Fálkinn - 24.03.1944, Page 11
F Á L K I N N
11
Bókafregn
Jónas Jónsson:
RAUÐAR STJÖRNUR.
ísafoldarprentsmiöja h.f. 1943.
Rit þetta væri stærðar bók, ef
það væri. prentað ó tískupappír ís-
lendinga, sem mest er notaður nú
á tímum stríðs og flutningavand-
ræða. En Rauðar Stjörnur láta lítið
yfir sjer hvað þetta snertir. Þykt
hennar svarar tii svo sem þriggja
arka á tískupappírinn, en þó eru
arkirriar 4-5 sinnum fleiri.
Rauöar Pennar lijet rit, sem hald-
ið var úti hjer um skeið, af róttæk-
um sócialistum. Mætti geta sjer þess
til, að heiti hinnar nýju bókar væri
valið til samræmingar við það, þvi
að kápan er með rauðum lit. Og
öll hókin er ádeila á kommúnista —
þ. e. þá íslensku, — og á tískulist-
ina, í hókmenntum og línum og lil-
um, sem höf. telur allskylda kommún
istum, á ýmsa vegu.
Bókin skiftist í tvo aðalkafla, er
heita: Sex skjöl um kommúnista og
Eftirmáli. En skjötin sex um komm-
únistmann nefnist: I. Stríð kommún-
ista við öxulríkin, II. Heigi íslenskra
fornrita, III. Nauðungatvíbýlið í ís-
lenskum kaupstöðum, IV. Andlát
Húsavíkur-Lalla, V. Mr. Ford og bol-
sjevikar, og VI. í fylgd með Leon
Blum. — En í eftirmálanum kem-
ur nánari skilgreining á efni hvers
fyrrnefnds þátts.
„Á Alþingi í vetur sýndu verkin
merkin um áhrif kommúnista á
islensk stjórnmál." segir höf. í for-
málanum, sem skrifaður er 15. ág.
1943. „Alþingi var að vissu leyti
óstarfhæft fyrir upplausn, er staf-
aði af óhrifum þeirra. Hin langa
þingseta og hin litlu afköst voru
alveg sjerstaklega kommúnistum að
kenna.“
Þetta er tilefni höf. til þess að gefa
út ofangreinda bók.
Fyrsti kaflinn er viðvíkjandi
stefnu kommúnista i utanrikismál-
um, og er tilefni hans tillaga, er fram
kom frá sócialistum, á Alþingi i
fyrra. Annað málið er sprottið út
af útgáfu Halldórs Laxness á Lax-
dælu, en í tilefni af henni fhitti
Jónas á þingi frumvarp, varöandi
Jielgi ísleilskra fornrita. Þriðja er
um verndun heimilisins gegu slikuni
ráðstöfunum og þeir Har. Á. Sigurðs-
son og fjelagar hans sýna i skopleikn-
um „Leynimel 13“. — Fjórða slcjalið
snýst einkum um deilur liöf. sem
formanns Mentamálaráðs við lista-
menn, og sama er að segja um hin,
og deilir hann þar einkum á Hall-
dór Laxness og Kristinn Andrjesson.
— Fyrri hlutinn, skjölin, eru öll
þingskjöl, sem höf. liefir ótt frum-
kvæði að, sem alþingismaður. En í
eftirmálanum eru málin reifð nánar
og fá þar margir sína .sneið. Ilvort
þær sneiðar eru verðskuldaðar eða
ekki, skal enginn dómur lagður ó-
hjer.
En flest af þeim málum, sem höf.
drepur á í bók sinni liafa verið liita-
mál mikil, og eigi að öllu sjermál
flokkanna. Því mun margan fýsa
að sjá greinargerðir þess stjórnmála-
manns, sem mest veður hefir stað-
ið um af öllum þeim, sem nú lifa, —
og íhuganir hans ó þeim málum.
Jón Árnason prentari:
Um stjðrnaspeki.
Eins og gefur að skilja, er jiessi
lýsing stjörnumerkjanna almenns eðl-
^jS og er ýmsum breytingum undir-
orpin. Kemur þar me'öat annars til
greina í hvaða merki dýrahringsins
sú plóneta er stödd, sem ræður yfir
því stjörnumerki, sem er á austur-
sjóndeildarhring, og afstöður þær,
er liún hefir til annára plóneta. —
Allt þetta styrkir eða veikir eðlis-.
kosti þá og liæfileika, sem sjáan-
legir eru i merkinu. Og sama máli
er að gegna um afstöður sólar og
tungls, er dæma ó um einstaklings-
eðlið eða tilfinningalíf þess sem
um er að ræða.
Oftlega ber það við, er stjörnu-
speki ber á góma, að spurt er um
undir hvaða stjörnumerki þessi eða
hinn sje fæddur. Er þá æfinlega átt
við það, í hvaða merki dýrahrings-
ins sólin sje stödd og eðlislýsingarn-
ar byggðar á því. í framanskráðu er
átt við alt annað. Því má ekki blanda
saman. Það er eingöngu, að þessar
lýsingum getur nokkurnveginn borið
saman því að þá eru áhrif þau,
maður er fæddur urn hádegisbil eða
um sólaruppkomu. Sje fæðingar-
stundin ó öðrum tima sólarhnngs,
ber þessum tveimur lýsingum ekki
saman þvi að það eru álirif þau,
sem það merki hefir, sem sólin er
stödd í, að miklum mun vægari. —
Flestar byrjunarbækur miða við
sólarafstöðuna eingöngu og lelja að
þessi og hinn sje undr því merki,
sem sólin er i á fæðingardaginn.
Maður, sem fæddur er á tímabilinu
fró 21. til 30. marz er undir áhrifum
hrútsmerkisins, því að þá er sólin
í því merki. Hann ætti að vera mjög
duglegur maður, og baráttumaður
mikill, en sje hann fæddur tveim
timum eftir sólaruppkomu, er naut-
ið komið upp á sjóndeildarhringinn
og er hann undir óhrifum þess og
Venusar. Hann væri þvi alveg laus
við að vera baráttumaður og óber-
andi fylginn sjer, en hægur þybb-
inn i skapi, fastur fyrir; og lista-
maður mikill ætti hann að vera.
Áður en jeg skil við dýrahring-
inn, vil jeg aukritis geta þess, að
samkvæmt skýringum Mr. Henry
van Stones í bók lians „The Path-
way of the Soul“ (vegur sálarinnúr),
megi með tilliti til mannkynsins i
heild sinni finna einmitt i dýra-
hringnum þroskabraut þess, fortíð,
núverandi ástand og framtið, þvi að
í gegnum dýrahringinn verðum við
að fara og endurtaka nómsatriðin
unz við höfum náð fullkomnu sam-
ræmi við hann, höfum hafið okkur
upp yfir allar lægri sveifluhreyfing-
ar hans, höfum náð því sem kallað
er: Manneg fullkomnun.
Tvö l'yrstu merkin: Hrútur og
naut teljast að vissu leyti fortið
mannkyns, en tviburinn, krabbinn,
Ijón, mey, vog, sporðdreki, skotmað-
ur og steingeit teljast núverandi
þroskaskeiði manna. En tvíburinn er
táknaður með tveimur súlum, það
er þekking, sem fæst í gegnum hugs-
un og athugun undir áhrifum Mer-
kúrs. Mennirnir eru komnir inn á
svið hugsanarinnar, eru að þroska
hana með sjer, ásamt tilfinninga-
Iífinu, alla leið til steingeitarinnar,
sem að lokuin klifrar örðugusta
bjallan að dyrum musterisins, sem
varðveitir hina guðdómlegu visku,
en fyrir dyrum þess situr Satúrn,
liinn mikli dómari himnanna og
lieldur á lyklum musterisins og
sverði rjettlætisins og fram lijá hon-
um kemst enginn óverðugur. En
fyrir þ’eim, sem hefir fullnægt kröf-
unum til þess að öðlast hina æðri
visku, mun hann opna, og úr þvi
fetar hann út ’í slrauminn. Er hann
úr því heimilisvana vegfarandinn,
sem fetar hinar dulrænu brautir og
eru þær táknaðar í vatnsberanum
og fiskunum, sem eru merki fram-
tíðarþroska mannkyns undir áhrif-
um Úrans og Neptúns. Er sú fyrri
pláneta talin dulspekileg (okkult),
en sú síðari dulhyggjuleg (mystisk).
Eru plánetur þessar taldar heimilis-
vana vegfarendur í ríki himnanna,
því að þær hafa ekkert sjerstakt
merki dýrahringsins til umráða.
Pláneturnar.
Sólin. — Stjörnuspekin telur sól-
ina með plánetunum, þvi að hún
athugar áhrif hennar á jörðina og
líf liennar ekki siður en þeirra,
enda er það í mörgu tilliti ennþá
Ijettara viðfangsefni, eins og gefur
að skilja, því að almennt verða
menn frekar varir þeirra álirifa
en nokkra annara.
Sólin er lífgjafinn. Hún viðheld-
ur öllu lífi i sókerfinu. Vekur hún
starfið, dugnaðinn og orluina í öllu
mönnum og dýrum, jurtum og jafn-
vel í steinum, þvi allt, sem til er,
er undir áhrifum hennar og fær
endurnæringu sina og viðhald frá
henni. Er hún . hin milda orkulind
afls og hreysti. Ræður hún Ijóns-
merki, lijartanu og hægra auga.
Táknar hún konunga, menn í háum
stöðum, yfirmenn allskonar og alla
þá sein hafa mannaforráð og þá er
starfa í þágu stjórnarinnar og hjer-
aðsstjórna.Að öðru leyti sýnir merk-
ið, sem sólin er í, hvert sje lífsstarfs
þess manns, sem um er að ræða
einkum ef hún er í hádegisstað er
hann fæðist. Táknar hún einnig'
föður og einstaklingseðlið. Gullið
er málmur hennar og sunnudagur
er dagur liennar.
Tunglið. ■—■ Samkvæmt veriju-
legum stjörnuspekisskýringum tákn-
ar það tilfinningalifið. Alverufræði
lega sjeð táknar það móðirina og efni
það hið smágerða í ljósvakanum,
sem i eru mótaðar frummyndir
mannslíkamans. Er það sambands-
liður á milli anda og efnis, á milli
jarðarinnar og sólarinnar, meðal
annars með því að það endursendir
jörðinni geisla sólarinnar á nóttum.
Stendur tunglið í nánu sambandi við
pcrsónulejkann. Málmur þess er
silfur og litur þess er silfurhvítt og
fjólublátt og dagur þess er mánu-
dagur. — Telst tungli almenningur
allur, allt liið kvenlega, móðirin,
húsfreyjan,, ferðalangur, sjómenn,
fiskimenn, þjónustufólk, eldabuskur,
hjúkrunarfólk, einnig trúboðar, hús
og landeignir.
Merkúr er sá sem hugsar. Hann
hefir náið samband við taugakerfið
er breytilegur i áhrifum og að vissu
leyti opin fyrir þeim. Málmur lians
er kvikasilfur og litur hans er gult.
Ræður hann miðvikudegi. Honum
teljast tungan, hendurnar, liugsana-
lífið, minni, mál, fræðsla, bræður,
ájónar allir, ritað mál, blöð, brjef,
boðberar, ritarar, kennarar, rit-
hiifundar, ritstjórar, verslunarerind-
rekar, ræðumenn, bóksalar ofl. Er
hann pláneta þekkingar, en mjög fer
sá hæfileiki eftir því, hver sú plá-
neta er, sem hann hefir sjerstaka af-
stöðu til. Ef Merkúr rís á austur-
himni, er maður fæðist, þá er liugs-
analífið fjörugt og fljótt að taka á-
lyktanir, liefir ástæður á reiðum
höndum og getur oft og tiðum verið
linittið í tilsvörum. Hneigist til
þekkingar á vísindum, bókmenntum
og fræðslu ýmiskonar. Ræðumanns-
hæfileikar koma í Ijós, einkum ef
hann er i aðalmerki 10. húsi.
Meira.
Kunnir
kuikmyndalEikarar
3. VIVIAN LEIGH
er ein af hinum upprennandi dísum
kvikmyndanna, þó að enn sjer hún
ekki komin í „háIaunaflokkinn.“ —-
Hún verður þrítug 5. nóvember í
haust, og er fædd austur í Calcutta
í lndlandi en þar var faðir hennar
]iá miðlari. Hjet hann Ernest R.
Hartley, en móðirin Gertrude Robin-
son. — í barnæsku ferðaðist Vivian
víðsvegar um Evrópu og gekk í skóla
bæði i London og Paris, Ítalíu og
Bayern. í París gekk hún á sama
klausturskólann og Mauren O’Sullivan
og voru þær í sama bekknum. —
Þar kom hún í fyrsta skifti á leik-
svið. Úað var i „Jónsmessudraum“
Shakespeares, sem leikinn var þar
i skólanum. Síðar fjekk hún tilsögn
i leiklist hjá einni leikkonunni á
Comedie Francaise.
Og nú sagði liún foreldrum sinum
frá þeim ásetningi sínum að gerast
leikkona og samþykktu þau það.
Gekk hún því næsl á leiklistarhá-
skólann i London og hjelt áfram
námi i mörg ár áður en hún reyndi
til að fá hlutverk á leiksviði. Loks
þóttist lnin undir það búin og ljek
fyrst tvö lítilvæg hlutverk, en tókst
eigi miður en svo að lienni var boð-
ið stórt hlutverk í leik, sem lijet
„The Green Sash“ og ljek þar með
svo miklum ágætum, að leikfjelagið
varð að flytja sig á annað stærra
leikhús vegna aðsóknarinnar.
Frh. á bls. 13.