Fálkinn - 13.06.1941, Side 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjári: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6.
Blaðið kemur út hvern föstudag.
AUar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 30 aura millim.
HERBERTSprent.
Skraðdaraþankar.
íslendingar hafa á þessu vori tek-
ið þá ákvörðun í sjálfstœðismálinu,
sem af ýmsum er talin sú mikilvæg-
asta í allri sjálfstæðisbaráttu þeirra.
Hjer skal eigi út í það farið, hvort
það sje rjett, en hitt er víst, að ýms-
ir teija, að hjer sje um síðasta skref-
ið að ræða. Og svo er það einnig ef
alt fer að óskum. Hitt er vist, að á
þeim tímum sem nú standa yfir færir
reynslan okkur svo oft óþægilegar
áminningar um, live rjetturinn má sin
lítils gegn ofurmagni og ofbeldi. Og
eflaust hefði það allra hluta vegna
verið heppilegra, að geta stígið síð-
asta sporið á öruggari tímum en nú
eru, og farið þá öruggu leið, sem op-
in stóð samkvæmt sambandslögunum.
Einmitt þessvegna hvarflar senni-
lega hugur fleiri Islendinga til hetj-
unnar miklu, Jóns Sigurðssonar, nú
á 130 ára afmæli hans en ella. Marg-
ir munu spyrja sjálfan sig: Hvað
hefði Jón Sigurðsson gert, ef hann
væri uppi nú. Svörin kunna að verða
mismunandi. En einmitt spurningin
sýnir, hversu rík eru enn áhrif hans
og liversu lifandi hann er enn hjá
þjóðinni.
Nú á dögum viðurkenna allir, hver
styrkur það er þjóðinni að eiga sonu
eins og Jón Sigurðsson. Minning
hans og starf, lýsir þjóðinni -enn á
sama liátt og vitinn skipi í myrkri
eða eldstólpi i eyðimörkinni. Og með-
an sá viti brennur er þjóðinni vor-
kunnarlaust, að verða ekki áttavilt í
þeim málum, sem henni mega til vel-
farnaðar verða, jafnvel þó villuljós
verði á veginum eða segulskekkja
trufli suma „áttavitana“ í stjórnmála-
heiminum.
Á þeim tímum sem nú líða er ekki
vanþörf á, að minna á, að Jón Sig-
urðsson var ekki eingöngu hetjan
sem barðist fyrir stjórnarfarslegu
sjálfstæði, lieldur sá maður, sem ekki
ljet sjer óviðkomandi neitt það, sem
þjóðinni mátti að gagni verða í öðr-
um greinum. Skólamál, verslun og
viðskifti, landbúnaður og útgerð —
allstaðar lagði hann eitthvað nýtt til
málanna, af hinni víðtæku söguiegu
reynslu .á þvi liðna gat hann altaf
markað stefnuna fram. Þeir, sem ekki
þekkja reynslu fortíðarinnar geta átt
á hættu að fara óafvitandi afturábak,
og „ganga þá móður sína ofan í jörð-
ina“ eins og Jón komst sjálfur að
orði i einni ritgerð sinni. En stefnan
sem hann markaði i ýmsum málum
heldur enn fullu gildi. Ef menn
þekkja hana, er þeim óþarft að
„ganga móður sína ofan í jörðinaa."
Við eigum itarlega æfisögu Jóns Sig-
urðssonar, en þess væri full þörf, að
|ón Siönrösson forsetl
Sj ómannadagurinn síðasti.
Sjómenn i Reykjavík og víða úti um
land hjeldu minningardag sinn há-
tiðlegan síðastliðinn sunnudag við
afarmikla þátttöku og með mikilli
viðhöfn. Enda eru ýmsir þeir við-
burðir frá vetrinum enn í fersku
minni, sem valda því, að lnigur al-
þjóðar er bundnari sjómannastjett-
inni nú en nokkru sinni áður. At-
burðirnir hafa talað svo skýru máli
um, hvað sjómennirnir leggja í söl-
urnar, ekki síst á tímum grimmilegs
sjóhernaðar, að engum er ofvaxið
að skilja.
í Reykjavík hófust sjálf hátíðar-
höldin með skrúðgöngu frá Stýri-
mannaskólanum, en frá því snemma
morguns höfðu liús borgðarinnar og
islensk skip á höfninni verið fánum
skreytt og fólkið á götunni keypt
sjer merki dagsins i hnappagatið.
Skrúðgangan lijelt um ýmsar götur
bæjarins út á íþróttavöll og var þar
skipaður heiðursvörður hvitklæddra
stúlka við ræðustólinn. Þar stóðu og
inerkisberar hinna ýmsu fjelaga. En
bak við ræðustólinn drúpti hvítur
fáni með gyltum stjörnum, einni
fyrir livern íslending, sem Ægir hef-
ir heimtað í fórn siðan á siðasta
Sjómannadegi. En stjörnurnar eru 121.
Jón Bergsveinsson framkvæmda-
stjóri talaði fyrstur en næstur hon-
um flutti herra Sigurgeir biskup
ræðu. Á eftir talaði Guðmundur Haga-
gefa út stutta æfisögu hans og starf
hans, er öllum unglingum á Islandi
væri skylt að kynna sjer áður en
þeir ganga út á lífsbraut fullorðins-
áranna.
lin fyrir hönd sjómanna en þá Gisli
Jónsson framkvæmdastjóri og loks
Ólafur Thors atvinnumálaráðherra.
Lúðrasveit ljek ýms lög í skrúðgöng-
unni og á milli ræðanna. —
heitir nýjasta skip íslenska flotans
og komst það undir íslenska fánann
á laugardaginn var. Skipið er keypt
frá Sviþjóð og smíðað í Noregi 1938,
úr furu og eik; 111 smálestir og með
------- Árdegis hafði kappróður sjó-
manna farið fram á fjórum nýjum
bátum, sem skírðir voru við þetta
tækifæri, af Geir Sigurðssyni skip-
stjóra, þessum nöfnum: Gammur,
Dreki, Jötunn og Hraðfari. Ilefir
Pjetur Ottason skipasmiður smíðað
bátana.
. Ivept var í tveimur flokkum, öðr-
um frá skipshöfnum togara en hin-
um af vjelbátum, og voru margar
sveitir í hvorum flokki. Verðlaunin
í fyrra flokki voru standmyndin
„Fiskimaðurinn“ eftir Ásmund Sveins
son, vann hann sveit af „Arinbirni
hersi“ á 4 mín. 54,8 sek. en næstir
urðu skipsmenn af „Gyllir“. Skips-
höfnin af „Karlsefni“ varð að róa
samkepnislaust og náðist ekki tími
hennar, en hann var af áhorfendum
talinn með þeim bestu ef ekki bestur,
og fjekk því þessi sveit lárviðarsveig
að heiðurslaunum. — í vjelskipaflokk-
inum varð hlutskörpust sveit af
„Sæbjörgu" á 5 mín. 3 sek., en næst-
ar sveitir af „Hlíf“ (5 mín. 5,8) og
„Vestra“ (5 mín. 6,2 selc.). — Verð-
launin í þessum flokki voru June-
Munktellsbikarinn, gefinn af Gísla J.
Johnsen í fyrra. Vegalengd kapp-
róðursins er 1000 m.
1 stakkasundinu var kept um bikar
Sjómannafjelags Reykjavíkur og vann
Ingþór Guðmundsson frá Keflavík á
3 mín. 6,3 sek. Vegalengdin er 100
metrar. Næstur varð Erlingur Klem-
ensson og þriðji Markús Guðmunds-
son.
Loks var reipdráttur á íþróttavell-
inum, að loknum ræðuhöldum þar.
Keptu 8 manna sveitir af bv. Jón Ól-
afssyni (þaðan voru vinnendurnir i
fyrra) og af bv. Garðari. Sigruðu
þeir síðarnefndu í báðum lotunum,
á 2% og 2 mínútum.
Á sunnudagskvöldið höfðu sjómenn
samsæti í Oddfellowhöllinni og á
Hotel ísland. Var útvarpað skemtiat-
riðunum frá Oddfellow, söng og ræð-
um. Og kvöldskemtun var haldin i
Iðnó.
í Keflavík, Akureyri, Akranesi,
Vestmannaeyjum, ísafirði, Önundar-
firði og viðar voru hátíðahöld og
merkjasala þennan dag, útiskemtanir
og inni. Tókust skemtanir þessar
yfirleitt prýðilega, og er það mælt,
að eigi hafi í annað skifti verið hald-
inn sjómannadagur, sem betur hafi
tekist á alla lund en þessi.
150/220 ha. „Union“-hreyfli, og hefir
8 milna ferð. Hefir Óskar Halldórs-
son haft það á leigu síðan snemma
á síðastliðnu ári og kom lieim með
Frh. á bls. lf.
„Þórður Sveinsson“