Fálkinn - 10.12.1938, Page 6
6
F Á L K I N N
Flutningamaðurinn gengur í svefni.
- - Mjer er alveg hjartanlega sama,
hvorl yður líður nokkuð betur ....
en fyrirlesturinn get jeg ekki hætt
við ntína.
Einu sinni lofaðirðu því, að
lesa allar óskir mínar út úr augun-
um á jnjer.
Já, en jeg vissi það ekki þá,
að ástin gerir mann blindan.
Ungi kandídatinn kemur inn á
skrifstofu prófessorsins, sem er nokk
uð viðutan. Prófessorinn spyr vin-
gjarnlega:
— Hvernig líður föður yðar?
En af svip kandídatsins sjer hann,
að spurningin er ekki viðeigandi
Og man nú, að kandídatinn hefir
inist föður sinn, svo að hann bætir
vandræðalega við:
Er hann dáinn ennþá?
Xú, svo ])jer skrifið glæpa-
mannasögur .... jeg skal skrifa
næsta kOfJann .......
Þjer hafið gert yður sekan um
of marga flónskuna, ungi maður, til
þess að jcg vilji gefa yður dóttur
mína.
Jeg strengi þess heit, að þetta
skal verða sú síðasta.
Anna litla: Heyrið þjer kennari,
verða storkarnir sem koma með
Iitlu prinsana og prinsessurnar kon-
unglegir hirðsalar?
Þú hefir sorgarband um hand-
logginn. Er einhver nákominn ætl-
ingi þinn dáinn?
Nei, en i strætisvagninum
hjerna um daginn brendi maður
stórt gal á ermina mína með vindl-
inum sínum.
S k r í 11 u r.
Xærsýni kvenfornsalinn: - Gamla
pelskragann get jeg ekki gefið neitt
fyrir .... hann er möljetinn!
IIætiuleg freisting.
Bankaræninginn tekur ryksuguna
í j)jónustu sína.
m
Copyrighi P. I. B. Bo* 6 Copenhagen
(D 4* »?****■ á
Nr. 526. Adamson tekur ryksuguna fram yfir hrifuna.
— Af hverju felurðu hattinn þinn
undir stólnum. Ertu hræddur um,
að honum verði stolið?
— Nei, jeg er hræddur um, að
einhver þekki hann aftur.
IIjá augnlækninum.
Þjer eruð afar nærsýnn maður
minn. Hvað stundið þjer?
Jeg er stjörnufræðingur.
Eru allar dætur yðar giftar,
herra stórkaupmaður?
Nei, jeg hefi tvær fyrirliggj-
andi ennþá.
Hvernig gengur það með þessa
nýju stoppunarvjel þína?
Ágætlega. Undir eins og jeg set
liana af stað þá stoppar hún.