Fálkinn - 13.06.1941, Page 14
14
F Á L K I N N
HENRY PURCELL.
Frh. af bts 6.
um það, hve mikið þótti í þetta verk
spunnið, að kafli úr því: „Thou
knowest Lord, the secret of our
heart“, hefir verið sunginn síðan og
alt til þessa dags við allar viðhafnar-
jarðarfarir, sem fram hafa farið í
Westminster Abbey.
Auk söngleikjanna og kirkjutón-
smíðanna, samdi hann og feldi inn
í fjöldann allan af sjónleikjum ýmis-
konar tónsmíðar.
Purcell var alla tíð fremur heilsu-
veill og viðkvæmur og fór heilsa
hans versnandi eftir því sem hann
varð fullorðnari, vegna þess að hann
lagði mikið á sig og varð oft að
vinna fram á nætur. Aldrei lá hann
þó neinar legur, — og síðast aðeins
örfáa daga, og andaðist 21. nóvem-
ber árið 1695.
í Westminster Abbey er minningar-
skjöldur, þar sem á er letrað þetta:
„Hjer hvilir Henry Purcell, sem
kvaddi þetta líf og hvarf til hinna
blessuðu heimkynna, þar sem hann
fær fyrst notið hljóma, sem fullkomn-
ari eru en hinir fögru hljómar, sem
hann skapaði sjálfur.“
SARA MIKLA.
Frh. af bls. 11.
tuttugu og sex ára og hann fimtíu.
Sambúð þeirra stóð í tuttugu ár, tutt-
ugu ár, sem frú Sara kallar „unaðs-
leg“. Maður hennar dó, þegar Frank-
lin var nýkominn á háskólann í Har-
vard. Síðan hefir hún átt heima
þarna i Hyde Park, og sjeð fimm’
barnabörn og tíu barnabarnabörn
vaxa og dafna og hún hefir fylgst
með þeim frægðarferli, sem sonur
hennar hefir farið úr skuggadal löm-
unarveiki upp í forsetastól hins
mikla lýðveldis, þrívegis í röð.
^//%//%/^/%/^//%//%//%//%//%/ /*»/i****i/+/f<*/**n*/+'i**f+'r+*'*'
„ÞÓRÐUR SVEINSSON“.
Frh. af bls. 3.
Þannig líta þær út hinar Ijettu brynreiðar Breta,
sem mest er framleitt af. Þarna er ekki hugsað um
straumlinur eða svipfegurð, heldur hitt, að brynjan
standist kúlur og sprengjur og að brynreiðin kom-
ist óhindrað leiðar sinnar yfir sem flestar torfær-
ur. Myndin er tekin í einni brynreiðaverksmiðj-
unni í Englandi, en þær starfa dag og nótt.
ENSK SJÚKRAFLUGVJEL. flugvjelum. Geta þœr flutt tvo sjúk stoðarfólk. Merki Rauða krossins er
Þetta er ný gerð af enskum sjúkra linga og auk þeirra lœknir og að- greinilega málað á vjelina.
þvi í fyrra vor skömmu áður en Dan-
mörk og Noregur voru hernumin.
Síðan hefir skipifr verið í fiskflutn-
ingum til Englands fyrir Óskar og
siglt með sænskri skipshöfn þangað
til i fyrra haust, en síðan hefir ís-
lensk áhöfn verið á skipinu, að ein-
um Svía undanteknum.
Nú hefir Óskar keypt þetta skip i
fjelagi við nokkra aðra menn. Það
hjet áður „San Tooy“ en hefir fengið
nafnið „Þórður Sveinsson" eftir
Þórði heitnum bankaritara. Er skip
þetta í alla staði hið ágætasta, traust
og gott sjóskip og ekki nema 5 miss-
ira gamall.
1 Hollywood urðu karlmaður og
kvenmaður atvinnulaus vegna þess,
að þau kystu ekki nógu fallega. Þau
höfðu starfa á snyrtistofu og áttu
að sýna, hve varastifti eitt væri
„kosshelt“, með því að kyssast fast
og innilega. Þetta gekk vel í fyrstu,
en eftir nokkra hrið fór áliuginn að
dvina og þau kystust eins og fyrir
siðasakir og svo laust, að kossinn
þótti ekki geta sannað, að varalitur-
inn smitaði ekki. Eigandinn ljet i
staðinn gera sjer kyssingaráhald með
vörum úr gúmmí og hafði það þann
kost, að það mældi þrýsting kossins,
um leið og gúmmívarirnar mættust.
Á venjulegum kossi er 5 kilóa þrýst-
ingur, en við einstaka mjög innilega
kossa kemst þrýstingurinn upp í 12
kíló.
Reykjavikur ogíslandsmeistarar
í sundknattleik.
Dagana 23.—28. maí
fór fram Meistaramót
íslands í sundknattleik
í Sundhöllinni í Reykja-
vík.
4 sveitir keptu. 1 frá
Glímufjelaginu Ármann
1 frá Knattspyrnufjelagi
Reykjavikur og 2 frá
Sundfjelaginu Ægir. Úr-
slit urðu þau að sveit
Ármanns vann alla sína
leiki og lilaut Sund-
knattleiksbikar íslands
og nafnbótina „Súnd-
knattleiksmeistarar Is-
lands“. Ármann vann
K.R. 11—0, B-lið Ægis
vann hann 11—1 og
A-lið Ægis 1—0.
í febrúar í vetur var
húð Reykjavíkurmót i
Sundknattleik og vann
Ármann þá einnig með
miklum yfirburðum,
A-lið Ægis þá með 4—1.
Ármenningar eru vel að
þessum sigrum sinum
komnir þvi þeir sýndu
mjög mikla yfirburði og
samleikur þeirra var
með ágætum.
í Ármannssveitinni eru, talið frá
vinstri á tnyndinni. Efri röð: Guðm.
Guðjónsson, Magnús Kristjánsson,
Stefán Jónsson og Þorsteinn Hjálm-
arsson, sem einnig er þjálfari fjelags-
ins í sundi. Neðri röð: Sigurjón Guð-
jónsson, Ögmundur Guðmundsson og
Gísli Jónsson.
/^/>//S//%//%//S//^/l%//%//%//S//S//%//>//S//%//%-^//%//%//%//%//%//%/^
Dýralæknir einn í Seneca Falls í
New Yorkfylki bjargaði fyrir aldar-
fjórðungi lífi kattar eins, sem hestur
hafði sparkað í. Tók hann ketling-
inn heim með sjer og dekraði við
liann á allar lundir, en þó eftir
,kúnstarinnar‘ reglum“ heilsufræðinn-
ar. Þegar kötturinn var 21 árs hjelt
dýralæknirinn stórveislu í tilefni al'
því, að nú væri kötturinn orðinn
„myndugur", og fór hann nú að vona,
að liann mundi setja heimsmet í elli.
Þáð met var 27 ár, og átti það kött-
ur suður i Ástralíu. En kötturinn i
Seneca Falls varð ekki svo gamall.
Hann drapst 24 ára — og dýralækn-
irinn var óhuggandi.
Það gefur góða hugmynd um hví-
líkum hörmungum eldgos geta valdið
þeim, sem nærri þeim búa, að bráð-
ið hraun rennur stundum með alt að
50 kílómetra hraða á klukkustund
niður fjallshlíðarnar. Þegar svo stend-
ur á er engum undankomu auðið.