Fálkinn - 17.03.1939, Page 11
F Á L Iv 1 N N
11
Hjálpið fuglunum!
A veturna er stundum mjög erfitl
l'yrir litln fugluna að al'la sjer fæðu,
og ]jví er nauðsyn að hjálpa þeim
lit þess. Hjerna á myndinni sjáið
þið fóðurkassa handa litlu vinunum
okkar. Fylgja nokkrar leiðbeiningar
um hvernig á að búa hann tit.
Mynd 1 sýnir hvernig fjöður er
húin til með því að vefja málm-
þræði utan um sívalt prik. Þessi
fjöður er hengd upp í trjágrein
(mynd 2) og er lilvalin að setja í
hana nokkrar matarleifar, — og auk
þess er mjög gaman að sjá fuglana
róla í fjöðrinni meðan þeir eru að
kroppa í sig matinn.
Það er hægt að búa til ágætl
„fóðurhús“ úr djúpri blikkdós,
(mynd 3), sem boruð eru á tvö göl,
eins og sýnt er á myndinni. Draga
stálþráð í gegn um götin og festa
svo dósina við trje eða stólpa; legðu
svo fuglamat inn i dósina. Eða þá
búðu til kassa eins og sýnt er á
mynd 4, og hengdu hann liátt upp
við vegg, svo að kötturinn komist
ekki i hann. Fjöðrin, mynd 1. er
l'est upp i miðjan kassann, en mat-
ur ýmiskonar er festur i hana, — i
botninn á kassanum er svo stráð
fuglafræi. í kassanum fá litlu vinirn-
ir fæðu og hlýju, þegar veðrin gerast
ströng.
: rrf
;
: 23
22 i----
26
Í6’ ;,8 piTt
Tiglamyndir af dýrum
Kanínu er breytt í kengúru. Teikn-
ingin af kanínunni er límd á pappa
og er skorin út eftir punktalinunum.
Að því loknu eru svo bútarnir settir
saman, svo að þeir mynda kengúrú,
og sjáið þið hjer mynd af henni.
lJessi samsetning getur valdið ykk-
ur án efa miklum heilabrotum og
óvíst að þið ráðið við hana. Og því
konumi við með lausn i næsta blaði.
Ungur maður kom inn í járnbraut-
arklefa í sama bili og lestin var að
fara. í klefanum var aðeins einn
maður, stór og feitur, sem hallaði
sjer út um gluggann og var að kveðja
kunningjana. Ungi maðúrinn tók
sjer sæti og fór að lesa í blaði.
Þegar lestin fór af stað dró feiti
maðurinn upp gluggann, sneri sjcr
við og koma auga á unga manninn
og sagði með þjósti:
Jeg ætla að benda yður á, að
þarna sit jeg!
Gerið þjer svo vel, svaraði
ungi maðurinn. Sitjið þjer bara á-
fram.
Hvað fjekst þú af 10.000 krón-
unum, sem hún systir þín vann í
happdrættinu.
Jeg fjekk mág.
Pjetur hinn hugvitssami ú sleffa-brautinni.
19) Brosandi heilsaði Hawkins á-
horfendunum, sem klöppuðu alt
hvað af tók. Eftirvæntingin var á
hæsta stigi. Hringvegurinn náði
næstum því yfir alt sviðið. Það
varð að draga Hawkins á kaðli upp
i bílinn, sem stóð efst uppi á hring-
brautinni. En þar átti aksturinn að
hefjast.
20) Hljóðfæraslátturinn yfirgnæfði
alt annað. Jerry kom inn á sviðið
í fallegum trikotbúningi. Undir fjöl-
leikahúshvelfingunni, rjett fyrir of-
an liringbrautina, var trapesan, þar
sem Jerry átti að sýna kúnstir sin-
ar, meðan faðir hans, Hawkins for-
stjóri, undirbjó ökuatriðið. Auðvil-
að varð jjessi áhættufulli akstur að
ganga í fljúgandi fartinni, annars
gat vagninn ekki haldið sjer á spor-
inu — og þar sem aksturinn gat
aðeins staðið yfir nokkrar sekúndur,
hafði Hawkins ákveðið, að Jerry
skyldi sýna listir sinar í loftinu á
undan og eftir
21) Brosandi gekk Jerry fram á
leiksviðið og hneigði sig fyrir áhorf-
en'dunum, en í sama bili heyrði
hann einhvern liávaða á bak við
sig. Maður ruddist i hendings-
kasti framhjá þjónunum, sem reyndu
að tefja för hans, og tii Jerry. —
Jerry sá strax að þetta var sami
maðurinn, sem hafði sjeð um fyrir-
komulag heljartunnunnar. Maður-
inn hrópaði til Jerry: „í guðanna
bænum fáðu föður þinn til að hætta
við aksturinn. Það er hætta á ferð-
um!“
Getur Jerry varnað slysi —
og hvað er eiginlega aff
gerast? Sjá næsta blað. •