Fálkinn


Fálkinn - 25.07.1941, Blaðsíða 11

Fálkinn - 25.07.1941, Blaðsíða 11
F Á L K I N N 11 Axel Wenner-Gren. Kynjamaðurinn frá Sviþjóð. Axel Wenner-Gren er einkum kunn- ur hjer á landi fyrir stórgjöfina, er hann gaf fyrir nokkrum árum til e'flingar norrænni samvinnu í við- skiftamálum og vísindarannsóknum. Sú gjöf var 30 miljónir. En 30 milj- ónir gefa ekki nema ríkir mfenn. Hvernig græddi Wenner-Gren auðæfi sín, og hvaða áhrif liefir hann á stórviðburðina? Það er t. d. sagt, að hann hafi komið friði á milli Finna og Rússa í fyrra. Eftirfarandi grein úr „Toronto Star“ leitast við .að svara þessum spurningum: — — Af þeim fáu upplýsingum, sem eru fyrir hendi og af ýmsum viðburðúm, sem gerst liafa þrjú síð- ustu missiri, er liægt að gefa þessi svör við spurningunni: Hver er Axel Wenner-Gren? Hann er ríkur sænskur iðjuhöldur, sein á hagsmuna að gæta í mörgum löndum, og það var liið skrautlega skemtiskip hans, ,,Soulhern Cross“, sem nýlega flutti hertogahjónin af Windsor frá Nassau á Bahamaeyjum til Miami á Florida. Hann er svokallaður vildarvinur Hermanns Goerings marskálks, og var milligöngumaður í sanmingunum, sem bundu enda á stríðið milli Finna og Rússa — fyrir tilmæli Goerings, að þvi er sagt er. Hann er vopnaframleiðandi og það átvikaðist svo, að skemtiskip hans var nærstatt þegar farþegaskipið „Athen- ia“ var skotið tundurskeyti í hyrj- un stríðsins, og hjargaði ])að mörgum af farþegunum. Hann er maðurinn sem sigldi um varnarsvæði Canada, Kyrrahafsmeg- in, í sumar sem leið, og tóku þá canadiskir varðmenn hæði byssur og vjelskeytlur af skipsliöfn lians um stund. Þrátt fyrir mikil auðæfi, margs- konar áhugamál og að því er virðist mikil áhrif, er hann einn af þeiin stórlöxum veraldar, sem allur þorri almennings veit minst deiti á. í orði kveðnu er framkoma hans sem baktjaldamanns ýmsra mikil- vægra fyrirtækja víðsvegar um heim oftast að kenna eða þgkka einskærri en endurtekinni tilviljun. En þó virð- ist nasasjón og ásetningur einnig liafa ráðið ýmsu um, hversu ágengt mann- inum hefir orðið. Wenner-Gren ræður fyrir stóru raftækjaiðjuveri í Svíþjóð, sein liefir dótturfjelag í Bandarikjunum og fleiri löndum. Frá þessum inerg auð- æfa lians og iðnaðarvalds ganga svo ýmsar greinar; hann er skógaeigandi, framleiðir trjákvoðu og pappír, rekur námugröft, smíðar flugvjelar og á hergagnaverksmiðjurnar í Bófors. Auður lians og vald og hið víð- feðma hagsmunasvið lians veldur því, að hann getur ef til vill liaft áhrif á málefni margra landa. Það er sann- að, að hann hefir liaft áhrif á alþjóð- leg málefni og er maður til að gera það oftar. í ýmsum þeim tilfellum, sem liann hefir komið við sögu stórmála, sem komist hafa á almanna vitorð, liefir viljað svo til, að liann hefir verið um borð á liinu mikla skemtiskipi sínu, Southern Cross, þegar atburð- urinn gerðist. Það er talið að kaup- verð þessa skips og endurbætur á því, ásamt útbúnaði skipsins hafi kostað hann 13 miljónir króna, en skipið er 1851 tonn og talið stærsta skemtiskip veraldar i einstaks manns eign. Síðan ófriðurinn hófst hefir þótt bera sjerstaklega mikið á því, að Wenner-Gren hjeldi sig um borð á Soiithern Cross. Skipið liefir verið honum bæði ftjótandi heimili og far- andskrifstofa í senn, og þaðan hefir liann haft tvöfalt loftskeytasamband og haldið tengslum við liin marg- háttuðu kauþsýslufyrirtæki sín og fylgst með rás heimsviðburðanna. Hann hefir siglt þessu skipi víðsveg- ar, þar á meðal yfir Atlantshaf; til og frá hinu íburðamikla aðsetri sínu, Shangri-La á Hog Island, skamt frá Nassau á Bahamaeyjum. Og langar ferðir hefir hann farið. Bæði Wenner-Gren og frú lians, sem er amerikönsk að ætt, liafa stundað nám í Berlín og eiga þar vini og sambönd. Frúin heitir Mar- guerite, fædd Liggett og er frá Kans- as City. Hinn 9. mars 1940 flutti New York Tiines svolátandi l'regn.; „Wenner-Gren, sænskur vopna- kongur var milligöngumaður i um- leitunum um frið milli Rússa og Finna, fyrir áskorun Goerings mar- skálks, nazista nr. 2. Þetta vitn- aðist meðal stjórnarerindreka lijer í borg í dag. „Hinn l'rægi sænski iðjuhöldur, sjerstakur, ganiall vildarvinur Goer- ings í hópi liinna mörgu sænsku vina lians, var á skémtisiglingu í Nassau á Bahamaeyjum þegar hann fjekk dulmálskeyti frá Goering, sem sagði lionuni að það væri ósk Þýska- lands að bintla enda á finsk-rússneska slriðið og bað um aðstoð Wenner- Grens til þess. Wenner-Gren lijelt þegar til New York. Þaðan fór liann til Evrópu á Rex, 17. febrúar ....“ Sennilega liefir það ekki eingöngu verið vegna álirifa Wenncrs-Grens meðal valdamanna í Þýskalandi, Svi- þjóð og máske öðrum löndum, sem honum var kleift að ráða úrslitum finska striðsins, lieldur vegna þess fjármagns, vopna og skotfæra, sem hann liafði yfir að ráða. Seint á vorinu 1940 hvarf hann aftur til Ameríku. Eftir að hafa far- ið til Nessau og heimsótt ýmsa staði í Bandaríkjunum, lagði hann af stað í langferð með konu sína. Þau fóru vestur um Panamaskurðinn og svo var lialdið norður með vesturströnd Bandaríkjanna og lónað lengi í Puget- sundi, við norðanverða strönd Was- liingtonfylkis. Jafnvel þarna tókst honum ekki að komast algerlega út úr andrúms- lofti stríðsins. Ýmsir staðir við Puget- sund og neðan við landamæri U.S.A. og Canada eru meðal ramlegast víg- girtu blettunum á meginlandi Amer- íku. Wenner-Gren hjelt áfram lengra norður og sigldi um liafið út af British Columbia um það bil mán- uð. Hann kom til Vancouver 31. júlí og meðan hann dvaldi þar hafði liann í boði sínu um borð margt fólk, seni , hann hafði bjargað af Athenia, þegar hún sökk. Gáfu gest- irnir lionum minningarskjöld um björgunina við þetta tækifæri. Meðan Southern Cross sveimaði fyrir utan Britisli Columbia tóku canadiskir tollverðir nokkrar vjel- byssur og riffla úr skipinu, sem þeir skiluðu þó aftur, er það fór. Skýringin,- sem gefin var á því að vopnin væru um borð var sú, að skip, sem væri í langferðum á ófrið- artímum þyrfti að liafa vopn, ef eitt- hvað óvænt bæri að höndum. Frá því í fyrrasumar og þangað til í vor hefir Wenner-Gren horfið sjónum almennings. En það er sagt, að liann liafi haft tal af kunningj- um og viðskiftavinum í Bandarikj- unum, einkum í New York og Was- hington „síðustu mánuðina“. Og það er sagt, að liann liafi stofnað nýtt fjelag i New York, Mawen Motor Corporation, ásamt Emilc Mathis, en liann er franskur og var samstarfs- maður Henry Fords þangað til eftir að styrjöldin hófst. Þetta Mawen-fjelag er sagt vera að gera tilraunir með nýjan, loft- kældan stjörnuhreyfil, ekki stóran, sem hægt eigi að vera að nota hæði í flugvjelar og bifreiðar. í desember 1940 beindist athygli Canadamanna sjerstaklega að Wenn- er-Gren, vegna þess að blöðin sögðu frá því, að Viking Foundation liefði veitt TorontOháskóla 45.000 krónur til rannsókna í jarðeðlisfræði, jarð- fræði, námufræði og skyldum grein- um, og að þetta framlag væri úr sjóði, sem Wenner-Gren liefði gefið. Viking Foundation er velgerðastofn- un og lögheimili liennar er í Panama (þar er Southern Cross einnig lög- skráð), og starfar að eflingu rann- sókna og vísinda. Það er ýmislegt, sem bendir á að Wenner-Gren liafi talsverð áhrif á skoðanir einangrunarstefnumanna í Bandaríkjunum. Þessi niaður, sem hefir tekið jafn mikilsverðan þátt í stórvægilegum heimsviðburðum siðustu árin, þó að ekki hafi hann gert það sem opin- ber persóna, byrjaði mjög smátt. Gáfuna, sem hann virðist nota nú til jiess að selja hugmyndir um alheims- málefni, notaði liann þegar liann var drengur til þess að selja körfur og öskubakka, og til þessa hafði liann lióp af jafnöldrum sínum. Nú er hann orðin 59 ára. Hann nam verslunarfræði í Berlín. Síðar fór hann þó ungur væri til Bandaríkjanna og vann fyrir 15 senta tímakaupi í verksmiðju í New Jersey. í jiessari og fleiri verksmiðj- um gafst honum færi á að kynna sjer af sjón og reynd iðnrekstursað- ferðir Bandaríkjanna, og seinna not- aði liann þessa þekkingu ásamt brjóstviti sínu á verzlun til þess að skapa auð sinn. Siðasta styrjöld varð þrándur í götu fjárgróða-áætlana hans. En 1919 stofnaði hann ryksúguverksmiðjuna Electrolux. Wenner-Gren gengur líka undir nafninu trjenikonungurinn, og skv. siðustu fregnum er hann orðinn for- maður sambands sænskra trjeni- framleiðenda. Hann eignaðist meiri- hluta hlutabrjefa í BoforsVopnaverk- smiðjunum með því að kaupa af Krupp hinum þýska yfirráðin yfir einkaleyfunum á hinum alkunnu Bofors-fallbyssum og hriðskotabyss- um. Loftvar.nabyssurnar frá Bofors og ýms önnur hergögn þaðan eru notuð i núverandi stríði af ýmsum þjóð- um, þar á meðal Þýskalandi. Egils ávaxtadrykkir HHII BLÖÐIN ERU GÖMUL. Einskonar frjettablöð voru til i heiminum löngu áður en prentlislin kom til sögu. Meðal jiess elsta af jjví tæi voru helluristur, sem settar voru upp á torgum bæja í Assyríu og Babylon. — í Rómahorg var gefið út blað, sem hjet Acta Diurna (Dag- leg tíðindi). Það var skrifað í mörg- um eintökum og selt föstum áskrif- endum í fjarlægum hjeruðum. Eftir uppgötvun prentlistarinnar voru eink- um gefin út flugrit með ákveðnum frjettum, en jiau birtust ekki reglu- lega. Árið 1562 fór að koma út í Feneyjum mánaðarblað, sem hjet Notizie Scritte. Það var liandritað og liaft til sýnis á opinberum stöð- um og urðu menn að borga litinn skilding, sem gazetta hjet, fyrir að lesa það. Þaðan kvað þetta orð vera komið inni í lieiti ýmsra hlaða. — Fyrsta blaðið i London kom út 1622 og hjet The Weekly Newes from Italy, Germany etc. The Times í London kom fyrst út árið 1785 und- ir nafninu Daily Universal Register, en fjekk sitt núverandi nafn þremur árum siðar. Fyrsta reglulega blaðið í Ameríku hóf göngu sína 1704. Það lijet Roston News-Letter. Eitt erfiðasta niðurrifsverkið, sem sagan kann að lierma frá, er niðurrif flotahafnarinnar þýsku og virkjanna á Helgolandi, sem Þjóðverjar urðu að framkvæma samkv. ákvæðum Versala samninganna. Það liafði verið 24 ára vinna að byggja þessi ramgeru virki og kostað 700 miljón krónur. Það varð tveggja ára verk að rifa þau og kostaði — 5 miljard krónur. Milli tveggja enskra útVarpsstöðva hafði verið lagður jarðsími og var köfnunarefni dælt inn á milli ein- angrunarlaganna, sem á símanúm voru, svo að einangrunin yrði ennþá betri. En nú varð þess vart, að köfnunarefnið lak út í gegnum ytra einangrunarlagið. Verkfræðingarnir voru i vandræðum með að finna leka- staðina, sem köfnunarefnið færi út um, en loks liugkvæmdist einum þeirra að dæla gastegund, sem er með líkri lykt og af köttum er, inn í jarðsímann og láta svo þefnæman liund hlaupa eftir leiðsluskurðinum. Þó að skurðurinn liefði fyrir löngu verið fyltur fann hundurinn fljót- lega lekastaðinn og gróf holur þar ofan í jörðiua. Á-þennan liátt fundust fjórtán lekastaðir á jarðsímanum. í franska bænum Brest hefir fjöru- borð sjávarins verið mælt i síðást- liðin hundrað ár og liafa þcssar mæl- ingar sýnt, að sjórinn liækkar jafnt og þjett. Lengi vel var talið, að þetta sýndi, að landið væri að síga. En nú liafa rannsóknir sýnt, að svo er ekki, heldur er ástæðan sú, að liafið er að liitna og þenst þar af leiðandi út, því að inælingarnar komu heim við breytingar þær, sem urðu á loftslag- ■inu. Jafnvel í heimskautálöndunum hefir þess orðið vart, að hitastig sjáv- arins hefir áhrif á fjöruborðið.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.