Fálkinn - 20.09.1940, Side 15
F Á L K I N N
15
Esperanto útbreiðist.
Fyrir mörgum árum var háttsett-
ur foringi í hernum tekinn fastur
og ákæröur fyrir landráð. Eina sönn-
unin, sem menn liöfðu gegn honum
var sú, að hann hefði iært hið nýja
esperanto-mál, sem doktor nokkur í
Varsjá, L. Zamenhof að nafni, hal'ði
samið. Foringinn sat i svartholinu i
hálft ár og var loks látinn laus, því
að það þótti ekki nægileg landráða-
sök, að hann hafði lagt stund á
esperanto.
í dag eru esperantoiðkendur orðn-
ir heimsfjelagsskapur, sem viða er
studdur af ríkisstjórnum og háttsett-
um stofnunum, og bókmentir á esper-
anto eru nú orðnar 10.000 bindi.
í Danmörku hefir esperantohreyf-
ingin fest djúpar dætur. Þar eru
víðsvegar um landið 60 esperanto-
fjelög, sem liafa myndað samband
með sjer og gefur þetta samband út
blað og fjölda bóka. Og í Kaup-
mannahöfn er esperanto-stofnun,
sem lieldur skóla. Forseti hennar
er jugoslavneskur maður, L. Vasiljef
að nafni.
Um þrír fjórðu hlutar af orða-
forða málsins eru alþjóðaorð, sem
notuð eru um allan hinn mentaða
heim. Menn, sem kunna ésperanto
geta þvi að jafnaði gert sig skiijan-
lega fyrir öðrum, þó að þeir kunni
ekki esperanto. En sjálfar grund-
vallarreglur þessa máls eru svo auð-
veldar, að það tekur ekki nema
stuttan tíma að læra þær. Og fram-
burðinum er hagað þannig, að hljóð-
in i málinu koma fram í flestum
Evrópumálum.
Höfundur málsins, dr. Zamenhof
ólst upp innan um Gyðinga, Lit-
haua, Rússa, Pólverja og Þjóðverja,
i Bjalistok í Norður-Póllandi, og
honum leiddist liið sífelda þref og
metnaður um málin innbyrðis. Hver
einstakur maður vildi láta ávarpa
sig á sínu ináli, og sum málin þótlu
„ófínni“ en önnur. Þetta gaf Ulefni
til sífeldrar misklíðar, óánægju og
sundurlyndis og af þessari ástæðu
hugkvæmdist Zamenliof að húa til
mál, sem væri jáfnrjetthátt frá allra
sjónarmiði, hhitlaust mál. Til þess
að tryggja jafnrjetti annara inála
og til þessv að tryggja framtíð mála
smáþjóðanna. Þvi að það er reynt,
að þar sem tveimur málum lendir
saman, þá bíður annað málið ósig-
ur, gengur úr sjer, bjagast, og líður
jafnvel undir lok. Esjieranto er ekki
sett til höfuðs litlu málunum, lield-
ur þvert á móti til þess að vernda
þau. Með því að hafa alþjóðleg!
hjálparmál, þarf einstaklingurinn
innan um framandi tungur ekki að
liætta sinu eigin máli í orustu við
sjer sterkari tungur, heldur heldur
hann sinu máli fyrir sig. Prófessor-
inn Gwynn Jones frá Wales liefir
látið svo um mælt, að eina lífsvon
smáþjóðamálanna sje sú, að heim-
urinn eignist útbreitt hjálparmál.
Alþjóðasambandið hefir viðurkent
esperanto og það hefir sýnt sig, að
rnálið hefir firrt ýms vandræði með-
al' minnihlutaþjóðanna, sem liöfðu
annað mál en stórþjóðin, sem þau
lentu hjá. Og alþjóða-simasambandið
hefir einnig viðurkent esperanto
sem ,,lireint“ mál.
er miðstöð verðbrjefavið-
skiftanna.
Drekkiö Egils-öl
<>
♦
<>4
fatnaðarvörur:
RYKFRAKKAR REGNKÁPUR PEYSUR
MANCHETTSKYRTUR
HÁLSBINDI
FLIBBAR
SOKKAR
NÆRFÖT
hAlstreflar
NÁTTFÖT
AXLABÖND
SKINNHANSKAR
HATTAR falleg-t úrval
VASAKLÚTAR
fjölbreytt úrval
RAKAHÖLD
FERÐATÖSKUR
ULLARTEPPI
VATTTEPPI
fjölbreytt úrval.
»Geysir«
+9
♦<►
oo
♦♦
<►♦
<►♦
♦♦
<►♦
<►♦
<►<>
<►<►
♦<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<><►
<►<►
<►<►
<►<►
< ►♦
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
♦ <►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<><►
<►<►
<►<►
<><►
<><►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<►
<►<>
<►<►
♦ <►
♦ ♦
<►<►
KARLMANNASKOR
margar
tegundir
LÁGT VERÐ
nmn6ergs6neður,
tf* Allt með islenskiim skipunt! *
Líftryggingar
Brunatryggingar
Vátryagingarskrifstofa
Lækjargötu 2
Sighvatssonar
Sími 3171
DROTTNING
BLADALJÓSMYNDARANNA.
Þetta er ungfrú Wilma Kaspar,
sem amerískir blaðaljósmyndarar
hafa kjörið drotningu sina. Það lit-
ur helst út fyrir, að það eigi að táka
af henni mynd!
Flug-morðinginn.
Franski flugmaðurinn Armand le
Pokerville hefir játað á sig að liafa
framið fjögur ráðin morð. Hahn
ljet fórnardýr sín bíða bana við
flugslys, sem hann kom svo lævís-
lega fyrir, að engan grunaði neitt
fyrst í stað.
Le Pokerville var ekki atvinnu-
ílugmaður, en átti skemliflugvjel,
tveggja nianna far. Það var árið
1932 að honum hugkvæmdist, hve
auðvett væri að fremja morð á flugi.
Hann flaug þá með unga stúlku frá
París og steypti sjer kollhnis. Stúlk-
an datt úr vjelinni og beið bana.
Þótti ekki fært að láta flugmanninn
sæta ábyrgð fyrir þetta.