Fálkinn


Fálkinn - 10.03.1939, Blaðsíða 12

Fálkinn - 10.03.1939, Blaðsíða 12
12 F Á L K I N N WYNDHAM MARTYN: 33 Manndrápseyjan. ur, og liann dró andann rykkjótt eins og Jiann væri að renna niður bita, sem væri of stór fyrir vælindað. Trent vonaði a'ð það mundi sjóða upp lir og sannleikurinn koma í Ijós. En það léið ekki á löngu þangað til AJiiee liafði stilt sig aftur. „Setjum nú svo, að jeg liefði skáldað upp þennan Fratton lil þess að sjá mjer til gamans, livernig álirif þessar sögur mínar liefðu á fólkið Iivað þá? Ef það er glæp- ur þá eru margir frægir menn glæpamenn.“ „Það er ekkert óheiðarlegt í því, jeg' er sammála yður um það,“ sagði Trent. Hann mintist upplogna „frændanum i Ástralíu,“ sem hann var vanur að nota til skýringar á auðæfum sínum, í þann tíð sem hann liætti að skrifa sögur og gerðist stórglæpamaður, en þá iðju liafði hann lagt á hilluna árið 1917 er hann fór. í stríðið. „Sjerstaklega af því, að þjer liafið gert þetta býsna vel. En jeg geri ráð fyrir, að þjer sjeuð enn færari morðingi en þjer eruð skáld.“ Mr. Ahtee geispaði aftur. „1 þesskonar málnm er alt undir sönnunum komið,“ sagði hann. „Víst er það. Þessvegna var það óhyggi- legt af yður að skilja eftir inniskóna yðar i nótt. Erissa kannaðist við hann í morgun. deg hafði falið mig bak við hljóðfærið og sá yður þegar þjer komuð ofan til að leita að honum klukkan hálffjögur í morgun. Þá voruð þjer grímulaus og voruð í öðrum náttfrakka, og í tennisskóm, og þjer funduð hvorki skóinn nje knattstöngina" „Þjer hafið ekki nokkra sönnun gegn mjer —■ þetta eru aðeins ímyndanir og aðdróttanir.“ „Eruð þjer viss um það?“ Trent liorfði brosandi á hann. „Hvað kom yður til að drepa Eliot Jaster?“ spurði hann upp úr þurru Eina sekúndu leit svo út, sem Ahtee ætl- aði að skifta skapi, en aðeins eina sekúndu. Hann yfirbugaði með erfiðismunum ótt- aún, sein hafði glampað í augunum á hon- um og fór svo að skellihlæja. i „Þjer eruð brjálaður,“ sagði hann með liæðnishlátri. „Það merkilega er,“ lijelt Trent áfram rólegur og brosandi, „ að það er þessi sjó- ræningi yðar, sem verður yður að falli. Það var brjef frá frú Hvdon Cleeve lil eins kunningja síns, sem olli því að við Maims komum hingað. Hún sagðist vera í dauð- ans angist og óskaði einskis frekar en að komast hjeðán, frá Fratton og undan bölv- un hans. Þetta varð til þess að jeg fór að rannsaka, hvort þessi Fratton liefði nokk- urntíma verið til, og komst að raun um, að svo var ekki. Það var dálitið óþægilegt fyrir yður, finst yður ekki?“ „Eruð jjjer sá listamaður sem þjer þyk- ist vera?“ Án þess að gorta þá þykist jeg vera það,“ sagði Trent og hló, „en að vísu hefi jeg ekki helgað mig málaralistinni, ef það er það, sem þjer eigið við.“ „Þjer eruð ieyninjósnari ?“ spurði Ahtee. „Ekki sem atvinnumaður. En jeg hefi gaman af að róða gátur, sem aðrir liafa gefisl upp við, eða í þessu tilfelli að snuðra uppi nýjar gátur. Jeg sje/að þjer luigsið yður að múta mjer, en það stoðar ekki, þvi að jeg á eins mikið af peningum og mig' langar að eiga. Það lá við að jeg væri biiinn að lofa könunni minni að hætta þess- ari uppáhaldsiðju minni, en jeg gat ekki staðisl freistinguna þegar jeg' sá brjef frú Cleeve til Curtis M’.eld. Jeg færði henni peninga frá honum, sem hún borgaði spila- skuldina sina með. Ef þjer atliugið þetta nánar þá sjáið þjer, að við Maims erum ekki iijerna fyrir blábera tilviljun. Augnaráð Ahtees var ekki eins örugt og það hafði verið áður. „Það hefir komið fyr- ir áður, að íólki hefir skolað þarna upp ó skerið,“ tautaði hann. „En það hefir aldrei komið fyrir, að menn liáfi komist lifandi hjeðan til meginlandsins á þessum tíma árs. Eruð þjer það flón, að ætla að reyna það?“ , Flón ei ekki rjetta orðið,“ tólv Trent fram i. „Jeg liefi lofað konunni minni að vera kominn til London á jólakvöld, og jeg vil ekki láta hana verða fyrir vonbrigðum.“ „Það er ógerningur, segi jeg,“ öskraði Ahtee ákafur. Aldrei á æfi sinni hafði hann brunnið af hatri til nokkurs manns eins og til þessa mr. Anthonv frá Boston. „Þjer eigið við,“ sagði Trent, „að þjer getið ekki komist til meginlandsins. Jeg er sammála yður um það. En fólk segir um mig, að jeg sje altaf heppinn. Það kemur aðeins af því, að jeg geri mínar ráðstaf- anir. Til dæmis þá gerði jeg ráðstafanir til þess að komast lijeðan aftur þegar jeg hefði lokið erindinu, áður en jeg fór liingað. Nú hefi jeg lokið erindinu. Jeg álít að þjer hafið drepið Jaster, jeg veit að þjer dráp- uð Tilly Maims og jeg hefi sannað, að þjer reynduð að drepa frú Hydon Cleeve og mig. Jeg verð kominn til London fyrir jól.“ Trent stóð upp og tók snæri upp úr vasa sínum. „Þetta er ein varúðarráðstöfunin. Þjer .sjáið að jeg hefi með mjer spotta til að binda yður. Ef þjer veitið viðnám þá ber jeg yður í hausinn svo að þjer fallið i rot. Standið upp!“ Um augnablik brunnu augLin sem störðu á Trent af hatri og morðsýki. En aðeins augnablik. Svo náði Ahtee stjórn á sjer aft- ur og Ijet binda sig. „Jeg hefi orðið æfingu í þessu,“ sagði Trent meðan hann var að fjötra á honum hendurnar. „Og jeg er meistari i að mýla menn og setja á þá bitil. 1 fyrstu lá við að jeg kæfði fangana mína, en nú geta þeir andað en ekki hljóðað." Tient setti Ahtee inn í klæðaskáp og læsti honum síðan. Lvklinum stakk Jiann i vasa sinn. Hann leit kringum sig í stof- Linni; þar Jiafði verið sópað og rúmið var uppbúið, svo að hann gerði ekki ráð fyrir að vinnufólkið kæmi þarna fyrst um sinn. Það var einnig ósennilegt, að Erissa kæmi. Trent sá úl um gluggann í ganginum, að hún var í golf með Cleeve. Veslings Erissa nú fjell grunurinn lika á hana. Var hún samsek föður sínum? Trent hitti Phyllis ög langömmu henn- ar í anddyrinu. „Mr. Trent,“ sagði gamla konan. „Þjer verðið að miskunna yður yfir Phyllis og lofa henni að ganga út sjer til skemtunar með Barton.“ Hún leit á hann. „Hversvegna eruð þjer svona glaðklakkalegur á svipinn?“ „Það er rjettmætur sjálfsþótti," sagði liann hlæjandi. „Má jeg fara út núna?“ spurði Phyllis, „jeg hefi verið góða barnið svo lengi.“ „Það er dálítið áríðandi, sem jeg þarf að segja ykkur öllum,“ sagði Trent, „farið þjer út á golfvöllinn og sækið Erissu og bróður vðar. Vitið þjer hver Elmore er?“ Hann leit spvrjandi á Dayne. „Jeg hefi ekki sjeð hann siðan við morg- unverðinn.“ Það leyndi sjer ekki að sam- komulagið milli lærisveins og kennara var bágborið. „Jeg skal biðja Cleeve að finna liann.“ Þegar þau voru farin vatt frú Cleeve sjer að Trent. „Hvað er það sem þjer ætlið að segja okkur?“ „Það er nú ekki eins mikið og jeg gjarn- an vildi. En kanske. þykir yður frjett í því, að húsbóndinn okkar er lokaður inni i klæðaskáp, bundinn á liöndum og fótum og með sokk í munninum." „Mr. Ahtee?“ hrópaði hún. „()g Iivers- vegna?“ „Vegna þess að liann hefir revnt að drepa yður og mig og Iiefir drepið Tilly. Jeg hefi sakað hann um morð Jasters líka, en það er ekki sannað ennþá. En nú bíð jeg þess með eftirvæntingu að sjá, livernig Cleeve tekur þessu, með tilliti til Erissu, jeg vona, að þjer hjálpið mjer til að fá hann til að taka þessu stillilega og skyn- samlega. Jeg neyðist til að spyrja hana margra spurninga, sem hann mun reiðast. Jeg vona að hún sje ekki samsek föður sín- um, en það er ekki víst. Jeg sagði Ahtee, að hún hefði kannast við skóinn hans, en í rauninni roðnaði hún og leit á mig þess- um merkilegu svörtu augum og sór og sárt við lagði að hún hefði nokkurntíma sjeð þennan inniskó. Jeg hjelt skónum og núna þegar jeg læsti Ahtee inni í klæðaskápnum þá sá jeg hinn skóinn þar. Hversvegna laug Erissa ?“ „Hún er ekki glæpamaður,“ sagði gamla konan, „það sjer maður í hverjum drætti í andliti hennar. Það mundi riða Cleeve að fullu ef hún væri það.“ „Kanske það (sje það sem hún vill ?“ „Hvernig þá?“ „Hafið þjer ekki tekið eftir því, að þeg- ar undantekin er koma mín liingað, þá hef- ir ekkert gerst hjer, sem ekki hefir verið ráðið fyrirfram. Jaster og Barkett höfðu verið svarnir óvinir árum saman, og voru aldrei boðnir í samkvæmi saman, hjer hitt- ast þeir og Jaster er drepinn. Allir sem vissu Um þetta gamla hatur hjeldu að Bar- kett væri morðinginn. Hefði hann verið það mundi hann hafa sjeð sjer fyrir miklu sterkari vörn, nú treysti liann á sannleik- ann, en hann er kenjóttur og hefir komið mörgum á gálgann." „En þvi skyldi Alitee .... ?“ byrjaði hún. „Bíðið augnablik,“ sagði hann. „Reynið að hugsa yður einhvern mann, sem hefði haft ástæðu til að reyna að hefna sín á Jaster, Barkett, yður og fjölskyldu yðar. .Teg veit ekkert um einkamál vðar. En það gerið þjer. Hugsið yður vel um. og minnist svo ekki einu orði á það sem jeg hefi sagt, fyrst um sinn. Þarna koma hin.“

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.