Fálkinn - 08.10.1938, Blaðsíða 10
10
F Á L K I N N
SJÁLFHELDA VENUR FÓLKIÐ.
í sumum kirkjugörðum Berlínar-
borgar eru sjálfheldur til þess að
geyma í garðkönnur handa fólki til
afnota. Til þess að opna sjálfheld-
una stingur maður 5 pfenningum í
rifu og 10 pf. i aðra. En þegar sá,
sem notað liefir garðkönhuna, setur
hana á sinn stað aftur, fær hann 10
pf. til baka. Síðan þessi siður var
tekinn upp, vanrækir enginn að skila
garðkönnunum á sinn stað.
Síðastliðinn marsmánuður var heit-
ari í Noregi en nokkurntíma siðan
1810. Var hitinn sex stigum yfir
meðallag.
þessa glergrjóts til bygginga, er svo
að segja eingöngu vjelavinna, og að
tilraunir fóru fram í þrjú ár áður
en tókst að framleiða glerið nógu
ódýrt, fagurt og sterkt. Það er svo
um flesta nýja framleiðslu á vorum
dögum, að lnin er niðurstaða lang-
vinnra og liúgkvæmra tilrauna.
Geta má þess að Egyftar kunnu
að búa til glerperlur fyrir 5000 ár-
um, eða um sama leyti og pýramíd-
arnir voru reistir. Ekki vita menn
hve snemma þeir fóru að gera aðra
hluti úr gleri, en elstu glerskálarnar,
er menn vita um, eru frá því um
1500 fyrir Kr. Það eru þrjár skál-
ar sem fundust í gröf eins af kon-
ungum Egyptalands er hjet Thotmes
III. og eru þær nú i Metrópólitan-
safninu í New York. Er álitið, að af
því þær fundust i konungsgröf hafi
þær þótt dýrgripir á þeim dögum,
og að það hafi þá fyrir tiltölulega
skömmu verið farið að gera skálar
úr gleri. Allsnemma var farið að
nota gler í glugga, og myndaglugg-
ar úr gleri eru ekki fullkomnari nje
fegurri nú, en þeir voru gerðir fyrir
þúsund árum. Framfarir í glergerð
hafa samt alment orðið gífurlegar,
og má þar einkum tilnefna upp-
finningar i glergerð, er menn Fords
hafa gert, er breytt hafa glergerðinni
í vjelavinnu. Töluverður hluti af
eftirgerðu silki er búinn til úr
glerþráðum, og ýms önnur ein-
kennileg notkun glers. Spegla úr
gleri bjuggu fyrstir til Feneyja-
búar, um 1300, það voru þeir, sem
l'undu þá aðferð, að setja kvikasilf-
ur á gler, o,g á þann hát't búa til
skuggsjá. En fram að þeim tíma
höfðu meyjarnar orðið að láta sjer
nægja spegla úr skygðum málmi, en
þeir speglar voru jafnan mjög litlir
og dýrir. Frægasti hluturinn, sem
gerður hefir verið úr gleri að fornu
og nýju, er safnglerið i stjörnukík-
irinn mikla, sem verið hefir í smíð-
um í Bandaríkjunum mörg undan-
farin ár. Það er 200 þumtunga í
þvermál og vegur 20 smálestir.
Lestzarmctður,
TERU PRINSESSA,
elsta dóttir Japanskeisara sjest hjer
stödd í Yasukunimusterinu í Tokio,
en það er helgað föllnum japönskum
hermönnum. Hirðmaður heldur hlif
yfir prinsessunni, svo að ekki skuli
rigna á hana.
HEKLUNÁLIN
KEPPIIt VIÐ PRJÓNINN.
Konurnar, sem eru duglegar að
hekla vilja sýna hvað þær geta og
koma hjer með fallegan kjól, brún-
an, með grænum og hvítum rönd-
um. Og þær geta sagt með sanni,
að hann standi í engu að baki þvi
sem best og smekklegast er prjónað.
RAUÐAR VALMÚUR
OG „HENGIKRULLUR".
Hversvegna að vera að fela skraut-
ið á háttinum bak við skugga, hefir
verið haft í hug hjerna, og skugg-
inn liefir verið slitinn í sundur í
miðjunni, svo að hinn lit,auðugi
valmúuvöndur fái að njóta sín í fje-
lagi við hinar yndislegu „hengi-
krullur.“ —
UNGFItÚ JEDRZEJOSWSKA
er pólsk og var meðal þeirra kvenna,
sein mesta athygli vöktu á tennis-
mótinu síðasta i Wimbledon, London.
Sjest hún hjer á tennisvellinum.
BAÐNÝJUNG.
Fyr meir var það siður að
vefja baðbúningnum saman eftir bað-
ið og leggja hann inn í baðhettuna.
Nú eru komnar á markaðinn bað-
töskur, sem til jiess eru gerðar að
geyma baðfötin. — Hjer höfum við
eina mjög fallega úr rauðum vax-
dúk og er hún skreytt með nöfn-
um ýmsra stórborga.
EDEN KVIKMYNDASTJARNA?
Eigandi margra fegrunarstofa i
London hefir látið þúsund manns,
konur og karla, greiða atkvæði um
það, hvaða maður í heiminum gangi
snyrtilegast og smekklegast klæddur.
Anthony Eden fyrverandi utanríkis-
ráðherra fjekk yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða en Gary Cooper varð
næstur honum. Er sennilegt að kvik-
myndakonungarnir í Ameríku fari
að gera Eden tilboð eftir þennan
atburð.
ÁSLAUG KRÁKA NÚTÍMANS.
Gamla sögnin um Áslaugu, sem
leysti þá þraut að sýna sig á al-
mannafæri þannig að liún væri
hvorki klædd nje nakin, hefir geng-
ið í endurnýjungu lífdaganna í Eng-
landi, þaú sem fólk leggur mikla
rækt við sögulegar sýningar. Þar
er það sögnin uin lafði Godivu, sem
lifir, en hún forðaði bæjarfólki sínu
frá þungum álöguin með þvi að riða
nakin um götur bæjarins. Þessi saga
er rifjuð upp árlega og sýnir myndin
ungu stúlkuna, sem leysti hlutverkið
af hendi síðast. — Sonardóttir í-
þróttamannsins I. P. Múller hafði
boðist til þess í vor, að taka þetta
hlutverk að sjer, en var rekin úr
heimavistarskólanum sem hún var í,
fyrir vikið.
Konurnar í Jugoslavíu hafa nú
gert kossaverkfall. Hingað til liefir
það verið skylda jieirra að kyssa
bónda sinn á liandarbakið á liverj-
um morgni og eins alla þá gesti,
sem að garði bera og eru eldri en
þær sjálfar. En nú vilja þær hætta
þessumóvana.
Hús úr gleri.
Um daginn var fullreist hús eitt
við Fimta-Stræti i New York, sem
vakið hefir meira en litla eftirtekt.
Hús þetta er sem sje reist að nokkru
leyti úr gleri, þó ekki á sama liátt
og gróðrarhús, heldur úr „steinum",
sem eru úr gleri. Engir gluggar eru
á húsinu, en birtan kemur inn um
veggina, þó ekki sjáist í gegnum
þá. Corning-glerverksmiðjurnar, sem
eiga þetta hús, liafa gengið í banda-
lag við aðra stóra glerverksmiðju,
og hafa þær í sameiningu reist
glergerð í smáborg einni er heitir
Port Alleghany, og á þar eingöngu
að búa til gler til húsabygginga. Eru
i borg þessari aðeins 2200 ibúar, en
hún þykir liggja vel við til þessar-
ar framleiðslu, af því að nóg er þar
af sándi, er búa má til gler úr. Ber
byggingafræðingum saman um, að
með þessu nýja byggingaefni megi
gera bæði steinsteypuhús og múr-
steinsbyggingar mikið fjölbreyttari,
fegurri og þægilegri en áður var
hægt. Þess má geta, að framleiðsla