Fálkinn - 20.09.1940, Síða 14
14
F Á L K I N N
Friðfinnur Guðjónsson, leikari, verður 70 ára 21. þ. m.
DE FONTENAY.
Frh. af bls. 3.
þessu eru sett fram frumleg viðhorf
til fagurfræðilegs mats á skáldskap
Jónasar Hallgrímssonar, litarlýsing-
um hans, skáldskaparnýgervingum
hans og málhreinsun.
í Skírni 1933 birtist ritgerðin
,,Arabisk menningm-áhrif“. Hefir
ritgerð þessi nokkuð breytt verið
prentuð á dönsku i „Dansk-islansk
Samfunds Aarbog“ 1934. Þetta er
fyrsta greinargerð um orð af ara-
biskum uppruna í norrænum málum
og fyrsta safn slíkra orða, er út
hefir komið. Fylgir þar með menn-
ingarsögulegt mat og niðurskipun.
Ritgerðin ,,Höfðingjabragur með
Aröbum og Islendingum“ kom í
Skírni 1934. Er þetta samanburður
á menningu og hugsunarhætti forn-
Araba og forn-íslendinga og er bent
á ýmislegt svipað, sem talið er stafa
frá því, að báðar þessar þjóðir búa
að vissu leyti við svipuð náttúru-
skilyrði og lífskjör.
Það er fjöldamargt fleira, sem
hontenay liefir skrifað, þótt ekki
sje rúm til þess hjer að drepa á
fleira.
Það sem hann ritar um málfræði-
lcg efni er aðallega um orðmyndun-
arfræði og samanburðarmálfræði.
Hefir liann sjerstaklegan áhuga fyrir
svokölluðum menningarorðum (Kul-
turord), sögu þeirra og uppruna. Af
íslenskum efnum er íslenskur skáld-
skapur að fornu og nýju helsta
hugðarefni lians.
— Þjer eruð vel að yður í forn-
málunum eigi síður en öðrum aust-
urlandamálum, er ekki svo? spyr
jeg de Fontenay.
— Ennþá les jeg Homer mjer til
ánægju á grísku, svarar sendiherr-
ann. — Auk þess les jeg auðvitað
latinu einnig hebresku og tyrknesku
og öll rómönsk mál.
— Hvernig hafið þjer kunnað við
yður lijer á íslandi?
— Jeg hefi altaf kunnað vel við
mig hjer. Jeg hefi ferðast mikið og
kynst landi og þjóð og eignast góða
vini til sjávar og sveita. Vil jeg nota
tækifærið til að biðja yður að flytja
gegnum blað yðar kærar þakkir öll-
um vinum mínum nær og fjær á
íslandi, fyrir gott samstarf, gestrisni
og vináttu.
Jónas Kristjánsson, læknir,
Grettisg. 71, verður 70 ára í dag
(20. þ. m.).
Stefán Gunnarsson, kaupm.,
verður 60 ára 26. þ. m.
Um leið og Fálkinn kemur þessari
hlýju kveðju sendiherra frændþjóð-
arinnar áleiðis, vill hann óska de
Fontenay allra heilla á sextugsaf-
mælinu. R. J.
Boðhlanp kringnm Reykjavík.
Boðhlaupið kringum Reykjavik
liefir aðeins farið tvisvar fram, en
er engu að síður orðið einn aðal-
þátturinn i starfsemi fjelaganna. í
vor hlupu fjórar sveitir, og sigraði
sveit K. R. í fyrra kepptu tvær og
sigraði þá Ármann. Var einnig búist
við að Ármann ynni í ár, en öllum
til undrunar vann K. R. eftir geysi-
harða keppni við Ármenninga. —
Hjer birtist mynd af sveit K. R.,
sem vann hlaupið. Hlaupararnir eru,
efri röð frá vinstri: Baldur Jónsson,
Guðmundur Gíslason, Karl Maack,
Ásgeir Guðjónsson, Sigurður Finns-
son, Knútur Hallsson, Gunnar Huse-
by, Þorsteinn Magnússon og Rögn-
valdur Gunnlaugsson. í neðri röð
frá vinstri: Sverrir Jóliannesson, Jó-
hann Bernhard, Óskar A. Sigurðsson,
Indriði Jónsson og Anton B. Björns-
son. Á myndina vantar Georg L.
Sveinsson.
Emanúet Cortes, yfirprentari í
Gutenberg, verður 65 ára í dag
' (20. þ. ,m.).
ilsherjarmót Í.S.Í.
í ór var búist við skemtilegu og
spennandi Allsherjarmóti. Stigakepn-
in varð þó ekki eins liörð og húast
mátti við, en mótið var engu siður
hið besta og árangrar góðir. Hjer
hirtist mynd af sveil K. R., sem
vann stigakeppnina. Mennirnir eru,
aftasta röð frá vinstri: Sigurður Ól-
afsson, Georg L. Sveinsson, Óskar
A. Sigurðsson, Indriði Jónsson,
Tryggvi Benediktsson og Þorsteinn
Magnússon. Miðröð frá vinstri: Anton
Björnsson, Haukur Claessen, Jóliann
Bernhard, Sveinn Ingvarsson, Sigurð-
ur Finnsson, Ingvar Ólafsson, Vil-
hjálmur Guðmundsson og Helgi Guð-
mundsson. Fremsta röð frá vinstri:
Kristján Vattnes, Benedikt Jakobs-
son, Erlendur Ó. Pjetursson, Sigurð-
ur S. Ólafsson, Magnús Guðbjörns-
son og Rögnvaldur Gunnlaugsson.
Best er að auglýsa í Fálkanum