Fálkinn - 07.05.1938, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
------ GAMLA BÍÖ -----------
„Kuggurinn minn“.
Bráöskemtileg og sprenghlægileg
frönsk gamanmynd.
Aðaíhlutverkin leika hinn 13
mánaða gamli
PHILLIPPE
og l'ranski skopleikarinn
LUCIEN BARROUX.
Sýnd bráðlega!
Gamla Bíó sýnir bráðlega skemti-
lega franska gamanmynd, sem nefn-
isl „Kuggurinn minn“ og snýst að
miklu leyti um litinn munaðarlaus-
an drenghnokka, sem maður einn
tekur að sjer og elur önn fyrir.
Fyrri hluti myndarinnar gerist i
París. Prosper er þar maður nefnd-
ur, lærður maður vel og munaði
minstu, að hann yrði prófessór við
Sorbonne-háskólann. En atvikin
haga því á annan veg. Hann hefir,
er sagan hefst, það auðvirðilega
starf að þvo upp vagna og bíla á
daginn, en á kvöldin klæðist hann
í kjól og hvítt og gegnir þá um-
sjónarstarfi við eitt af leikhúsum
höfuðstaðarins. En þar sem honum
þykir meira gaman að lesa Virgil á
latinu en að hirða um bílslöngur,
þá vill honum sú óheppni tii einn
daginn, að hann dælir of miklu lofti
i slöngu eina, svo að hún springur.
Par með var sá draumur búinn og
staðan mist. En nú hittir Prosper
einn af vinum sínum frá stúdents-
árunum og hann lofar að reyna að
útvega honum starfa. Þetta tekst og
Prosper er ráðinn einkakennari við
liginn kvennaskóla i Chateauville.
En áður en þangað færi, skeður
nokkuð, sem hefir sín ríku áhrif á
gang sögunnar. Einn góðan veður-
dag finnur Prosper lítinn dreng fyr-
ir utan herbergisdyrnar í hótelinu,
sem hann bjó í. Hafði móðirin gef-
ist upp á að sjá fyrir barninu og
látið það fyrir utan dyrnar lijá föð-
ur þess, en hann hafði aftur á móti
komið því af sjer á þann hátt, sem
fyr segir. Prosper aumkast yfir litla
snáðann og tekur hann til sin,
þótt hann sje einn um að hirða
hann og gæta hans. Föðurfrændur
barnsins frjetta um meðfcrðina á
drenghnokkanum og fara að leita
að honum. Komast þeir að því, hvar
hann er niður kominn og ætla nú
að sækja hann og setja á eitthvert
heimili fyrir munaðarlaus börn. En
Prosper vill ekki sieppa drengnum í
hendur vandalausra og það verður
að samkomulagi, að liann hafi hann
með sjer. Fer hann síðan með
drenginn með sjer til Chateauviile til
-------- NÝJA BÍÖ. --------------
Jeg ákæri.
(Þættir úr æfisögu Emil Zola).
Stórfengleg amerísk kvikmynd
af æfiferli franska stórskáldsins
og mikilmennisins Emile Zola.
1 myndinni er ineðal annars rak-
ið frá upphafi tii enda Dreyfus-
málið alræmda. Aðaihlut-
verkin leika:
PAUL MUNI (sem Zola).
•IOSEPH /SCHAHLKRAUT (sem
Dreyfus).
ROBERT BARRATT (sem Est-
erhazy major) og fl.
Myndin er stórfengleg, áhrifa-
mikil og ógleymanleg.
Nýja Bió sýnir um þessar mundir
merkilega stórmynd, sem lýsir æl'i
Emiles Zola, hins fræga franska
skálds, sem á efri árum sinum gat
sjer þó jafnvei enn meiri frægð
fyrir afskifti sín af hiiui alkunna
Dreyfus-máli, sem vakti athygli um
allan heim á sínum tíma. Efni mynd-
arinnar er í stuttu máli þannig:
Emile Zola og Paul Cesanne búa
saman i kvistherbergi i listamanna-
hverfi Parisarborgar, l'átækir að fje,
en auðugir að hugmyndum. Eitt
kvöid bjargar Zola af tilviljun
stúlku á götunni frá þvi að lenda í
hö'ndum lögréglunnar. Hún heitir
Nana. Hún segir Zola alla sögu sína
og sú saga var uppistaðan í þjóðfje-
lagsskáldsögu lians Nana. Þessi bók
gerði hann frægan. Ár eftir ár send-
ir hann út stór skáldrit, sem gef.i
honum miklar tekjur Loks kemur
Dreyfus-málið til sögunnar. Dréyfus
ei dæmdur og sendur i útlegð til
Djöflaeyjarinnar. Það verður siðar
ijóst, að Esterhazy er hinn seki, en
yfirmenn hersins hlifa honum og
herrjettur sýknar hann. Þá tekst
konu Dreyfusar að fá Zola til þess
að taka að sjer mál manns sins.
Hann skrifar hið fræga opna brjef
sitt til forseta Frakklands, og grein-
in er birt i blaðinu „L’ Aurore“
undir nafninu: ,,Jeg ákæri"
(J’accuse —). Zola var sakaður um
drottins svik og í hinum miklu
máiaferlum, sem nú hófust, var Zola
dæmdur í eins árs fangelsi og'3000
franka sekt. Zola flýr nú til Eng
lands og heldur þar áfram baráttu
sinni fyrir málstað Dreyfusar. Loks
kemur að því, að sannleikurinn sigr-
ar, því að almenningsálitið bæði í
Frakklandi og annarstaðar gerði
herstjórninni ekki lengur fært að
svæfa málið. En aií var það fjrst
og fremst vei k Zola. Dreyfus er nii
sýknaður og kemur heim og fær
iulla uppreisn, og jafnframt kemui-
Zola heim úr útlegðinni. En iitlu
síðar deyr hann og er greftíaður í
Pantheon með mikiiii viðhöfn, þar
sem skáldið Anatole France hyllir
hinn látna son Frakklands.
Hinn ágæti leikari, Paul Muni,
leikur hlutverk Zola af mestu
snild Þessi mynd verður öiJuin ó-
gieymanleg.
þess að taka við kennarastörfum
sinum og þar í skólanum gerisl
síðari hluti myndarinnar, sem ekki
slcal rakinn hjer, en er bráðskemti-
legiir.
Mugnús Torfanon, fyrv. aýslu-
maður, verður 70 ára 12. þ. m.
í vetur sáust norðurljós, eins og
raenn muna, um mikinn hluta af Ev-
rópu, það voru norðurljósin er við
hjer veittum sjerstaka athygli, af því
að þau voru rauð. Víða þóttust menn
heyra einkennileg hljóð í þeim, eða
brak, og þó þetta sje borið tii baka
af vísindamönnum sem bábilja ein,
þá eru hinir og að'rir að skrifa blöð-
unum um að þeir hafi áreiðanlega
heyrt i þeim. Við íslendingar könn-
umst við bragandi norðurljós, en
brakandi norðurljós mun enginn
kannast við hjer.
Andrjes IHugason, Minna-Hofi,
Eystrihrepp, verður 80 ára 8.
þ. m.
Guðm. Gunnarsson, trjesmiður
frá Eyrarbakka, nú til heimilis
Ránargötu 10, varð 50 ára 5.
þ. m.
Sumarið er komið.
Kápur — Dragtír
Svaggerar
Mikið úrval. Smekkjegt
snið. Daglega eitthvað
, nýtt.
liun a i cg L
eitthvað A
1