Fálkinn - 14.01.1944, Page 2
2
F Á L K I N N
LAXFOSS STRANDAÐUR
Síðastliðið mánudagskvöld barst
sú fregn eins og eldur i sinu um
Reykjavík, að „Laxfoss“ væri strand-
aður á skeri skamt út af Örfirisey,
með nær hundrað manns um borð
Og að mjög væri tvísýnt um, hvort
tekist gæti að bjarga þessu fólki.
Að vonum sló óhug á alla við þessa
fregn. Var að verða liörmulegasta
sjóslys í sögu nútiðarmanna — eða
mundi rætast betur úr en á liorfðist.
„Laxfoss" var að koma úr Borg-
arnesi, hafði farið þangað'aukaferð
á iaugardaginn, til þess að sækja
farþega að norðan, en síðar orðið
að bíða þar, vegna þess að norðan-
fólkið liafði tafist vegna ofviðra og
ófærðar. Fólkið kom svo í Borgar-
nes undir hádegi á mánudaginn
* eftir að hafa ferðast alla nóttina og
síðdegis lagði „Laxfoss" af stað með
skipshöfn og farþega, alls 91 manns.
Vörur voru litlar i skipinu.
Veður var hið versta. Eftir frostið
mikla á sunnudaginn hafði linað
en hvest mjög, svo að ofviðri mátti
kalla, og gekk í dimmum jeljum, auk
þess sem aldiint var orðið. Klukkan
7.20 um kvöldið tók skipið niðri á
skerinu að framan og brotnaði þar,
en var á fioti að aftan. Kom nokk-
ur sjór þegar í skipið, en það stóð á
rjettum kili alt að fjóra tíma, en valt
þá nær því á liliðina. Var þegar
sent út neyðarkall.
Var nú þegar brugðið við og
Slysavarnafjelagið sendi björgunar-
áhöld út í Örfirisey og var reynt að
skjóta línu út í skipið, en eigi kom
sú tilraun að haldi. Þótti tvisýna á,
að hægt væri að bjarga fólkinu beint
í land, en þó komst einn bátur milli
skips og eyjar og hafði með sjer
fjórar stúlkur í land.
Var nú gerð björgunartilraun
sjóleiðis. Dráttarbáturinn „Magni“
fór á vettvang með björgunarbát, er
Slippurinn átti, og ennfremur fór
þangað landgöngubátur frá setulið-
inu og hafnarbáturinn. Lagði land-
göngubáturinn að „Laxfoss“, eftir að
hann var kominn i var af „Magna“,
og komust farþegar fyrst i land-
göngubátinn, en voru fluttir þaðan
jafnóðum í „Magna“. Tókst greið-
lega að bjarga farþegum og áhöfn,
en það mátti ekki seinna vera, þvi
að skipið var komið á hliðina og var
orðið fult af vatni undir þiljum.
Höfðu farþegar verið um fjóra tíma
í hinu strandaða skipi. er þeim var
bjargað. En mjög er það rómað af
skipshöfninni, með hvilikri stillingu
farþegar tóku þessu áfalli. Þarna
voru allir rólegir og biðu þess sem
koma skyldi, og ekki varð vart neins
troðnings eða hrindinga er björg-
unin hófst. Komst fólkið undir þak
um og eftir miðnætti og varð húsa-
skjólinu fegið eftir andvökur og
langa og erfiða ferð að norðan, sem
lauk með strandi við bæjardyr höf-
uðstaðarins. Má það heita mesta
mildi að enginn týndi lífi við þetta
slys, og að enginn hefur beðið heilsu
tjón af volkinu, en eigi liafa neinar
frjettir um slíkt borist. — —
Þegar jietta er ritað er enn eigi
útsjeð úm hvort takast megi að
bjarga „Laxfossi". Skipið er mikið
brotið en liggur í líkum skorðum
og þegar fólkið fór úr því, en bú-
ast má við að ef veður breytist til
liins verra frá þvi sem nú er, muni
það brotna i spón. Er það mikill
skaði, bæði eigendum og öllum al-
menningi, sem ferðast á áætlunar-
leiðinni til Borgarness, því að liverf-
andi litlar líkur eru til þess, að
hægt verði að fá skip í þessar ferð-
ir í staðinn, sist nokkuð i líkingu
við það, sem „Laxfoss11 var. Það
þótti í mikið ráðist, þegar liluta-
fjelagið „Skallagrimur“ rjeðist í að
láta smíða skip, sem sjerstaklega
væri ællað til Borgarnesferða, skip
með ágætu farþegarúmi, vel lirað-
skreitt og færl um að taka bifreið-
ar á þilfar. Mæltist sú samgöngubót
vel fyrir hjá öllum þeim, sem af
henni höfðu að segja.
„Laxfoss" hóf siglingar um Faxa-
flóa í júlí 1935 og hefir síðan verið
stöðugt í þeim ferðum, auk lengri
ferða, svo sem til Vestmannaeyja.
Um hásumarið hefir skipið oft farið
ferðir í Borgarnes dags daglega og
jafnvel tvær ferðir á dag um helg-
ar.
Og enginn íslendingur mun liafa
farið sömu sjóleiðina eins oft og
skipstjórinn á „Laxfoss", Pjetur
Ingjaldsson skipstjóri, sem áður en
þetta skip kom til sögunnar hafði
siglt þessa áætlunarleið áratugum
saman, á „Suðurlandinu“ og fleiri
skipum, og jafnan verið hinn happa-
sælasti farmaður. Það er ekki ólík-
legt, að honum finnist því líkt
nú, sem liann hafi mist góðan vin.
En enginn iná að sköpum renna.
Og lán er það i óláni, að ekkert
mannslif skyldi glatast við strandið.
Það er fyrir mestu.
Frú Ilelga Kristjánsdóttir frá Dýra-
firði, nú til heimilis á Fjólugutu 16
Akureyri, varð 75 ára jjann 5. janúar.
Jóhanues UeyKdat, verksmiojueig-
andi verður 70 ára 1S. þ. m.
Valdimar S. Long kaupm. í Hafnar-
firði varð 60 ára 9. þ. m.
Jón Jónsson, Firði Seyðisfirði, verð-
nr 70 ára 17. þ. m.
1. Skaðar ekki föt eða karl-
mannaskyrtur. Meiðir
ekki hörundið.
2. Þornar samstundis. Not-
ast undir eins eftirrakstur
3. Stöðvar þegar svita,
næstu 1-3 daga. Eyðir
svitalykt, lieldur handar-
krikunum þurrum.
4. Ilreint, hvítt, fitulaust.
ómengað snyrti-krem.
5. Arrid hefir fengið votl-
orð alþjóðlegrar þvottar-
rannsóknarstofu fyrir þvi
að vcra skaðlaust fatnaði
A r r i d er svitastöðv-
unarmeðalið sem
selst mest
. . . reynlð dós I dag
MRIÐ
Fæst f dllnm betri biiðum
KIÐ NTJA
handarkrika
CREAM DEODORANT
stöðuar suitan örugglega
w
HÖFUNDUR SKRÚFLYKILS-
INS LÁTINN.
Sænski hugvitsmaðurinn J. P.
Joliansen, sem fann upp skrúflyk-
ilinn og áhaldið til þess að skera
sundör pipur, dó i sumar í Enköp-
ing í Svíþjóð, 90 ára gamall. Hann
var gott dæmi hinna mörgu liug-
vitssömu tæknisnillinga, sem Svíar
eiga svo marga af. Faðir lians var
fátækur smábóndi, en sonurinn byrj-
aði að vinna fyrir sjer sem lijálpar-
drengur í lítilli smiðju. Kom þá
þegar i ljós hversu ágætri hugvits-
gáfu hann var gæddur. Síðar stofn-
aði hann smiðju sjálfur og starfaði
meðal annars að vatnspípulögnum.
Honum leiddist mjög live seinlegt
var að vinna með verkfærum þeim
og töngum, sem notaðar voru við
pipulagnir í þá daga og einsetti sjer
að finna önnur betri. Árangurinn
af þeim heilabrotum var skrúflyk-
illinn, sem liægt er að færa fram
og aftur eftir gildleika þess, sem við
er átt og skera með honum pípuna,
og nokkru síðar bjó hann til liinn
venjulega skrúflykil, sem heita má
að til sje á liverju heimili, sem ann-
ast smáviðgerðir sjálft. Hafa tæki
þessi náð útbreiðslu um allan heim.
Fram til síðustu stundar vann
Johansson sjálfur í vjelsmiðju sinni
við allskonar tilraunir, og gerði nýj-
ar uppgötvanir. Var hugkvæmni
lians jafnan söm og jöfn. Alls gerði
liann yfir 500 uppgötvanir.