Fálkinn - 08.10.1938, Qupperneq 7
F Á L K I N N
7
Íí3$>::
;V:
líífíllll
v. .' Vgísgsj*
' v s >1$ ■• " /W&< XWÍ1*
iiWitMpͧ«liS
Georg Englakonungur og drotning
hans gera sjer mikið far um að
kynnast hag verkamannafjölskyldn
anna i London og í því skyni fara
þau í heimsúkn til verkafólks án
þess að gera hoð á undan sjer. Mæl-
asi þessar heimsóknir misjafnlega
fyrir, því að flestir vilja gjarnan fá
að vita um komu gestanna fyrir-
fram, jafnvel þó ótignari sjeu en
Bretakonungur, til þess að geta að
minsta kosti þrifað húsakynnin og
farið í skárri leppana. Hjer á mynd-
inni sjást konungshjónin í eldhús-
inu hjái gömlum hjónum, sem lík-
lega hafa fengið að vita um kom-
una fyrirfram, því að alt er þar svo
hreint og þokkalegt.
Finnlendingar, hjeldu hátíðlegt tutt-
ugu ára afmæli sjálfstæðis síns
núna í vor með miklum veislum og
samkomum og hersýningum. Einn
þátlur hátíðahaldanna var sá, að
herliðar frá borgarastyrjöldinni
1918 gengu í fylkingu fyrir Mann-
erheim hershöfðingja, sem síðar
varð fyrsti forseti Finnlands, á Sen-
atstorginu í Helsingfors.
1 vor rjeðst hópur Dana til þess að
flytja búferlum til Venesuela. Var
mjög deilt um þennan útflutning í
Danmörku og flestir voru honum
mótfallnir, því að útflytjendurnir
urðu að taka á sig ýmsar kvaðir er
til Venesuela kæmi og eru í raun-
inni ekki frjálsir menn fyr en eftir
allmörg ár, ef þeim þá hefir tekist
að uppfylla þær skyldur, sem Jyeir
undirgangast. Eigi að síður urðu um
80 manns til þess að fara þangað
og sýnir myndin hjer að ofan nokk-
uð af fólkinu er það var ferðbúið.
Mörg börn voru i höpnum.
Englendingar vilja ógjarna án þess
vera að leika golf, hvar sem þeir
eru staddir í veröldinni og þess-
vegna eru golfbrautir víða á þeim
stöðum, sem enskt skemtiferðafólk
sækir. Þegar hefir verið gerð mjög
fullkomin golfbraut við pyramíd-
ana í Egyptalandi. Myndin sýnir
fólk á brautinni með úlfalda hjá
sjer en i baksýn er Cheops-
pyramídinn.