Fálkinn - 21.05.1938, Side 2
2
F Á L K I N N
nrfndi Parnell, r.ð þeir sjeu báðir
ákveðnir til framboðs af flokkmim
við næstu kosningar. Hins vegar
ráðleggur hann Willie, er þeir eru
farnir af fundi Parnells, að hann
skuli reyna að koma sjer í kunn-
ingsskap við Parneil vegna hinna
miklu áhrifa hans i írskum stjórn-
málum og vinna sjer traust hans.
Willie svarar því, að hann ætli að
láta konuna sina bjóða Parnell til
miðdegisverðar á sveitasetri hennar
i Eltham. Litlu síðar er Parnell
látinn laus og tekur upp baráttu
sína á ný fyrir heimastjórn sem
foringi írska flokksins í neðri mál-
siofunni.
Hin fríða eiginkona Willies, Katie
O’Shea, kemur til London ásamt
frænku sinni. Hún vill skilja við
mann sinn, því að henni þykir
ekkert vænt um hann, en hann vill
. ekki veita henni skilnaðinn. Hann
þvingar hana til að hjálpa sjer að
koma í kring ýmsum pólitiskum
brellum, og nú ú hún að hjálpa hon-
um til að ná vináttu Parnels. Katie
býður nú hinum þekta leiðtoga til
miðdegisverðar, og Parnell tekur
boðinu með þökkum, því að hin
unga frú varð honum harla hugþekk
strax þegar hann sá hana. Hann
tekur því boðinu me.ð þökkum.
Lengra skal efni myndarinnar ekki
rakið, en nú hefst áhrifamesti þátt-
ur myndarinnar, hörð og flókin
viðureign hiilli hins heiðarlega og
. mikilsvirta foringja og hins hug-
sjónalausa stjórnmálavindbelgs, sem
hugsar einungis um eigin metorð.
Hinir ágætu leikarar Clark Gable og
Myrna Loy fara meistaralega með
hlutverk sín i þessari stórmerku
mynd.
IJáll Einarsson, fyrv. hæstarjett-
ardómari, verður 70 ára 25. þ. m.
GAMLA BlÖ
Parnell
(Ókrýndi konungur íra).
Stórfengleg söguleg kvikmynd
frá Metro-Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
MYRNA LOY og
CLARK GABLE.
Sýnd hráðlega!
Myndin Parnell, sem Gamla Bíó
sýnir bráðlega, er að nokkuru leyti
söguleg kvikmynd, einn þáttur úr
sögu hinna pólitisku viðskipta íra
og Englendinga ú dögum Glad-
stones, er írar börðust fyrir heima-
stjórn og viðfrægara frelsi sjer lil
lianda en þeir áður höfðu. Myndin
hefst árið 1880, er hinn tignaði og
ástsæli foringi íra, kemur heim til
ættlands síns eftir dvöl í Ameríku.
Litlu eftir heimkomu sína er hann
tekinn fastur fyrir „uppreisnarkend
ummæli“ og settur í fangelsr. í
fangelsið fær hann heimsókn tveggja
manna. Annar þeirra er pólitiskur
vindbetgur, Willie O’Shea að nafni,
en hinn maðurinn er O’Gorman
Mahon liershöfðingi og einn af
mtðlimum írska flokksins undir
forustu Parnells. Tjáir hinn síðar-
Síra Friðrik Friðriksson, K. F.
U. M., verður 70 ára 25 þ. m.
Arni Sveinsson, fyrrum kaupm.
frá Isafirði nú á Laugav. 79,
véfður 80 ára 27. þ. m.
og Emile Zola, sem Nýja Bíó sýndi
á dögunum.
----- NÝJA BlÖ. -
Timglskinssónatan.
HEIMSFRÆGUR KVIKMYNDALEIK-
ARI.
Myndin er af hinum heimsfræga
kvikmyndaleikara Paul Muni ásamt
konu hans og er tekin í Kaupmanna-
höfn ekki alls fyrir löngu, er þau
hjónin voru á skemtiferð um ýms
lönd Evrópu. Hinn snildarlegi leik-
ur hans er einnig þektur hjer á landi
m. a. úr myndunum af Louis Pasteur
Stórfengleg og hrífandi ensk-
tónlistarkvikmynd. Aðalhlutverk-
ið leikur og spilar frægasti
píanósnillingur heimsins
IGNACE JAN PADEREWSKI.
Leikurinn fer fram á sænskum
herragarði.
í myndinni spilar Padereivski
Tungsskinssónötuna eftir Beeth-
oven, Ungverska Rhapsodi nr. 2
eftir Liszt, Revolution Polonaise
eftir Chopin og Menuett eftir
Paderewski.
Þetta er tvímælalaust lang
merkilegasta tónlistarkvikmynd
sem gerð hefir verið til þessa
dags.
Sýnd bráðlega!
Það er dásamleg tónlistarmynd,
sem Nýja Bió sýnir bráðlega, hljóm-
list og söngviðburðir tengjast samajt
í áhrifamikía heild með píanósnill-
inginn og tónskáldið, fyrrverandi
forseta Póllands, Paderewski, sein
sameinandi kraft og höfuðpersónu.
Myndin hefst með því, að maður
sjer og heyrir Paderewski leika á
píanó á hljómleikum í Stokkhólmi,
fyrst fræg lög eftir Chopin, þa
Liszt, sjer hann sitja við píanóið,
fylgir löngum og mjóum spilafingr-
um hans yfir nóturnar og lifandi
breyfingum hans, — þetta eitt út nf
fyrir sig er hreinasti viðburður, —
virðir fyrir sjer gáfulegt andlit
hans, fallegt og elskulegt undir silf-
urhærum, sjer margvislegar svip-
breytingar hans, heyrir hinn glæsi-
lega flutning hans, hvorttveggja í
senn voldugan og skáldlegan. —
Eftir hljómleikana segir Paderewski
frá viðburði, sem kom fyrir hann
fyrir nokkurum árum, hvernig það
vildi til, að hann gerði tvö ung-
mcnni pilt og stúlku hamingjusöm
með því að spila fyrsta hlutann al'
tunglskinssónötu Beethovens. Það
sem næst fer fram í myndinni ger-
isl ú herragarði í Svíþjóð, þar sem
Paderewski kemur bókstaflega eins
og af himnum sendur, því að flugvjel
hans verður að nauðlenda rjett hjá
liöllinni. Með honum er aðstoðar-
maður lians og auk þess þriðji mað-
ur, leikinn í ]jví að tæla konur.
Hann veiðir hina ungu lieimasætu
á herragarðinum í net silt. En Eric,
ráðsmaðurinn á herragarðinum, sem
elskar meyna, tekst að sýna fram á,
að hinn óþekli maður sje giftur og
óþokki í þokkabót. Hin unga mær
vill trauðlega trúa þessu, en við
hina dásamlegu tóna tunglskinssón-
ötunnar hjá Paderewski sjer hún,
að það er í rauninni Eric, sem hún
elskar, og þannig tekst hinum gamla
listamanni að sameina í annað sinn
unga elskendur með töfravaldi tón-
anna.
Frh. á bls. 15.
FRÆGASTI KVENRITHÖFUNDUR
FINNLANDS.i
Myndin er af hinni frægu finsku
skáldkonu Sally Salminen, sem getið
hefir sjer mikla frægð fyrir söguna
„I<atrina“, sem íslenskir útvarpshlust-
endur kannast við, þar sem hún var
notuð fyrir útvarpssögu hjer í vetur.
Móðir skáldkonunnar er á myndinni
með henni.
* Allt meö ísleiiskmn skipuiii!