Fálkinn - 21.11.1941, Blaðsíða 1
16 síður
Þó að margir hafi í Kerlingarfjöll komið, einkum síðan brú kom á Jökulfallið og bílfær vegur að Árslcarði og sæluhús þar,
eru þeir ekld nema fáir, sem þekkja fjöllin og umhverfi þeirra að sunnan og austan til hlítar. Flestir láta duga að fara inn á
hverasvæðið í Árskarðsgiljunum og sumir ganga á Loðmund, ef vel viðrar, en þaðan er útsijni talið einna best af öllum fjöll-
um á landinu. En Kerlingarf jöll eiga fleira að bjóða. Á síðast liðnu hausti fóru nokkrir menn frá Ferðafjelagi lslands þangað
og gengu um fjöllin öll og tóku myndir. Hefir fjelagið í hijggju að gefa út heildarlijsingu á þessu merka fjallasvæði. — Á
myndinni sjest móta fyrir einu hveragilinu, en í baksýn er Loðmundur.
KERLINGARFJÖLL