst sú sið-
ferðislega skylda á lierðar fjel-
aginu að innræta fóllci virðingu
fyrir náttúrunni og að vanda
umgengni sína við hana.
Og hjer er til ungt Vísinda-
Ijelag, sem mun telja allan
hinn vaxandi hóp íslenskra
náttúruvísindamanna innan vje-
banda sinna. Það eru mennirn-
ir, sem hesta hafa aðstöðuna
til að segja til um, hvar frið-
unar sje helst þörf hæði af
hagnýtum ástæðum og hugsæj-
um ástæðum. — —
Ef þessi fjelög vildu leggjast
á eitt um, að stofna alsherjar
fjelag til náttúrufriðunar og
erndunar fornleifa á Islandi.
aúk þess að fjelögin hefðu hvert
um sig málið á stefnuskrá
sinni, mundi vissulega stórt spor
sligið í menningaráttina. Nóg
er landið til. En mannshönd-
ina vantar, ýmist til að lijálpa
náttúrunni þar sem hún þarf
þess við, en sumstaðar til
að Iáta hana í friði og sjálf-
ráða.
Hverjum hugsandi manni má
vera það metnaðarmál, að nota
þá sjerstöku aðstöðu, sem þjóð-
in hefir i þessu efni. „Stendur
ekki alt landið opið?“ Hjer er
liægt að hrinda af stað menn-
ingarmáli, án þess að rekast á
eiginhagsmuni þá, sem standa
náttúrufriðun fyrir þrifum í
þjetthýlu löndunum.
íslendingar vilja opna land-
ið fyrir erlendum ferðamönn-
um og það er vel. En það ætti
að vera skilyrði fyrir öllum
gestakomum, að það sjáist hvar
vetna, að þjóðin beri virðingu
fyrir landi sínu. Hitt væri að
hjóða gestum inn í óþrifalega
slofu, og það gerir sú húsmóðir
ekki, sem ber virðingu fyrir
heimilinu og sjálfri sjer.
Um 20.000 ferðamenn koma árlega
í St. Bernhards-sæluhúsið í Alpa-
fjöllum og fá þar ókeypis mat, gist-
ingu og Iæknishjálp, ef þeir þurfa
þess við. En ætlast er til þess, að
þeir láti skerf í sparibauk kirkjunn-
ar í staðinn. En fáir virðast hafa
köllun hjá sjer til þess, þvi að jafn-
aði kemur ekki nema ein króna i
baukinn á dag.
----x----
— Þjer verðið að láta meiri til-
finningu koma fram í rödd yðar.
Jeg þekki leikara, sem las upp
matseðil með svo mikilli tilfinn-
ingu, að allir viðstaddir tárfeldu.
— Hversvegna viljið þið ekki
eignast börn?
— Bíllinn okkar er bara handa
tveimur.
ÞEGAR EDEN SAGÐI AF SJER.
Anthony Eden hefir tvímælalausl
verið sá maðurinn, sem mest athygli
hefir verið veitt siðasta árið, allra
þeirra, sem með utanríkismál hafa
farið. Og það dylst heldur engum,
að staða hans liefir verið vandasöm.
Bretska stórveldið hefir orðið að
sigla milli skers og báru til þess að
afstýra ófriði og voða, og liafa jafn-
vel ýmsir láð Bretum undanláts-
semi þeirra bæði gagnvart Japönum
og einræðisríkjunum i Evrópu.
Frh. á næstu síðu.
i Happdrætti
• r
\ HáSKÓLA IsLANDS
I DA6 og á N0R6UM
eru síöustu furuiiö aö ná í miöa fyrír 2. fl.
j lÚEir en ein miijón krónur
j eru eítir í vinningum
j í 2,—10. flokki.
Gleymið ekki að endurnýja.