Fálkinn - 08.10.1938, Síða 14
14
F Á L K I N N
Ófriðnum afstýrt - í bili
NIÐURSUÐU VERKSMIÐ J A
FISKSÖLUSAMLAGSINS.
Framh. af bls. 3.
átt, frá þvottavjelunum, ofan af lofti.
Svo stórvirk er þessi vjel, að hún
getur mótað og soði'ð fiskbollur í
12.000 dósir (á 1 kg.) á dag. Er þessi
vjél smíðuð af Spjælkevik í Trond-
hjem.
Öll niðursuðan (þ. e. að segja það
sem soðið er í dósum, en ekki geym-
ist í saltpækli) verður að „dauð-
hreinsast" (,,steriliserast“) til þess
að þola ianga geymslu. Til þess er
sjerstök suðuvjel eða ;,a.utoklav“,
sem tekur um 2000 heildósir i
einu. Er hún gufuhituð. Sjerstakur
gufuketill er í húsinu, notar liann
oliu sem liitagjafa í stað kola og er
svo vel einangraður, að hann held-
ur nokkrum liita, ])ó að eigi sje
hann kyntur í viku. Enda er svalt
inni í „ketilrúminu" —- hitinn kemst
ekki út. Má sjerstaklega geta þess,
að þessi ágæta einangrun er gerð
með íslenskum vikri.
Hjer hefir aðeins lauslega verið
stikað á því helsta, sem fyrir augun
her við fljóta yfirsýn, í þessari
stærstu niðursuðuverksmiðju, sem
nokkurntíma hefir verið stofnuð á
íslandi.
Við sýningu verksmiðjunnar, á
laugardaginn var, voru staddir um
iSO manns, gestir ýmsir sem hjer
voru staddir á aðalfundi Sölusam-
bands ísl. fiskframleiðenda, nær-
staddir alþingismenn, borgarstjóri,
hlaðamenn o. fl. Formaður Fisksölu-
sambandsins, Magnús Sigurðsson
bankastjóri, bauð menn velkomna og
lýsti i stuttu máli því, hvernig þetta
fyrirtæki væri til orðið. Verksmiðj-
an hefir verið bygð á ótrúlega stutt-
um tíma, en eigi að síður hefir svo
vel verið vandað til hennar, að hún
má teljast með fullkomnustu verk-
smiðjum líkrar iðnar á öllum Norð-
urlöndum.
Að lokinni ræðu Magnúsar Sigurðs-
sonar sýndi forstöðumaður verksmiðj-
unnar, Þorvaldur Guðmundsson, gest-
unum verksmiðjuna. Þorvaldur liefir
frá því að liann var kornungur, feng-
ist við afgreiðslu og verkun matvæla,
fyrst hjá Tómasi Jónssyni kaup-
manni og síðar hjá Sláturfjelagi Suð-
urlands, uns hann sigldi fyrir nokkr-
um árum til útlanda til þess að læra
niðursuðuaðferðir matvæla, og dvald
ist þá einkum í Þýskalandi. Að lok-
inni þeirri utanferð varð hann for-
stöðumaður Rækjuniðursuðunnar á
ísafirði. Og þegar ákveðið var, á
síðastliðnum vetri, að Sölusamband-
ið setti á stofn niðursuðuverksmiðj-
una var hann ráðinn til þess starfa,
að veita henni forstöðu. Hefir hann
á sínum uriga æfiferli áunnið sjer
traust og álit, og þykir hinu mikla
fyrirtæki, sem er einstakt í sinni
grein, vel komið í hans höndum.
FyJgja því óskir allra góðra manna,
og vonir um, að það eigi eftir að
vinna þjóðinni mikið gagn.
„Fálkinn" birtir hjer myndir af
vérksmiðjuhúsinu að utanverðu,
stúlkunum sem eru að verka „hrá-
vöruna“, og af verksmiðjustjóranum,
Þorvaldi Guðmundssyni.
Hafnarstjórinn í Liverpool á Eng-
landi, sir Richard D. Holt sagði ný-
lega í ræðu, sem hann hjelt, að skip
væru yfirleitt helmingi stærri nú, en
þau, sem hefðu verið í förum fyrir
þrjátíu árum. Meðalstærð skipa er
til Liverpool hefðu komið 1905 hefði
verið 600 smálestir, en ineðalstærð
1937 hefði verið 1100 smál.
— Maður getur aðeins grætt heið-
arlega með einu móti....
— Og með hvaða móti er það?
— Grunaði mig ekki, að þú mundir
ekki vita það.
Það þóttu gleðitíðindi, sem skeðu
i síðustu viku, er það tókst að af-
stýra þeirri yfirvofandi hættu ófrið-
ar, sem liafði lamað heiminn und-
anfarnar þrjár vikur. Sáttmálinn,
sem gerður var, er að vísu, að því
leyti merkilegur, að Adolf Ilitler
slakaði til — í fyrsta skifti á æfi
sinni, en aldrei mun hann verða til
frambúðar.
Myndin lijer að ofan er landkort
af Tjekkoslovakíu. Er þar sýnt með
línuriti yfirlit um það, sem Þjóðverj-
ar heimtuðu af Tjekkum. Þar er
merkt með svörtu, alt það, sem I’jóð-
verjar telja sig eiga 90—100% af íbú-
unum. Þar sem þeir þykjast eiga
70—90% er merkt með skástrikum.
Loks er það merkt með langstrikum,
sem Þjóðverjar eigna sjer 50—70% af.
Sannleikans vegna verður að taka
það fram, að þetta yfirlit hefir að
geyma mikil ósannindi. í engu af
þessum hjeruðum er þýska fólkið
eins mannmargt og fólkið segir,
samkvæml skýringunni hjer að ofan.
En allan norðurhlutann af Tjekko-
sjovakíu gaf Benes forseti eftir, fyrir
ákveðna milligöngu Breta, — til þess
að afstýra heimsstyrjöldinni nýju.
Á næstu dögum sker breska þjóð-
in úr því, livort heimsfriðurinn geti
orðið til þeirrar frambúðar, sem all-
ir þrá að hann verði. Hlutlausar
þjóðir vona það.
Hinar myndirnar sem hjer eru
birtar, koma þessu máli við, þareð
önnur er af samfundi Neville Cham-
berlain og Hitlers, í Berchtesgaden.
Neðri myndin er af Godesberg, þar
sem þeir mætast í annað sinn, Hitler
og Chambérlain.
Grannnófónskifan er fimtug í ár
og liefir sáralítið breyst á þessum
tima, þó að upptökuaðferðirnar og
grammófónarnir sjeu nú fullkomn-
ari en áður. Það var þýskur maður,
Emile Berliner frá Hannover, sem
gerði fyrstu grammófónskífurnar, í
þeirri mynd, sem þær eru nú. Edi-
son hafði nolað vaxplötur, sem voru
rniklii ófullkomnari.
England liefir tvö stór rannsóknar-
skip sífelt í förum um úthöfin," „Dis-
covcry 11“ og William Scoresby".
Skip þessi eru kostuð af sjóði þeim,
sem safnast liefir af afgjöldum af
hvalveiðum á Falklandseyjum, sem
Englendingar eiga. Sá sjóður er nú
orðinn um 13 miljónir króna.