Fálkinn - 13.06.1941, Síða 2
2
F Á L K I N N
- GAMLA BÍÓ -
DÝRLINGURINN SKERST í
LEIKINN.
MaCur er nefndur Simon Templar,
en hjá iögreglunni í tveimur heims-
álfum gengur hann undir nafninu
„Dýrlingurinn“ og þekkir lögreglan
hann þó ekki að góðu. Þegar sagarr
hefst er hann að koma heim til New
York úr Lundúnaférð. Þá stendur
svo á þar, að lögreglumaðurinn Fer-
nack, sem Dýrlingurinn þekkir bæði
að góðu og vondu, er í vandræðum.
Það hafa fundist 50.000 dollarar í
peningaskápnum lians og Fernack
getur enga grein gert fyrir þvi, hvern-
ig hann hafi fengið þessa peninga.
Hann hefir tekið mann einn að nafni
„Rocks“ Weldon fastan, en út af því
máli liefir einn af aðilunum, Jolin
Summers, sem var aðalvitni hins op-
inbera, verið myrtur. Þykir það senni
legt, að einhver hafi mútað Fernaclc
til þess, að fá Rocks Weldon dæmd-
an, hvort sem hann sje sekur eða
sýkn.
Á íeiðinni frá London hefir Dýrl-
ingurinn kynst stúlku einni, sem
heitir Ruth. Hefir lnin lent í æfintýri
við komu sína til New York, því að
tilraun hefir verið gerð til þess að
nema hana á burt. Dýrlingurinn af-
stýrir þessu og ræðsf á mennina, en
meðan á áflogunum stendur þá hverf-
ur Ruth út i buskann.
Það eru bófar undir stjórn Big
Ben Egans, sem liafa gert samsæri
um, að koma Fernack lögreglufull-
trúa í bölvun. Einn í þessu samsæri
er Rocks Weldon sjálfur. Egan safn-
ar 90.000 doilurum i „reksturskostn-
að“ við þetta fyrirtæki. En þeir sam-
særismennirnir eru ekki meira en
svo trúir hverir öðrum og hefst nú
langur vefur allskoriar refja og leyni-
hragða, sem ekki er rjett að segja frá
lijer. Það er heldur ekki rjett að fara
að ljósta þvi upp hvaða afskifti Dýr-
lingurinn hefir af þessum málum en
hitt má taka fram, að Ruth — stúlk-
an, sem hvarf honum á skipsfjöl
kemur jiarha mikið við sögu.
Það eru George Sanders og Wendy
Barrie, sem leika aðalhlutverkin:
Dýrlinginn og Rutli, en utan um
þau er heil glæpamannanýlenda og
einstaka heiðvirður maður, svo sem
Fernack fulltrúi (Jonathan Hale),
Myndin er gerð eftir skáldsögu
samnefndri, eftir Leslie Carteris, af
RKO-Radio Pictures. Hljómleikarnir
í myndinni eru eftir Röý Webb en
leikstjórinn er Howard Benedict.
Þetta er fimta myndin sem RKO
hefir tekið eftir sögum Charteris um
Simon Templar.
Skrúðganga Sjómannadagsins á Tjarnarbrúnni. Sjá grein á næstu síðu.
E Allt ineð íslenskmn skipuni!
__________________________________________________
GERIST ÁSKRIFENDUR FÁLKANS HRINGIÐ í 2210
Guðmundur Vilhjálmsson, fram-
kv.stj. Eimskipafjelags íslands,
varð 50 ára 11. f>. m.
Jáhannes Hjartarson, fijrv. af-
gr.m., verður 75 ára 19. þ. m.
Magnús V. Jóhannesson, yfir-
framfærslufulltrúi, Nýlendug. 22
varð fimtugur 8. þ. m.
Borgarstjórinn i Birmingliam fjekk
eitt sinn brjef frá manni einum, sem
óskaði að fá keypta 4(3. stjettarhell-
una í ákveðinni götu í borginni,
vegna þess, að „yndislegasta stúlkan
í heimi“ hefði staðið á þessari liellu
þegar hún lofaði að giftast honum.“
Borgarstjórinn varð við þessari ósk
og seldi manninum helluna fyrir tíu
shilllings, en það var kostnaðurinn
við að taka upp helluna og kaupa
aðra í skarðið og koma lienni fyrir.
Það er sagt 8 af hverju liundraði
hvítra manna hafi augu, sem ekki eru
eins á litinn.
-nýjabTó-
MlLJÓNAÞJÓFURINN
heitir næsta kvikmyndin á Nýja Bíó.
Aðalpersónuna í myndinni leikur
George Raft’. Hann lieitir í mynd-
inni Joe Laurick og kann best við að
gera það, sem honum dettur í hug,
en skeyta livorki um almenningsálit
eða lög og mannasetningar.
En þetta kemur honum illilega í
koll. Örlögin eru svo napurleg við
hann, að hann kemsl undir ákæru
um, að liafa stolið sinum eigin pen-
ingum. Þetta er sjaldgæft og býsna
lýgilegt, en myndin segir frá hvernig
þetta megi verða. En þegar liann er
handtekinn fyrir verknaðinn kemst
hann undan með liandjárn um anii-
an úlfliðinn, en þá tekur ekki betra
við. Hann verður að aka bifreið fyrir
foringja bófaflokks, sem er á leið til
að ræna banka (Victor Jory), til þess
að losna við hándjárnin og fá 1500
dollara. Enn sleppur hann frá rjett-
visinni og getur leynt sjer hjá manni
í Sacramento, en liar hittir. hann svo
Lauru Benson (Claire Trevor), sem
er afgreiðslustúlka í blómabúð hjá
Nick (Henry Armetta). Jói Lourik
verður bráð ástfanginn af henni og
einsetur sjer að ná í atvinnu og ger-
ast nýr og betri maður, til þess að
ná ástum hennar og gerast verðugur
þeirra.
En Laura er nú ekki alveg laus.
Dick Carver, sem er málaflutnings-
maður, er nefnilega bálskotinn í henni
líka, og vill ekki sjá, að Jói sje að
dingla við hana.
Ilvernig skyldi svo þetta alt fara?
Það er best að hafa sem fæst orð um
það. En það reynir mikið á Lauru
veslinginn áður en líkur, svo að
Claire Trevor hefir nóg að hugsa
meðan hún er að sýna allar geðs-
hræringar hennar. En mikið gerir
hún það Vel. Og Raft 'er samboðinn
mótleikari.
Myndin er tekin af Universal Film
og auk þeirra aðalleikenda sem nefnd-
ir Voru má sjá þarna ýmsa góðkunna
leikendur í ýmsum smærri hlutverk-
um. ,
t næsta blaði Fálkans:
Aðalgreinin í nœsta blaði heitir:
,,Brjefdújur á flugskóla". Hún segir
frá hvernig vissar tegundir brjef-
dúfna eru æfðar og aldar upp við
að læra ratvisi, og hvernig þær
voru notaðar til sendiferða í siðustu
styrjöld.
Lengri sagan gerist einnig í síð-
ustu styrjöld og er eftir Quentin
lieynolds. Aðalpersónurnar. eru
Þjóðverji og Englendingur, sem eru
gamlir vinir. En örlögin haga þvi
þannig, að öðrum er skylt að ráða
niðurlögum hins, því að báðir erti
hermenn.
Litla sagan er eftir vinsælasla
smásögnhöfund Fálkans: Mark Ilell-
inger. Hún heitir ,,Áslarbrjefið“.
Þá verða i blaðinu greinar um
ýmisleg efni, m. a. tinkonunginn
Simon Patino, sem fyrir einbera
tilviljun varð mesti tinnámueigandi
veraldar. Hann var rukkari fyrir
verksmiðju og tók gamla náma upp
í skuld, en var rekinn úr vistinni
fyrir bragðið og sat uppi með nám-
una. Þannig byrjaði velgengni hans.
O. Clausen skrifar um dætur
Steins biskups á Ilólum.
Ennfremnr er í blaðinu Listers
prjónadálkur, barnasaga, fjöldi
mynda og margt fleira.
Flýtið ykkur að ná í Fálkann, þvi
að liann selst oftast upp á útkomu-
daginn.