Fálkinn


Fálkinn - 16.07.1943, Blaðsíða 10

Fálkinn - 16.07.1943, Blaðsíða 10
10 F Á L K I N N YMGfttf L&f&NbUftHIR Vestmannaeyjaför Sólshinsdeildarinnar Frh. ViS fórum heim aft drekka, en siSan niSur í fjöru til að fá bát, því aS viS ætluSum undir Löngu, en þaS er baSstaSurinn. ViS fórum þó ekki í sjóinn þá, en rjerum á bátnum um höfnina, því aS veSriS var dásam- legt. ViS gengum fram á hafnargarS og upp aS vitanum, snerum siSan viS, rjerum inn í botn og á milli bát- anna, sem láu á höfninni. MeS okk- ur voru systkini úr Eyjum og reri Gísli, en svo var hann kailaSur. Hann var meS hatt eins og gerist og geilgur og baS hann eina af okkur aS halda á liattinum, til þess að hann dytti ekki í sjóinn. Þóttist sú, sem fjekk hattinn og setti liann upp vera mikil manneskja, en þá fór systir Gísla að rugga bátnum og var þá sú, sem með hattinn var svö hrædd, að liún sló í hattbarðið svo hatturin fauk út í sjó, og var nú farið að reyna að ná í hann og tókst það brátt. Síðan var lialdið heim. Um kvöldið var farið í Bió, síðan heim að sofa og fanst okkur þetta mjög skemtilegur dagur. Næsta morg- unn vöknuðum viS kl. 9. VeSrið var yndislega gott og sterkju hiti. Kl. 10 gengum við upp á Helgafell, en það er gamalt eldfjall. 1 þessari ferð voru ekki ailir krakkarnir og ekki heldur Guðjón; en Gaui var með okkur eins og í öllum öSrum ferð- um. Mjer fanst ekkert erfitt að ganga upp, og er mjög fallegt þeg- ar upp er komið. Skygni var mjög gott og bjart yfir öllu. Sáum við austur að Dyrhólaey, Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull gnæfðu yfir fann- hvítir og fagrir. Einnig var útsýn- ið mjög faliegt yfir eyjarnar og voru teknar þarna margar myndir. Síðan var lagt af stað heimleiðis, enda var komið hádegi; var mjög gaman að liendast niður fjallið; þó ilt væri undir fæti^, þvi að mikið var af lausa grjóti. Kl. 2 fórum við nokkur í sjóinn undir Löngu, var farið á litlum árabáti yfir og hann geymd- ur í fjörunni meðan við vorum að synda. Við ætluðum aldrei að þora úti, en þegar jeg var byrjuð aS synda fanst mjer það ekkert. Þeg- ar við vorum búin að vera dálitla stund ofan í, gengum við upp sand- inn, þar sem fólkið var í sólbaði, og er það brött sandbrekka inn undir Heimakletti. Vorum við þarna til kl. 4 og rerum síðan lieim. Við vorum orðnar svo svangar að við gátum ekki ferðast frekar, fyr en við höfðum drukkið kaffið. Við sungum kl. 8.30 um kvöldið. En um kl. 10 fengum við að vita að við ættum að leggja af stað heimleiðis kl. 11 um kvöldið með mótorbátnum Gísla Johnsen. Máttum við nú al- deilis hraða okkur við að hafa fata- skifti og taka saman dótið okkar, en mitt dót var nú ekki mikið. Var nú farið að borða og drekka eins og við gátum í okkur látið. Við komum niður á bryggju laust fyrir kl. 11, var þá komið fult af fólki á bryggjuna toil að kveðja okkur. Við kvöddum með söng, en lirópuðum siðan ferfalt húrra fyrir Vestmanna- eyjum, og þær aftur fyrir okkur. Síðan var farið að veifa fólksfjöld- anum, alveg sama hver var. Er við sigldum fram lijá vitanum var einnig fólk þar. Veðrið var gott alveg blankandi logn og sljettur sjór, en dálitil undiralda.. Þegar við fórum fram hjá Elliða- ey sáum við tvo menn vera að siga í bjarg, en sá tími var nú að byrja, þvi að átta menn cru komnir í Bjarnarey til þess að veiða fugla og ná i egg. Einn besti sigmaður Eyjanna heitir Svafar Þórarinsson, sem almennt gengur undir nafninu Svahbi í Suðurgarði. Býst jeg við að lians skemtilegustu stundir sjeu, er hann er að síga. Þegar við komum að landi, en það var undir Eyjafjöllum, varð að selflytja okkur upp í sandinn á litlum árabáti. í fyrsta bátinn fór Helgi kennari og frú, en þau voru okkur sam- ferða suður. Þótti okkur gaman að sjá hvernig farið var í land. Jeg fór i næsta báti og gekk lionum ver heldur en þeim fyrri. Við urðum að biða svo lengi eftir að aldan skelti okkur upp í sandinn. Urðu svo skipsmennirnir að hlaupa með bátnum út i ölduna og stökkva síðan upp í. Það voru farnar fjórar svona ferðir. i Er báturinn fór og skipsmennirnir kvöddu okkur, hrópuðum við fer- falt húrra fyrir þeim. Þarna voru fyrir í fjörunni þrír menn úr sveit- inni til að taka á móti okkur, voru þeir með jirjá reiðhesta og tvo kerru hesta. Ekki ,gátu allir haft þessa þrjá reiðhesta og urðu ])ví flest að ganga til bæja, en það var svona hálftíma gangur. Urðum við að fara sandana og vaða breiða ósa. En þegar komið var fyrir þá tók ekki betra við, þvi að nú óðum við rauðamýri, þar til komið var upp að túngarði. Vorum við öll mjög þreytt, svöng og syfjuð, og urðum við því fegin að komast í hús. Okkur var skift niður á tvo bæi Vesturholt og Austurliolt. Var okk- ur mjög vel tekið. Fengum við mjólk brauð og rúgkökur; en rúgkaka er uppáhaldið mitt. Við fórum að sofa kl. 3 e. m. Næsta morgunn vaknaði jeg við að Guðjón kom i dyrnar á herberg- inu mínu. Var nú farið að klæða sig. Vorum við öll búin að fá sokk- ana okkar þurra og var það mjög gott. Klukkan að ganga 11 var lagt af stáð gangandi, þangað sem bíll- inn beið. Var það rjett fyrir austan Hvamm. Þegar búið var að koma okkur fyrir í bílnum, var farið aust- ur að Skógafossi, en það er um klukkutíma akstur frá Hvammi. Er þessi foss mjög tilkomumikill, þegar staðið er nálægt honum, Er úðinn svo mikill að maður verður gegn- votur. Nú var snúið við, sömu leið til baka, en stoppað á Steinum og þar neytt matar. Fengum við hangiðkjöt, en samt ekki Hólsvalla. Síðan var haldið áfram að Selja- landsfossi og hann skoðaður. Er hann fallegur, en frekar vatnslítill. v Ekki gengum við samt undir foss- inn. Gaman hefði verið að stoppa við Gljúfrabúa og Paradísarlielli og einnig á Markarfljótsbrú, en það var ekki gert heldur haldið beint að Þjórsá. Þar var stansað, en þar er mjög fallegur garður, en lmsið stendur í eyði og er ljótt að sjá hvernig búið er að fara með það. Allar rúður og öll gólf brotin. Við komumst samt upp á háaloft. Þar funduin við tvær eiturslöngur, en þær voru dauðar. Nú var lagt af stað aftur út að Aðkomumaðurinn:. — Getið þjer vísað mjer á gott gistihús hjerna í bænum? Bæjarmaðurinn: — Já, jeg ráðlegg yður að gista á „Hotel Torino“. Þar fá allir gestirnir ókeypis nudd við gigt. — En jeg hefi ekki gigt! — Þá fáið þjer hana. Hjerna í bænum eru allir með gigt. Nútima-œska. Greta: — Han Pusi sagði, að jeg væri sú fyrsta og eina, sem hann elskaði. Rut: — Já, er han ekki altaf van- ur að lala svona fallega, blessaður! Blaðamaðurinn (í viðtali við ní- ræða kerlingu): — Þjer komuð úr sveitinni um fermingu hingað i bæ- inn og nú hafið þjer starfað hjer í 75 ár. Að liverju hafið þjer starfað? Sú níræða: — Að því að eignast nægilega peninga til þess að geta átt heima i sveitinni. — Er hún Friða altaf að leita sjer að. fyrirmyndar-eiginmannin- um? — Já — það er að segja, liún hefir strykað yfir „fyrirmyndar“. l Lárus: — Hvað mundir þú segja um að lána vini þínum luttugu krónur? Márus: —- Ekkert vildi jeg fremUr vilja gera. En jeg á bara engan vin. — Pabbi, — hafa slöngurnar hala? — Já, drengur minn. Það er það eina sem þær hafa. Tryggvaskála. Fengum við þar mjólk og kökur. Var nú lagt upp í síð- asta áfangann. Hvergi stoppað fyrr en í Reykjavík. Öll liefðum við gjarnan viljað vera lengur í Eyjum og hugsa jeg að við hefðum liaft nóg að skoða. Ekki sáum við Landakirkju. 1 fyrst- unni var liún bygð sem vigi. Vegg- irnir afar þykkir og gluggarnir litlir og kringlóttir. Mun þetta hafa verið þegar Tyrkjaránið var 1627. En nú er búið að breyta þessu öllu. Ekki fórum við upp á Heimaklett. Hann er 283 metrar á liæð. Alls staðar var okkur jafn vel tekið bæði í Eyjum og undir fjöllunum. Lýk jeg svo hjer þessari frásögn minni af þessari ógleymanlegu ferð, og þakka öllum er skemtu okkur og greiddu veg okkar. Hafalda. Hann: — Elskan min! Jeg get ekki látið raka mig á hverjum degi, því að það skemmir á mjer liörundið. Hún: —r Það getur vel verið. En þegar þú lætuin ekki raka þig á hverjum degi ,þá skemmir það hör- undið á mjer. Kennarinn: — Stíllinn þinn um hundinn er orði ti) orðs eins og stíllihn lians bróður þíns. Kalli: — Já, en við skrifuðum líka báðir um sama liundinn. — Heyrðu, livað á jeg að gera til þess að skerpa minnið, kunningi. — Lánaðu anjer fimtíu krónur til þ'ess fyrsta, og sjáðu hvort það dug- ir ekki. — Hverjum er hann eiginlega likur, litli drengurinn yðar? — Augun eru eins og í mjer, nef- ið eins og henni móður hans, og röddin held jeg sje eins og í bíl- horninu okkar. Kunningjakona: — Eruð þjer ekki hrædd þegar þjer sjáið manninn yðar vera að steypa sjer kolllinýsa i vjelinni þarna uppi í háa lofti? Frú flugmannsins: — Sei, sei nei. Jeg tek altaf peningaria úr vösum hans áður en liann fer að fljúga. Ættarmót. Gestkomandi frú: — Litli dreng- urinn yðar hefir augun hennar móð- ur sinnar. Húsfreyjan: — Já og munninn hans pabba síns. Drengurinn: — Já, og buxurnar hans bróður síns. /viv/wiviv Gamlir kunningjar. Árni: — Jeg hefi eklci sjeð, hann Sigurð fornkunningja okkar í tutt- ugu ár. Skilur liann altaf liárið í miðjunni? Bjarni: :— Já en skilin eru orðin tíu sentimetra breið núna. S k r í 11 u r. 4 --—.......................1

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.