Fálkinn - 26.11.1943, Page 12
12
F Á L K r N N
GE0R5E5 EIMEnon í______________
Q
| Flæmska böðin
■wmmmm—ww—ubmmimw IHIHHll’11 llll
Anna sagði eiílhvað á flœmsku. Maigret
giskaði á að það þýddi:
„Þú hefðir átt að koma með stærra glas.“
Við og við heyrðist maður á trjeskóm
labba um bryggjuna. Regnið lieyrðist bylja
á þúðarglugganum.
„Mig minnir að þið hafið sagt mjer, að
hann hafi rignt þann þriðja. Rigndi laann
cins miltið þá og nú?“
„Já, það held jeg.“
Konurnar tvær voru lcomnar í sætin sín
aftur. Þær horfðu á Maigret, er hann bar
glasið að vörum sjer. Sannast að segja
hafði Anna aldrei augun af honum.
Hún var ekki nærri eins lagleg og móðir
hennar. Og svo átti hún ekki þetta góðlega,
bæga bros, sem móðir hennar hafði. Hafði
hún saknað Ijósmyndarinnar, sem liann
hnuplaði í herberginu hennar? Liklega
ekki. Ef svo liefði verið, þá liefði það á-
reiðanlega sjest á henni.
„Það eru þrjátíu og fimm ár síðan við
lcomum hingað,“ sagði frú Peeters. Við
byrjuðum á körfugerð hjerna. Svo byrjuð-
um við vlírsluh í ofanálag, og þá.bygðum
við hæð ofan á húsið.“
En hugur Maigrets var á ferð og flugi.
Hann var að imynda sjer Önnu fjórum ár-
um yngri, á gangi í skóginum með Gérard
Piedbæf.
Hvernig liafði þetta atvikast? Hverskon-
ar óráðsvíma hafði gripið liana? Eða var
Gerard svo laginn við kvenfólk, sem liann
ljest vera? Hvað hafði hún hugsað um þetta
eftir á?
Eitt þóttist Maigret alveg hárviss um.
Að þetta væri eina ástaræfintýrið, sem
hún hafði upplifað um æfina, og mundi
verða það siðasta.
Það var eitthvað seiðandi og dularfult
yfir þessu liúsi. Snapsinn átti meðfram
þált i því að einskonar heitur höfgi fjell
yfir hann. En eigi að síður hafði hann fulla
skynjan. Hann heyrði livert einasta hljóð
■— marrið í tágastólnum, smáhroturnar í
gamla manninum, og livernig rigninguna
hægði og lierli ....
„Vilduð þjer gera svo vel að leika þetta
lag fyrir mig áftur?“ spurði liann Önnu.
Hún ætlaði að fara að færast undan, en
rnóðir hennar tók fram í:
„Já, gerðu það .... Hún spilar vel, finst
yður það ekki? IJún hafði þrjá tima á viku
í sex ár, hjá besta kennaranum í Givet.“
Anna fór inn i dagstofuna og skildi báð-
ar hurðirnar eftir opnar á eftir sjer. Þau
heyrðu hana opna hljóðfærið, svo rendi
liún hægri hendinni eins og af tilviljun >rfir
nótnaborðið.
„Hún ætti að syngja,“ muldraði frú Peet-
ers. „Að vísu hefir Marguerite betri hljóð,
vitanlega. Það kom meira að segja til mála,
að hún færi á tónlistarháskólann.“
Hljómarnir bárust um hljótt húsið. Anna
hafði byrjað að spila. Gamli maðurinn svaf
enn, án þess að nokkur skifti sjer af því,
og konan hans, sem var hrædd um að hann
mundi missa pipuna sína, tók liana var-
lega úr liendi hans og hengdi liana á nagla
uppi á þili.
Hvað var Maigret að gera hjerna? Var
hann í rannsóknarerindum? Ilafði hann
komist á nokkurt spor?
Frú Peeters hlustaði, leit oft upp úr blað-
inu, sem hana langaði þó að halda áfram
rð lesa, að því er virtist. En þarna hefði
önnur manneskja átt að sitja við borðið
líka — María, að leiðrjetta stíla nemenda
sinna.
Og þar með var alt fengið. — Eða liefði
verið, ef allur bærinn hefði ekki. verið að
saka þau um svívirðilegt morð, sem hafði
verið framið einmitt á svona lcvöldi.
Maigret hrökk upp við að dyrabjöllunni
var hringt. Sem allra snögvast hefði hann
nærri því geta látið sjer detta í hug, að
hann væri þremur vikum yngri, og að það
væri Germaine Piedbæuf, sem væri að kom
inn til þess að rukka um liundrað franka
mánaðarmeðgjöf með barninu sínu.
Þetta var prammakarl í olíufötum, og
rjetti fram litla flösku og hað frú Peeters
að fylla hana með einiberj abrennivini.
„Átta franka.“
„í belgiskum peningum?“
„Nei, frönskum. Eða tíu í belgiskum, ef
þjer viljið það heldur.“
Maigret stóð upp og gekk gegnum húðina.
„Eruð þjer að fara, svona fljótt?“
„Jeg kem aftur á morgun.“
Þegar út kom sá hann prammakarlinn
á leið um borð. Fulítrúinn leit við og horfði
á húsið. Ljósið logaði í búðarglugganum.
Þetta var eins og á leiksviði, þar sem veik-
ur ómur af tónum heyrist að haka til.
Fallegir, viðltvæmir tónar. Anna var að
syngja.
Maigret göslaði í forarpollunum. Rign-
ingarúrhellirinn slökti von bráðar í píp-
unni lians.
Og nú var það allur Givet-bær, sem var
líkastur leiksviði. Prammakarlinn var horf-
inn, og Maigret sjálfur var eina persónan,
sem eftir var á leiksviðinu. Alt í kringum
hann voru ekkert nema ljósin, hálfbvrgð
bak við gluggatjöldin, og niðurinn í Meuse,
sem smámsaman kæfði tönana, sem liöfðu
f j arlægst.
Þegar hann hafði gengið svo sem tvö
hundruð metra sá hann bæði húsin. Bak
við hann var flæmska búðin, en skamt frá
honum til hægri var hreysi Piedbæufs.
Þar sást ekkert ljós uppi, en hinsvegar
var ljós í ganginum. Nu m.undi barnið vera
komið í bólið sitt. Skyldi nokkur annar vera
heima? Það var lítið gaman að því, fyrir
ungan mann eins og Gerard að hýrast ein-
an heima. Eða kanske yfirsetukonan ....
Maigret var daufur í dálkinn. Sjaldan
hafði honum fundist hann vera að inna af
hendi jafn fánýtt starf og núna.
Og hvað var liann eiginlega að vilja. —-
Ilafði liann verið sendur liingað? Peeters-
fólkið var sakað um að liafa myrt stúlkuna,
en það voru ekki einu sinni sannanir fyrir
þvi að hún væri dauð.
Kanske hafði hún lifað lengur, en liún
gat afborið — þessu dapurlega lífi þarna
í Givet. Kanske hafði hún bundið enda á
það sjálf. Kanske var hún einmitt núna í
Rruxelles, Rheims eða París — að drekka
með kunningjunum, sem höfðu tekið liana
að. sjer á gölunni?
Þó að hún væri dauð, þá var ekki þar
með sagt, að hún liefði verið drepin. Hvers-
konar viðtökur hafði hún fengið lijá Peet-
ers? Höfðu þau knúð hana út i örvæntingu
með þvi að segja, að hún skyldi aldrei gift-
ast Jósepli? Og hafði hún farið beint út og
fleygt sjer í ána?
Engar sannanir. Ekki einu sinni lítilfjör-
legar líkur. Hafði ekki Machére gert alt sem
hann gat? Og samt miðaði honum ekkert
áfram, og allar horfur voru á, að rnálið yrði
lagt á liilluna, óráðið.
Hvers vegna hafði Maigret farið að sletta
sjer fram í þetta? Einu sinni enn: Hvað
var hann að vilja þarna? Það var enginn
vafi á svarinu, sem flest fólk í Givet hafði
gefið honum við þeirri spurningu! Hann
hafði verið leigður af Belgunum til þess
að sanna saldeysi þeirral
Yerksmiðjan var beint fram undan hon-
um, á hinum árbakkanum, og' þar logaði
einn einasti rafmagslampi i garðinum. Auk
þess var þarna að .eins eitt ljós, í glugga
varðmannsins, við hliðið.
Piedbæuf gamli mundi vera á verði núna.
Hvað skyldi liann aðhafast til þess að drepa
tímann á nóttunni?
Og án þess eiginlega að vita ástæðuna
til þess, stefndi Maigret beint upp að brúnni
með hendurnar djúpt í vösunum. I kránni,
sem liann hafði komið inn í um morgun-
inn, töluðu prammakarlarnir og dráltar-
bátamennirnir svo liátt saman, að orðin
heyrðust yfir þverán hafnarbakkann, en
Maigret staðnæmdist ekki til að hlusta.
Stormurinn mæddi svo mjög á brúar-
strengjunum að þeir titruðu. Brú þessi hafði
verið hygð i stað gömlu steinbogabrúarinn-
ar, sem eyðilagðist í stríðinu. Hinu megin
árinnar var árbakkinn ekki einu sinni stein-
lagður, og Maigret varð að vaða forina í
ökla. Flækingshundur liafði hreiðrað um
sig í skjóli við livíta skjólgarðinn við verk-
smiðjuna.
Þegar Maigret nálgaðist hliðið sá hann á
husinn á Piedbæuf í dyrunum á varðmanns
skýlinu.