Fálkinn


Fálkinn - 28.08.1942, Blaðsíða 14

Fálkinn - 28.08.1942, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N Nálverkasýning Kjarvals Jóhannes Kjarval gengur ekki annara manna götur. Hann heldur til dæniis málverkasýn- ingu um hásumariS, þegar sagt er að allir sjeu í „fríi“. Samt sem áður kvað það hafa farið svo, að flestar myndirnar sjeu seldar. Sýnir þetta hve mikilli viðurkenningu listamaðurinn hefir náð hjá þjóðinni. Hjer hirtist mynd af sýning- unni. „Hamraþil“ kallar málar- inn Jiana. Og litla myndin er af hinilm starfandi listamanni. Sviðin jörð - árið 514 f. Kr. Árið 514 fór einn af stærstu herj- ura fornaldarinnar yfir Bosporus. Heródót segir frá því, að gríski byggingameistarinn Mandrocles smíð- aði brú yfir sundið úr sex hundruð skipum, milli Litlu-Asíu og Evrópu. Þessa brú fór her Daríusar Persa- konungs, ýmist ríðandi eða gangandi, en Daríus var eigi aðeins mikill lierkonungur heldur hafði hann og stofnað ríki, sem var fyrirmynd annara ríkja á þeirri tíð, ríki, sem hafði komið ágætu skipulagi á fjár- mál sín, stofnað reglulegar póstsam- göngur og komið sjer upp lögregiu. Nú langaði Daríus til að auka ríki sitt og leggja undir sig Skytha, hina fornu íbúa Ukraina. Ukraina var þá eins og siðar stórkostlegt kornforðabúr. Þar var og ræktað feikn að maís, lauk, hvít- lauk, baunum og hirsi. Þarna ætl- aði Darius að berjast til úrslita, en ekki að koma nærri Krímskaga, því að ferðamenn, sem þangað höfðu komið, sögðu þaðan hinar mestu tröllasögur. Ferðamenn frá Krim sögðu, að þar væri það lenska, að menn ætu lík feðra sinna, en aðrir kynflokkar, hinir svonefndu Iyracar (sem eru taldir forfeður Kósakk- anna), lægi í leyni nætur og daga i skógunum, viðbúnir að hremma óvini sína og drepa jiá. Þarna voru og aðrar mannætur ýmsar. Og hið mikla gull, sem var til á Krím •— og sem Daríus hefði víst gjarnan þáð að eignast — var varið af óg- urlegum fuglum, einskonar gömm- um. En fyrir norðan Ukraina var líka hættulegt að vera, vegna veðr- áttunnar; því að stundum sást þar ekkert nema „hvítar fjaðrir ú flugi um loftið“, og að því er Heródót segir var vetur þar í átta mánuði en kalt í fjóra. Kuldinn var svo ógurlegur, aÖ horn gátu ekki vaxið á sauðfjenu, eins og í Lybíu, og sama var að segja um nautpening- iun! Undir eins og Skytha-konungar frjettu um innrásaráform Daríusar hjeldu þeir fund til þess að ræða um sameiginlegar varnir gegn fjand- mönnunum. En vörnunum var hætta búinn vegna þess, að i fyrslu var ósamkomulag milli flokkanna. Ann- ar vildi komast að samningum við óvinina, en liitt voru hraustir af- komendur Skythanna, sem endur fyrir löngu höfðu farið herferðir langt inn í Litlu-Asíu. Þeir sem ákafastir voru í að berjast voru, að sögn Heródóts, hinir frjálsu kon- unglegu Skythar, Sarmatíánar (sem ættaðir voru af liökkum Don-fljóts), hinir ljóshærðu og bláeygu Budínar og Gelónar, sem voru bændaþjóð. Áttu þeir ágætt riddaralið, en voru ekki nægilega liðsterkir til að etja kappi við hinn fjölmenna persneska her. Þessvegna urðu þeir að fara aðra leið orustunnar til þess að sigrast á fjandmönnunum. Heródót lætur þess ekki getið hver hafi fundið ráðið, en það ráð sem tekið var, var að „sviða jörðina“ Skythar afrjeðu að ginna fjandmennina eins langt inn í landið og unt væri, og ná sjer á þann hátt niðri á rag- -mennunum, sem vildu komast að samningum, því að vitanlega mundu Persar ræna þá. Þeir mundu neyða Persaher til þess að fara yfir Dóná, I © © I ! © * © ♦ © ♦ O * © ♦ 0 - © © -•'inill.- • Samkvæmiskjólar, eftir miðdagskj ólar, og blússur í fjölbreyttu úrvali. Í Saumastofan Uppsölum 1 Símar: 2744 og 3085 1 © í ♦ d 1 O....... O Dniester, Bug og Dniepr, og halda liðinu meðfram ströndum Asovs- hafs og ginna þá síðan áfram aust- ur í Don-dalinn. En Skythar ætluðu að brenna „allar jurtir og grös á leið fjandmannanna og byrgja all- ar uppsprettur og lindir". Svo ætl- uðu þeir að láta riddaralið sitt flækjast fyrir og hörfa undan, í þess- ari nýju eyðimörk, hægt og liægt, svo að persneski herinn misti aldrei sjónar af því, en kæmist hinsvegar aldrei í færi við það. Þannig hófst stríðið. Persar hjeldu liði sínu um lönd Skytha og Sar- inatía, en fundu Jiar ekkert til að ræna, því að landið hafði þegar verið lagt' í auðn. Þeir sáu enga akra, engar bygðir; Jieir fundu hvergi vatn. Og óvinir þeirra liöfðu meira að segja horfið líka. Þ j.r urðu að hætta við að koma sjer upp bráðabirgðastöðvum, eins og þeir liöfðu ætlað sjer að gera, í þeim til- gangi að óvinirriir rjeðust á Jiær slöðvar. En þarna voru engir óvin- ir, enginn til að ráðast á, enginn til að hrekja á flótta, ekkert til að ræna og ekkert að leggja i auðn. HII10SOLUBIR6ÐIR ARNI JÓNSSON. HAFNARSTR S Það var ekki nema um eitt að gera, að lialda undan lil baka. Daríus varð að skilja eftir mikinri hluta hers síns i óvinahöndum — þá særðu, ]iá sem gáfust upp á göng- unni vegna þreytu, þorsta eða hung- urs. Og liað var með mestu herkj- um, að þeir fullfrisku björguðusl úr þessari eýðimörk. Þannig iiiðu Persarnir ósigur, ekki aðeins fyrir hugrekki óvina sinna heldur miklu fremur fyrir slægvisku þeirra og hugkvæmni hins ókunna manns, sem varð fyrstur til að uppgötva hið hræðilega vopn: sviðna jörð. /VWIWjW/V NORSKA KVÖLDIÐ OG FRÚ GERD GRIEG. Frh. af bls. 3. sýningunni var sá, að áhorf- andinn fjekk ekki allan leik- inn að sjá. Það er vafalaust, að hver og einn, sem situr í ’seikhúsinu, og horfir á frú Grieg tína blöðin að handriti Lövborgs í eldinn, vill sjá meira að þessari dularfullu persónu Ibsens. Leikurinn hefir verið sýndur- fjórum sinnum, og um hessar mundir er verið að sýna hann á Akureyri. Vonándi gefur Leik- fjelagið kost á, að lofa fleirum að sjá hann og koma á norska kvöldið. Það er igagnlegur og merkilegur viðburður í leik- listarsögu Reykjavíkur, sem gerst hefir með komu hinnar ágætu norsku leikkonu.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.