Fálkinn - 24.03.1939, Page 7
FÁLKIN N
7
ss-o ■ s
Marion Andersen, hin dökka söng-
kona, seni þekt er víða um heim,
fær ekki að syngja í Washington,
þár sem fjelagið: „Dætur amerisku
byltingarinnar“ hefir neitað að lána
lienni hús. í mótmælaskyni hefir frú
Roosevelt sagt sig úr fjelaginu.
VERÐLAUNUÐ MYND.
í ljósmyndakepni í London fyrir
árið sem leið fekk þessi mynd fyrstu
verðlaun. Hún er tekin af Ijósmynd-
ara i London og er af spanskri frú,
í katalónskum þjóðbúningi, i smá-
bæ skamt frá Barcelona.
CAROL KONUNGUR Á VEIÐUM.
Þegar Carol Rúmenakonungur var
á ferð í Frakklandi ekki fyrir löngn
siðan efndi Lebrun forseti til mikill-
ar veiðifarar honum til heiðurs.
Myndin er tekin á því augnabliki
sem hann hleypir af byssunni.
HÁTÍÐAHÖLD í STRASSBURG.
Strassburgarar hafa haldið 20 ára
aírnæli i tilefni af því er Frakkar
hjeldu innreið sína i borgina við
lok stríðsins. Myndin sýnir gamia
hershöfðingjann Gouraud, ásamt
nokkrum stúlkum í þjóðbúningi.
Pllll
í.m-ííS
SKIPSSKRÚFAN í
„QUEEN ELISABETH".
Hjer gefur að líta eina af hinum
stþrslegnu fjögrablaðaskrúfum, sem
knýja eiga áfram liið nýja enska 85
þusund tonna úthafsgufuskip „Queen
Elisabeth“, sem nýlega er hlaupið
af stokkunum.
NANSEN SKRIFSTOFAN.
Mynd frá Nansen flóttamanna-
skrifstofunni í Genf, sem fekk frið-
arverðlaun Nobels fyrir árið 1938.
Yfirmaður skrifstofunnar Michael
Hansson situr við borðið, og við
lilið hans stendur Coroni aðstoðar-
maður hans.
FRÚ CHIANG-KAI-SHEK.
Frú Chiang-kai-shek kona kín-
verska lýðveldisforseta, er alkunn
fyrir það mikla starf, er hún vinnur
við hlið mannsins sins, ekki síst síð-
an styrjöldin í Kina skall á. Á
myndinni er hún að sauma föt
handa kínverskum hermanni.
Joseph Meister var sá fyrsti sem
Pasteur læknaði af hundaæðinu með
blóðvatni sínu. Hann var þá 9 ára
gamall. Nú er hann dyravörður við
hina frægu Pasteurstofnun í Paris,
sem nýlega varð 50 ára. Á myndinni
er hann að virða fyrir sjer styttuna
af velgjörftarnmnni sínum. —
Hjónaefnin, Jim Mollison flugmað-
ur og frú Phyllis Hussey, voru með-
al gestarina í veislu mikilli í London,
er haldin var í heiðursskyni við
hraðaksturskappann Eyston.
Við sýningu á nýtísku hárgreiðslu,
sem nýlega fór fram í París, mátti
sjá í „moderniseraðri14 mynd sams-
konar liárgreiðslu og algeng var i
fornöld í Rómaborg.
FRIÐARGJÖF TIL CHAMBERLAIN.
Kjörgrip þennan sendu íbúarnir í
Neucliatel i Sviss mr. Chamberlain
að gjöf fyrir það að bjarga heims-
friðnum i haust.
MIÐLANDSSKURÐURINN.
Nýlega var stærsti skipaskurður
Þýskalands vígður, en hann tengir
saman stórfljótin Rin og Elbu. Mynd-
in er tekin við Rothersee.