Fálkinn


Fálkinn - 24.03.1939, Blaðsíða 2

Fálkinn - 24.03.1939, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N P ' " " ' .. ■■ ^ Ljósmyndastofa Vigfúsar Sigurgeirssonar Bankastræti 10. Sími 2216. Vinsælustu myndirnar eru nú teknar á ljósmyndastofu vorri. Fullkomin áhöld og fagleg þekking. Nýtísku Ijósaútbúnaður. Reynið sjálf, með því að láta mynda yður hjá okkur. Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari. i i i i ... GAMLA BlÓ. Ný kvikmynd frá Gloria fjelaginu verður bráðurn sýnd i Gamla Bíó. Heitir hún: Sjómaður í lunclgöngu- legfi, og er hún eins og nafnið gef- ur bendingu um gamanmynd. Höfuð- hlutverkið, Axel Nord fyrsti stýri- inaður, er leikið af þýska gaman- leikaranum Adolf Jahr, sem notið hefur hvarvetna mikillar hylli á „hvíta ljereftinu“ á síðari árum. — Skipafjelagið „Transocean“ missir viðskiftavini sína einn af öðr- um eftir að „Fragt-forbundet“ hef- ur verið stofnað og það leikur meira að segja grunur á að hið síðar- nefnda fjelag hafi mútað sumum ráðamönnum Transocean til að koma þvi á knje. Forstjóri Transocean grunar að það sje Bergmann skipamiðlari, sem öðrum fremur eigi sökina á þessu, en hann hefur verið rekinn frá störfum af honum vegna óreiðu. Bergmann er að öðru leyti ógeðs- legur náungi og skrifstofustúlkurn- ar liafa engan frið fyrir honum. Þar á meðal Ingrid Bille, systur- dóttir Rundliolms skipstjóra á Trans- ocean skipinu „Colombo“. En Rundholm hefur sannanir fyrir því að verið sje að grafa undan fjelag- inu. „Colombo" kemur í höfn, en skipstjórinn getur ekki farið í land vegna gigtar. Skipstjórinn er hrædd- ur um að Holmen 2. stýrimaður standi í sambandi við bófann Berg- man í því að grafa undan Trans- ocean. Upplýsingarnar sendir skipstjór- inn í innsigluðu brjefi með 1. stýrimanni Nord til skrifstofu Trans- ocean, en til þess að Holmén gruni síður að hann hafi hann grunaðan biður skipstjórinn Holmén að hafa gát á Nord, sem hann treysti ekki allskostar. — — Og nú fylgjum við- sjómann- inum í landgönguleyfi hans. Margt mótdrægt fær Nord að reyna, þeg- ar hann kernur í land. Elskan hans, hún Greta, hefur gifst öðrum meðan hann var á sjón- um — en þá er Áróra ef Greta bregst. Hann er nærgöngull við Ingrid Bille, sem hann veit ekki að er systurdóttir skipstjorans — og Bergman skipamiðlara slær hann niður, þegar honum finst hann vera dónalegur við Ingrid. Bergmann kærir þenna glaða, syngjandi sjómann fyrir lögreglunni og hún grípur liann einmitt á þeirri slundinni, sem hann er að ákveða slefnumót með Ingrid á „Voninni“ þá um kvöldið. Nord er slept út eftir fáa klukku- tíma og um kvöldið finnast þau Ingrid á kaffiliúsinu. — Holmén, sem altaf er á hælunum á honum kemur þangað með nokkra slags- málamenn með sjer. Gera þeir aðsúg að Nord. Eh liann tekur mannlega á móti og slær þá alla niður. En í sama bili og slagnum er lok- ið kemur stúlka inn á „Vonina“, sem kallar hann elsku vininn sinn, en það hefur þær afleiðingar að Ingrid rýkur á dyr. Landgönguleyfinu er lokið að þessu sinni og Nord fer um borð. Og nú er eftir að vita hvernig fer með þau Nord og Ingrid. Lok myndarinnar svarar því. Myndin er ljett og fjörug og kem- ur áhorfendunum áreiðanlega i gott skap. Hans (2 ára): — Pabbi, úrið sein hann Villi gaf mjer á jólunum, vill ekki ganga. Pabbi: — Það var merkilegt, að það skuli ekki endast lengur. Það kostaði sand af peningum. Hans: — Já, og þó setti jeg hvert einasta hjól á sama stað og áður. Nýjar bækur. Fálkanum hafa borist nýlega tveir merkilegir bæklingar. Annar er eftir Árna G. Eylands: Um aukna karl- öflurækt en hinn er eftir Ólaf Jóns- son: lielgjurtir. Báðir eru þeir Ey- lands og Ólafur löngu þjóðkunnir menn fyrir áhuga sinn og dugnað á sviði ræktunarmálanna, og allir þeir, sem áhuga hafa fyrir þeim málum eiga að lesa bæklinga þeirra. í þeim eru margar merkilegar leið- beiningar i garð- og jarðrækt, sem koma í góðar þarfir áður en vor- yrkjurnar byrja. Trúin á islenska mold þarf að aukast, og þjóðin verður aldrei um of hvött til þess að sýna henni rækt. Þeir Eylands og Ólafur hafa nú um margra ára skeið verið forystumenn í því að efla þessa trú meðal lands- ins barna, bæði í ræðu og riti, og hafa þeir hlotið verðskuldaðar þakk- ir fyrir, sem vaxið hafa frá ári til árs. Blaðið vill brýna fyrir sem flestum að lesa þessa bæklinga, og öllum sem við ræktun fást eru þeir nauðsynlegir. PÁSKARÆÐA. Eftir Pál Sigurðsson. Snæbjörn Jónsson bóksali liefir fyrir skömmu gefið út hina frægu páskaræðu síra Páls Sigurðssonar, síðast prests að Gaulverjabæ. Þessi ræða olli miklum deilum á sínum tíma, þar sem hún þótti brjóta all- mikið í bág við ráðandi kirkju- kenningar. Þó að liðnir sjeu margir áratugir siðan hún var flutt og margt hafi breyst, þá talar hún enn til lesandans. Sannleiksást prjedik- arans, karlmannlegur þróttur og frá- bær mælska einkenna hana. Svo áhrifarík varð ræðan að af mörgum liefir hún verið talin valda straumhvörfum í íslenskri guðfræði. Það var þarft verk að gefa þessa frægu prjedikun út, þegar litið er til þess að áður liefir hún ekki verið í höndum nema þeirra sárfáu, sem eiga prjedikanasafn síra Páls. Framan við ræðuna er forspjall um síra Pál eftir útgefandann, gef- ur það góðar og glöggar upplýsingar um hinn mæta mann, er kallaður var hjeðan um hádegi æfi sinnar. Snæbjörn Jónsson á mestu þakkir skildar fyrir útgáfu ræðunnar. Hann hefir sýnt það nú sem fyr, að hann gefur það eitt út, sem er svo ágætt, að það á skilið að lifa lengi og ná til sem flestra. Fáir bókavinir hjer í bæ munu lialda svo páskana að þeir eignist ekki ræðuna og lesi sjer til uppbyggingar, ánægju og sálubóta. Skiðakvikmyndir. Skíðadeild í. R. hefir fengið hing- að sænskar skiðakenslufilmur, sem verða sýndar í Nýja Bíó 27. og 28. mars kl. 7 e. h. Myndirnar eru þrjár: I. „Den moderne skidskolan“. Lautnant Siggi Bergmann sýnir þar það nýjasta í skíðaleikni, en hann er talinn einn af þeim sem náð hefir mestri fullkomnun á þvi sviði á Norðurlöndum. Myndin er tekin við „Skidframjandets“ skíða- skóla i Storlien og Riksgransen. II. „Rationell skidtriining“. Kapteinn Olle Bimfoi’s sýnir hjer ýmsar þjálfunaræfingar fyrir skíða- göngu, er þar margt að læra fyrir skíðafólk. III. „Hur man bygger en snöbivack“ (Igloo). Mjög skemtileg og fræðandi mynd. Hr. Georg Tuvfeson skiðakenn- ari flytur stutt, fræðandi erindi fyr- ir sýningarnar og útskýrir mynd- irnar um leið og þær eru sýndar. Myndirnar verða sendar út þ. 30. þ. m. og er því þetta eina tæki- færið til að sjá þær. Það má búast við fjölmenni á þessar sýningar í. R. Skírteini fyrir báðar sýningarnar kosta kr. 3.00 og fást í Stálhúsgögn, Laugaveg 11 og hjá Árna B. Björns- syni, Lækjargötu 2. — Er læknirinn, sem þú ætlar að giftast ríkur? — Auðvitað. Heldurðu að jeg sje að gifta mig vegna heilsunnar? VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Bitstjórar: Skúli Skúlason. Sigurjón Guðjónsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltestcd A ð alskrifs tofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjötsgade 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millim. Erlendis 24 kr. HERBERTSprcn/. Skraððaraþankar. íslendingar eru farnir að tala um bætiefni og þessháttar og læknarnir telja þjóðina í hættu stadda, ef hún fái ekki appelsínur og útlent græn- meti að jeta. Aumingja forfeðurnir, sem urðu að fara á mis við þetta .góðgæti og fengu ekki einu sinni rúgmjel nema af skornum skamti! Ileilsufræðingarnir liafa komist að þeirri niðurstöðu, að hverri þjóð sje hollast að leggja það sjer til munns, sem vaxið er upp úr mold hennar sjálfrar. Þeir telja meira að segja, að manninum sje hollast að klæðast þeim efnum, sem unnin eru í landinu sjálfu. En þar fyrir er eigi sagt, að hægt sje að fá ýms nytsöm og jafnvel ómissandi efni úr útlendri fæðu. En áður en krafist er útlendra matvæla verður annað að liafa verið framkvæmt. Sem sje rannsókn á þvi, hvaða efni eru í íslensku fæðunni og hvaða efni má fá úr henni, með því að nota hana skynsamlegar en gert er nú. Og svo innlend fram- leiðsla aukin af þeim heilsusamlegu fæðutegundum, sein við höfum of lítið af, en læknarnir telja ómiss- andi. Slik rannsókn þarf að fram- kvæmast fyrst og fremst. íslenskar húsmæður liafa yfirleitl ekki fræðilegri mentun i matreiðslu fyrir að fara. Ilúsmóðurstarfið er orðið eitt af þeim fáu störfum í þjóðfjélaginu, sem menn geta vaðið inn í „með skítuga skóna“ — án þess að kunna nokkuð til þess. Menn verða að fara á námskeið til þess að fá að hirða um vjel i mótorbát, en maður þarf ekkert námskeið til þess að laka að sjer að fæða heimilið og ala upp börnin. Og þó er það húsmóðirin sem gegnir vandasamasta starfinu í mannfjelaginu. Danir hafa nýlega veitt stórfje ti! þess að rannsaka mataræði fólks í sveitum og kaupstöðum i Danmörku, og það vill svo einkennilega til, að það er íslendingur, sem hefir verið settur yfir þessar rannsóknir. Þetta gæti orðið okkur áminning um, að það sje máske ekki allskostar rjett, að lúra ennþá á eyrað og láta alt dankast eins og það hefir gert i þúsund ár. Og af því að nú eru krepputímar þá má njinna á, að þetta er í hæsta máta fjárhagslegt atriði. Það veit enginn hve mikið fje fer forgörðum fyrir óviturlega notkun þeirra matvæla, sem fólk hefir yfir að ráða, og það veit eng- inn hve mikið líftjón og heilsutjón þjóðin bakar sjer með óviturlegu matarhæfi.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.