Fálkinn - 10.12.1938, Page 2
2
F Á L K I N N
-------- GAMLA BÍÓ --------------
Tveir njósnarar.
Hrífandi og afar spennan^i
njósnarasaga frá stríðsárununi.
Myndin er tekin af Paramount
og aðalhlutverkin ieika:
HÉRBERT MARSHALL
'GERTRUDE MICHAEL
LIONEL ATWILL.
Myndin sýnd brá'ðlega.
Myndin hefst í London i ágúst
1914, þegar heimsstyrjöldin er að
skella á. Ástfangið fólk og nýtrúlof-
að fær helst ekki gert sjer grein
fyrir þeim ósköpum, sem á eru að
dynja, þar á meðal eru enski leik-
arinn Alan Barclay og starfssystir
hans, Vínarmærin Elsa Duranyi. Þau
eru brennandi af ást hvort til ana-
ars •— en kvöldið áður en þau ætla
að gifta sig segir England Miðveld-
unum strið á hendur. Alan segir að
ekkert geti skilið þau, og ekki lield-
ur það þó að ættlönd þeirra eigi
1 ófriði, en hann grunar ekki alla
erfiðleikana, þar sem Elsa er með-
timur í þýskri njósnarasveit i Lon-
don undir forystu Wilhelm Ludwig.
Og sama kvöldið og hernaðaryfir-
lýsing Englendinga er gefin út fær
hún skipun frá Ludwig um að fara
til Frakklands. Og hjer duga engin
mótmæli eða undanfærslur.
Og morguninn eftir þegar Alan
kemur að heimsækja hana er hún
öll á bak ög burt.
Hann er í öngum sínum af þessu
og gerist brátt sjálfboðaliði. Sakir
l>ess hve góður leikari hann er og
þýskumaður er hann ráðinn sem
njósnari og gengur i njósnaraskóla
til þess að þúa sig undir starfið.
Þar sem liann er mjög frægur
maður er nafn hans tekið upp á
lista hinna föilnu til að villa óvin-
ina. Og skömmu síðar tekst að
„smygia“ honum til Þýskalands und-
ir nafninu Hans Feiler úr þriðju
saxnesku fótgönguliðsveitinni — og
tekst Alan ágætlega í þessu hlut-
verki.
Elsa hefir ekki verið aðgerðar-
laus meðan Jjessu fór fram. Hún
hefir verið landi sinu fullkomlega
trú, og verið afburðanjósnari ekki
sist fyrir fe.gurð sína og gáfur.
En þegar hún frjettir um fall Alan
verður lífið henni einkis virði. Þó
bugast hún ekki, heldur fleygir sjer
i fang hættunnar ákveðnar en
nokkru sinni áður.
— Myndin snýst frá upphafi til
enda um njósnir og um baráttuna
milli þjóðhollustu og ástar, liar sem
báðum er gerð góð skil.
Gíslína Vigfúsdóttir, Austurg.
26 Hafnarfirði, verður 75 ára
10. þessa mánaðar.
Nú fara að verða síðustu forvöð að sendu
blómakveðjur til vina og kunningja í öðr-
um löndum um jólin.
Sem meðlimur í heimssambandi blóma-
verslana getum vjer sent blómakveðjur
yðar hvert sem ,er.
Sendið pantanir yðar sem fyrst.
0
o-itl & (■Æae.æfxi<
Hafnarstrœti 5.
Simi 2717.
Wý bók!
LÆKNIRINN
Eftir Victor Heiser. Freysteinn Gunnarsson þýddi.
Þessi bók hefir vakið alheims athygli. Höf-
undur hennar hefir starfað með ótal þjóðum
og kynst mönnum af öllum stjettum og stig-
um, ,og segir í bókinni frá því sem fyrir augu
hans og eyru bar. Aldrei hefir bók hlotið
betri dóma og það að verðleikum.
Fæst í bókaverslunum heft og innbundin.
Bókaverslun isafoldarprentsmiðju.
Bjarni Björnsson gamanleikari.
25 ára leikafmæli.
Síðastliðinn sunnudag átti Bjarni
Björnsson 25 ára leikafmæli, sem
hann hjelt hátíðlegt í Gamla Bíó með
|)ví að syngja gamlar, vinsælar vís-
ur og stæla þektar persónur bæjar-
ins. Voru margir bæjarbúar mættir
á samkomunni, bæði til þess að
skemta sjer og þakka Bjarna 25 ára
starf. Bjarni Björnsson á miklar
liakkir skildar fyrir gamanleika-
starf sitt, þvi að enginn einn mað-
ur hefir vakið meiri hlátur meðal
íslendinga en liann. Og hverjir
skyldu hafa meiri þörf fyrir hress-
andi hlátur en einmitt þeir?
Aðsóknin að samkomum Bjarna
er órækur vottur um hvað hann er
skemtilegur á sviði og hve mikillu
vinsælda hann nýtur. Það er spurn-
ing hvort nokkurt nafn hjer í bæ
„trekkir“ meira en hans.
Næstkomandi sunnudag endurtekur
Bjarni samkomuna, svo að enn gefst
tækifæri til að fá sjer hressandi
hlátur fyrir þá, sem fóru á mis við
hann á sunnudaginn var vegna
þrengsla i Gamla Bíó.
-------- NÝJA BÍÓ. --------------
Kvennalæknlrinn.
hrífandi fögur og skemtileg
amerísk kvikmynd frá Fox.
Aðalhlutverkin leika:
WARNER BAXTER
LORETTA YOUNG
VIRGINIA BRUCE.
Nýja Bíó Sýnir innan skamms
myndina Kvennalæknirinn, er tekin
er af Fox-kvikmyndafjelaginu, und-
ir stjórn Walter Lang.
— Dr. Judd Lewis er mjög önu-
un kafinn. Hann er læknir i miklum
metum, afar duglegur og gæddur
mikilli sálfræði,gáfu.
í sínum miklu önnum nýtur hann
hjálpar hjúkrunarkonu einnar, ung-
frú Stevens — kölluð „Steve“. Það
má segja að hún sje hans hægri
hönd, ekki aðeins hvað sjúklingana
snertir heldur og hvað hann snertir
persónulega. Hún verður jafnvel
að sjá uni ný föt handa honum, því
að annars gengi hann altaf i göml-
um fötum.
Einn dag er sjúklingur, ung stúlka,
sem hefir dottið af baki og me.tt
sig flutt til spítalans, þar sem lækn-
irinn vinnur. Þessi stúlka, sem heitir
Ina, og læknirinn dragast hvort að
öðru, og endar ineð því að þau
ganga í lijónaband. Takast með
þeim góðar ástir.
Þeim skugga bregður þó á hjóna-
bandið að læknirinn er aldrei
heima og er ekki laust við að Inu
finnist nóg til um hið mikla sam-
starf milli inanns síns og Steve. —
Hún býður Steve heim og málið
berst á góma. Gefur Steve þá skýr-
ingu að hún og læknirinn sjeu að-
eins tengd bönduni starfsins, en
engum öðrum.
En eftir þetta heimboð verður
Steve þess vís að hún elskar lækn-
irinn og eftir að hún eitt kvöldið
hefir læðst að honum og' kysl
hann sofandi, ákveður hún að segjn
upp stöðu sinni sem hjúkrunarkona
við spítalann. Læknirinn gerir sem
hann getur að snúa henni aftur með
þetta áform, en án árangurs. Þegar
hún er farin verður hann ekki riiönn
um sinnandi, svo að konan hans fer
til Steve og biður hana að koma
aftur. En þegar Steve segir Inú að
hún elski læknirinn, þá gerir hún
ekki frekari tilraunir til að fá hana
heim.
Við erum aðeins i miðri mynd.
Hvað kemur næst?
Kvennalœknirinn er skemtileg og vel
leikin mynd, slungin áhrifarikum
þáttum úr mannlegu sálarlifi.
Stefán Guðlaugsson Gerði, Vest-
mannaeyjum, varð 50 ára 6.
þessa mánaðar.