Fálkinn - 08.10.1938, Qupperneq 2
2
F Á L K I N N
-------- GAMLA RlO -------------
Konnngur skemtir sjer.
Afar fjörug og fyndin gaman-
mynd — sem hefir gengið á
Grand í Kaupmannahöfn 5 sinn-
um á dag í (i vikur á heitasta
sumartímanum.
Aðalhlutverkin leika:
VIKTOR FRANCKEN,
GABY MORLAY,
ELVIRE POPESCU.
Jafnvel fólk sem ekkert orð
kann i frönsku, mun veltast um
af lilátri meðan sýning myndar-
innar stendur yfir.
,,Kongurinn skemtir sjer", heitir
kvikmynd, sem Gamla Bíó sýnir
núna alveg á næstunni og er tekin
eftir hinum fræga franska gaman-
Ieik „Le Roi“. Það er ekki ofmælt,
þó að sagt sje að myndin sje spreng-
hlægileg frá uppliafi til enda og
fara margir kunnir franskir skop-
leikarar með hlutverk í henni.
— Jean fjórði, konungur í Cerda-
gne fer í fjögra daga opinbera heim-
sókn til Parísar, m. a. i þeim erind-
um að vinna að verslunarsamningi
milli Cerdagne og Frakklands, sem
erfitt hefir verið að koma á.
Eitt af því sem konungurinn æskir
helst meðan á heimsókninnii stend-
ur er að fara á veiðar með mark-
greifanum af Chamaranda, en fað-
ir hans var lengi sendilierra i Stef-
anopel, höfuðborg Cerdagne.
Lögreglustjóri M. Blond, er í för
með Hans Hátign í ferðinni, í senn
fararstjóri og lífvörður.
Á Chamaranda verður mikill fögn-
uður, er það frjettist að kongurinn
kemur þangað, en þar eð fasanar
markgreifans hafa mjög týnt tölunni
verður hann að kaupa mikið af
fasönum af Bourdier nágranna sin-
um vellauðugum, sem er verksmiðju-
eigandi og þingmaður í senn.
í sambandi við heimsókn markgreif-
ans reynir Bourdier að nota tækifær-
ið til þess að koma trúlofun á stað
milli dóttur sinnar og Sernin sonar
markgreifans, en markgreifinn tekur
því hið versta, þrátt fyrir það að
ekki skortir ástina hjá þeim ungu.
Orsökin er ættardramb greifans.
Og nú kemur leikkonan fagra,
Therese Marnix, til sögunnar. Og
það er skemst af því að segja, að
allir þessir tignu menn, sem nefndir
hafa verið standast ekki fegurð
hennar, og konungurinn er síst
sterkari á svellinu en aðrir.
Nú rekur einn þátturinn annan, og
eru þeir hver öðrum hlægilegri.
Veiðiför, veisiuliöld og kvennafar,
all sýnt í skoplegu Ijósi.
Það er ágætt fyrir þá, sem vilja fá
sjer hressandi hlátur að sjá þessa
myml. — Og manninum er nauð-
synlegt að hlæja duglega við og
við. Það lengir lífið segja vitrir
menn.
HANN FÆR EKKI AÐ GIFTA SIG.
Þrettán ára gamall strákur vestur
i Indiapolis hefir verið kærður fyr-
ir að reyna að nema á hrott unn-
ustu sína, sem heitir Betty Lacer og
er tólf ára.. Hafa þau eignast barn
saman og vildu ganga í hjónaband.
Hafa foreldrar hennar kært tilvon-
andi tengdasoninn.
Strákurinn, Tommy Chapinann er
fokreiður yfir því, að yfirvöldin
vilja ekki leyfa honum að giftast
stúlkunni sinni, og liefir hann nú
skrifað Roosevelt forseta brjef og
beðið hann um að taka í taumana.
Hann segist eiga heimtingu á að
giftast eins og hver annar og barn-
ið hans er ekki ómyndarlegra en
önnur börn, segir hann. Það vóg
fimtán merkur þegar það fæddist,
og furðar Jækna á þessari miklu
þyngd.
Ásmundur Guðmundsson pró-
fessor varð fimtugur 6. þ. m.
Jón Björnsson, bóndi á Ölvalds-
stöðum í fíorgarbreppi í Mýra-
sýslu, varð 80 ára 6. þ. m.
María Markan óperusöngkona var
meðal farþega á Gullfoss um síð-
ustu helgi. Hefir hún dvalií er-
lendis óslitið í þrjú ár og að heita
má eingöngu í Þýskalandi. Hefir
hún sungið í erfiðum óperuhlut-
verkum eftir heimsfræga höfunda
eins og Mozart, Puccini, Strauss,
Verdi og Weber. Að henni liafa
verið fengin vandasöm ldutverk er
næg sönnun fyrir þvi áliti, er hún
nýtur í Þýskalandi. Hún liefir hvar-
vetna fengið mjög góða dóma og
eru þó Þjóðverjar söngvönd þjóð.
Auk þess sem ungfrú Markan hefir
sungið í óperum hefir hún haldið
konserta og sungið í útvarp víðs-
vegar um Þýskaland.
Á norrænu tónlistarhátiðinni er
haldin var í Kaupmannahöfn fyrir
fáum vikum söng hún við góðan
orðstír og var þar sem víðar Iandi
og þjóð til sóma.
Söngur hennar þar þótti svo góð-
ur, að stjórn Konunglega Leikhúss-
ins í Kaupmannahöfn bauð henni
að syngja við leikhúsið sem gestur
Tómas Tómasson, forstj., verður
50 áira 9. þ. m.
Jóhann Kr. Hafliðason trje-
smiðameistari, Freyjugötu hó,
varð 60 ára 6. þ. m.
þess á komandi vetri, og gerir ung-
frúin ráð fyrir að taka því boði og
byrja starf sitt þar eftir nýárið. —
Áðpr en hún fer utan ráðgerir
hún að halda að minsta kosti einn
konsert hjer í höfuðstaðnum.
Enskur sprengjuframleiðandi, mr.
Stroude hefir fundið upp sprengi-
efni, sem er þrefalt sterkara en
dynamit. Er það búið til úr ýmsum
úrgangsefnum kola.
Kennarinn: — Hvað er hann faðir
þinn, Friggi?
— Hann er veikur.
— Jeg vil vita hvað hann gerir.
— Hann hnerrar.
— Þú átt ekki að segja mjer hvað
hann gerir þegar hann er veikur
heldur þegar hann er hress.
— Þá hnerrar hann ekki.
Kennarinn (fokvondur): — Skil-
urðu ekki drengur, að jeg vil fá að
vita hvað liann faðir þinn er, þegar
liann er ekki veikur og hnerrar ekki.
— Þá er hann heilbrigðúr.
------- NÝJA BÍÓ. -----------—
Margt er skritið
í Hoilywood.
Amerísk skemtimynd frá United
Artists. Hjer leikur hinn dáði
skoplistarleikari
LESLIE HOWARD
afturhaldssaman kaupsýslumahn
se.m er sendur til kvikmynda-
borgarinnar Hollywood til þess
að reyna að reisa við fjárhag
kvikmyndafjelags er komið var
á fallandi fót, þar kemst hann í
mörg skopleg æfintýri og aldrei
hefir áhorfendum gefist betra
tækifæri að kynnast lífinu í hin-
um stóru kvikmyndasölum kvik-
myndaborgarinnar frægu, en i
þessari mynd.
Ein af næstu kvikmyndum Nýja
Bió lieitir „Margt er skrítiff í Iiollg-
wooil, og er hún tekin al' United
Artists undir stjórn Tay Garnett,
með Leslie Howard og Joan Blon-
dell i aðalhlutverkunum. Handritið
að kvikmyndinni er samið af tveim
frægustu rithöfundum í Hollywood,
sem hafa gert hvert kvikmynda-
handritið öðru betra. Myndin
gerist í hinum heimsfræga kvik-
myndabæ Hollywood, þar sem lifs-
púlsinn slær ótt, og alt er á fleygi-
ferð.
— Kvikmyndafjelagið „Colossal",
í Hollywood á við fjárhagslega örð-
ugleika að striða, og einn af eigend-
unum, gamall fjármálasnillingur er
kominn að þeirri niðurstöðu að ekki
sje annað að gera en selja það. —
Lögfræðilegur ráðunaulur hans
Alterbury Dodd, ræður lionum frá
því. Það verður að samkomulagi
milli þeirra eftir nokluirn ágrein-
ing, að Dodd er sendur til Holly-
wood til að rannsaka nánar fjárhag
„ColossaT*. Verði fjelaginu ekki bjarg
að, ætlar Dodd að sækja um lausn
frá starfi sinu.
Dodd, sem er frábær fjármálamað-
ur kemur nú til Hollywood, höfuð-
borgar kvikmyndalistarinnar. Og
hann er svo illa að sjer um alt sem
við kemur kvikmyndum, að hann
hefur aldrei heyrt Garbo eða Shir-
ley Temple nefnda, hvað þá aðra!
Dodd er allur í tölum, svo að liann
merkir ekki einu sinni fegurð hinn-
ar ungu kvikmyndaleikkonu, sem
verður einkaritari hans. lín smátt
og smátt opnast augu hans fyrir )>vi,
að lífið er annað og meira en tölur,
og að sá sem ekkert sjer annað en
þær er snauður maður. Lester Plum
sannfærir hann um það, að ástin á
sinn rjett, og að hún er sterkara afl
en tölurnar, þegar lífið er rannsak-
að ofan í kjölinn.
ÖIl stórblöð Kaupmannahafnar
bera liið mesta lof á þessa kvik-
mynd. —