Fálkinn - 23.02.1940, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
- GAMLA BÍÓ -
„Unglingur elskar stúlku, hún ann-
an mann vill fá, og sá vill aftur aðra“
o. s. frv. Þannig var ástandið lijá
fólkinu, sem Heine lýsir í þessari
vísu og þessu kvæði, á sinn grát-
broslega hátt. í myndinni, Fallni
engillinn, sem sýnd verður í Gamla
Bíó á næstunni, er þetta svipað, þó
með þeirri breytingu, að sá, sem stúlk
an vill, vill hana líka. En það er nú
reyndar geysimikill munur, þegar
nánar er að gætt.
Það er revy-söngkonan Daisy
Heath, sem er aðalpersónan. Hún er
á vegum auðkýfingsins Sam Bailey,
|)vi að hann heldur fjárhagsléga uppi
leik þeim, er hún hefir hlutverk í.
Sam j)essi Bailey er bálskötinn í
Daisy, en liún hefir ekkert álit á
karlmönnum, telur þá mestu svika-
hrappa, og lætur ekki á sig i'á ást-
leitni Baileys. Þetta er einmitt árið
1917, en þá gengu Bandaríkin inn i
styrjöldina. Hinar nýju hersveitir
komu saman í New York, en þaðan
skyldu þær halda til Frakklands.
Einn nýliðanna heitir Bill Pettigrew,
l'raustur kúireki frá Texas. Eitt
kvöld, þegar Daisy Heath er á ferð
um borgina verður Bill fyrir bifreið
hennar, meiðist að vísu lítið, en
nærstaddur lögregluþjónn skipar bif-
reiðarstjóranum, að aka með Bill til
ferjunnar, sem flytur hann yfir til
hermannaskálanna. Hann fær því
j)arna bíltúr með leikkonunni, sem
gerir sig að vísu allmerkilega við
hann og gerir grín að honum. En
hann lætur það ekki á sig fá, en
verður skotinn í stúlkunni. Og þegar
þau koma að ferjunni sjá fjelagar
Bills hina fögru mey og verða held-
ur en ekki forvitnir, en liann segir
þeim, að þetta sje kærastan sín, og
þá vilja þeir óðir og uppvægir fá
að kynnast stúlkunni, og 'þar með
er Bill kominn i skrambans klípu.
Þessar þrjár persónur myndarinn-
ar, sem hjer hafa verið nefndar,
þau Daisy Heath, Bill Pettigrew og
San) Bailey, leika þau Márgarel
Sullavan, Jumes Stewart og Waller
Pidgeon.
Nýjar bækur.
HRUNADANS HEIMSVELD-
ANNA eftir Douglas Recd.
ÖII könnumst vjer við þjóðsöguna
um dansinn í Hruna — um fólkið,
sem dansaði sig til Helvítis. Það
undi við dans og dufl á helgum
stað, á helgri nóttu, gersamlega
andvaralaust um velferð sína ]>essa
heims og annars. — Það er ekki
úl í bláinn, að þýðandi hinnar
nýju bókar, velur tiénni nafn eft-
ir þessum Hrunadansi íslensku þjóð-
sögunnar. — Undanfarin ár hafa
stórveldin, — sem áttu að vera for-
verðir menningarinnar og þróun-
arinnar á þesum hnetti, — stigið
sturlaðan dans á glóðum upplausn-
arinnar, fótum troðandi velferð
miljónanna. Og nú eru þau líka óð-
fluga að sökkva niður í það jarð-
neska helvíti, sem þau sjálf hafa
magnað og búið sjer með skelfingum
styrjaldarinnar.
Einn þeirra manna, sem einna
athugulustum atigu hefir horft á
þennan trölladans, er enski l)laða-
maðurinn Douglas Reed. Hann lief-
ir árum saman verið nærstaddur
þar sem stórvægilegir stjórnmála-
atburðir hafa gerst og það væri
synd að segja, að hann hafi ekki
gefið nánar gætur að. Hann er t. d.
nákunnugur í Þýskalandi, dvalist þar
í sjö ár og fylgdist með falli lýð-
veldi'sins, valdatöku Hitlers, þing-
húsbrunanum o. s. frv. Auk þess er
Marteinn Einarsson, kaupmaður
Laug.'3Í, verður 50 ára 25. þ. m.
Pjetur Þörðarson, Laug. 159a,
varð 50 ára 22. þ. m.
hann víðförull um ýmis önnur lönd
og liefir kynt sjer og ritað um fjölda
stórpólitiskra atburða á síðari árum.
Hann er frjettaritari af guðs náð,
eins og sagt hefir verið um hann i
ritdómi , í stórblaðinu Daily Tele-
graph. Allir, sem gaman hafa af því
að fylgjast með í erlendum utanrík-
isstjórnmálum, hljóta að hafa skemt-
un af að lesa ])essa bók, þótt þeir
kunni e. I. v. súmir að hafa aðra
skoðun á hiutunum 'en höfundurinn.
Frásögnin er óvenjulega ljett og
Jeikandi, lesandinn finnur, að hann
fær söguna frá fyrstu hendi, það er
sjónarvottur, sem segir frá. Eiula er
hjer snjall hlaðamaður að verki og
kann að gera efni sitt læsilegt.
En bókin er meira en sundurlausl
l'rjeltaritaraspjall. Hún er jafnframt
Douglas Reecl.
kvikleg og lifandi sjálfsæfisaga. Og
höfundi tekst á undarlega heillandi
hátt að tengja hina stóru heimsvið-
burði við atvik úr eigin lifi. Tökum
eitt dæmi: Höf. er viðstaddur hina
Vigfús Guðmundsson gestgjafi
verður fimtugur þann 25 þ. m.
viðhafnarmiklu jarðarför Hinden-
burgs, hann lýsir öllu prjálinu: —
„Oflátungslegir riddarahjálmar
hreyktu sjer á skínandi sköllum.
Broddhúfur blikuðu ....“ „Skraut
og skrumgylling." Og höf. fer beina
lcið frá ])essari viðhafnarjarðarför
heim til að hitta móður sina, mikfð
veika. Hann fer af skyndingu til
London. „Þegar jeg kom þangað, var
hún dáin. Hún hafði ekki verið neitt
eftirlætisbarn hamingjúnnar. En alt-
:if þegar jeg kom heim í orlofi úr
stríðinu frá meginlandinu, hafði luin
verið þarna, setið við gluggann, ....
„Jeg gekk á eftir skrautlausu, hlóma-
snauðu kistunni hennar og sá hana
hverfa i jörðina.“ Takið eftir mót-
setningunni með þessum tveimur
jarðarförum. — Þarna eru engin
soratök. Og svo er víðar í þessari
bók.
FRÁ VESTUR-VÍGSTÖÐVUNUM.
Myndin er af frönskum hermönn-
um á bryndreka, sem eru að miða
vjelbyssunni á þýska hernaðarflug-
vjel.
ltabelais lá fárveikur. Læknarnir
\oru ekki sammála um, hvað þeir
ættu að gera við hann og lenli í
skömmuin við sjúkrabeðinn. Þá
skaul Rabelais fram í: Y, lofið
þið mjer að dcyja eðlilegum dauð-
daga!
Bókina gefur Menningar- og
fræðslusamband alþýðu út, en Mágn-
ús Ásgeirsson skáld hefir int af
hendi þýðinguna, og er hún góð
sem vænta má af Magnúsi.
Þess finnast víst dæmi, að fólk
finnur upp á þeim skolla að rifta
hjónabandi sínu og skilja, cn iðrast
svo eftir alt saman og vilja vera
hjón altur. Slíkt og þvílíkt finst okk-
tir, sem ekki höfum reynt þetta,
vera býsna kátlegar aðfarir.
Þetta er einmitt það, sem gerist í
kvikmyndinni Þau giftu sig aftur,
stm þau leika i Tgrone Power og
Loretta Young, sem allir þekkja.
Vicky og Raoul McLeish eru skil-
in. En svo hittast þau á baðstaðn-
am Miami, nokkru eftir skilnaðinn.
Þau verða bæði yfir sig glöð yfir
endurfundunum og fallast samstund-
ic í faðma og kyssast fast og lengi,
rjett eins og hjó.nabandið hefði al-
drei brostið — eða jafnvel eiínþá
heitara. En þá man Raoul eftir þvi,
að hann hefir ekkert leyfi til að
hlaupa svona beint til Vicky og
kyssa hana með kurt og pí, því að
hún er nú ekki lengur hans kona,
heldur annars manns, og sá maður
er ríkur verksmiðjueigandi og heit-
ir Bob Benton.
En þessi atburður verður nú samt
til ])ess, að þau hjónaleysin fara að
velta þvi lyrir sjer, hvort það hafi
ekki verið skrambans frumhlaup að
skilja samvistir. Þau eru bæði mestu
sprelligosar og sjást mörg af bros-
legum uppátækjum þeirra í mynd-
inni. En það er nú engan vegin
andskotalaust að ná saman aftur,
þar eð nú er kominn á milli þeirra
eiginmaður frúarinnar, þumbaraleg-
ur náungi, sen) kann ekki við ])essi
læti.
En vjer megum ekkert segja um,
hvernig sá hnútur leysist. En að alt
fari bærilega fyrir þeim Vicky og
Raoul, höfum við leyfi til að álykta
af nafni mvndarinnar: Þau giftu sig
aftur!
Myndin verður sýnd i Ngja Rió
bráðlega.
- NÝJA
BÍÓ -