Fálkinn - 19.11.1943, Side 7
F A L K 1 N N
7
Usbekistan heitir eitt af rikjunum í
sovjetríkjasambandinu og liggur norður
c.f Afganistan, j)ar sem áður var Turan.
Lifðu flestir þar hirðingjalifi hjer áður,
en hafa nú tekið sjer fasta bólfeslu og
lifa á jarðyrkju. íbúar Usbekistan ern
Múhumeðstrúar og miklir ofsamenn í
trúmálum. Á myndinni sjást nokkrir
bændur í Usbekistan með vinnubækur
sinar, til þess að taka á móti vikukaupi
sinu á samvinnubúinu. Er landið rúm-
lega 130.000 fermílur enskar en lands-
búar 685.000. Tashkent heitir höfuðborg-
in, er aðrir helstu bæir eru Dokhara,
Khiva, Kokand og Samarkand.
Hjer á myndinnt að neðan sjást helslu
forsprákkar nazista i Bandaríkjunum,
scm nú sitja altir í fangelsi. Eru þeir
(frá vinstri) Wilhelm Kunze, James
Weller Hill og Fritz Kuhn, sem var for-
muður „Deutsche Volksbund‘‘. Þeir eru
i nazistabúningum undir yfirhöfnunum.
i
Sumarið sem slríðið hófst fóru bresku
konungshjónin í heimsókn til Canada og
fcrðuðust þar víða um og fengu hinar
á'gætustu viðtökur. Er myndin hjer að
ofan tekin af konungshjónunum, er þau
voru stödd i Montreal. Með þeim er
Mackensie King forsætisráðherra, sem
oft heyrist getið í frjettum og mætir að
jafnaði fyrir hönd Canadamanna á op-
inberum alþjóðaráðstefnum.
Myndin að neðan er tekin úr njósnar-
flugvjel og sýnir mann með kíkir sinn
vera að gá að hentugum stað til þess
að varpa sprengjum á. Er vjelin þýsk
og myndin tekin yfir Englandi sumariö
1940, meðan mest kvað að loftárásum
Þjóðverja á Bretlandseyjar.