Fálkinn


Fálkinn - 30.06.1944, Blaðsíða 5

Fálkinn - 30.06.1944, Blaðsíða 5
F A L K I N N gert að hugsjón sinni og fórnað svo miklu fyrir. Það á sín sögulegu rök, að það stjórnarform, sem íslenska þjóðin hefir nú kosið sjer, er lýðveldi en ekki konungdæmi. — Vjer höfum lotið konungum, en þeir hafa vcrið erlendir. — Vjer höfum aldrei átt kost á að mynda sögulega h'efð um íslenskan konung og þvi ekki átt konung sem sjálfsagt eininga’’merki þjóðarinnar. Það er lýðveldisfyrir- komulagið, sem minningarnar um blómatið islenskrar menningar eru bundnar við. Þessar eru ástæðurnar fyrir á- kvörðun þings og stjórnar nú, en ekki það að skifti vor við konung eða sambandsþjóð vora hafi veitt efni til óánægju. Sambandsþjóðin hefir efnt samninginn heiðarlega og konungur hefir farið með konungs valdið sem góðum þjóðhöfðingja sæmir. Samúð milli sambandsþjóð- anna hefir aukist þau 25 ár, sem sáttmálinn stóð. V'jer hörmum það, að ytri táim- anir sem hvorugum aðila eru viðráð- anlegar, hafa aftrað því að viðræð- ur þær, sem sáttmálin gerir ráð fyrir, gætu farið fram nú á undan lýðveldisstofnunni. Jeg hygg að flest- ir eða allir íslendingar hefðu frekar kosið það, þótt niðurstaðan væri fyrirfram ákveði af vorri hálfu. Enda voru ályktanir Alþingis frá 17. maí 1941 birtar konungi og dönsku stjórninni rjetta stjórnarieið á sínum tíma, þegar eftir að þær voru gerðar. Og með þjÓðaratkvæða- greiðslunni 20.—23. maí liefir raun- verulega verið fullnægt í miklum meiri mæli en sambandssáttmálin gerði ráð fyrir, þeirri tjáningu þjóð- arviljans, sem hlýtur að skoðast sðm meginatriði um form það fyrir fullnaðarslitum á sambandinu, sem sambandslögin ákveða. Af jiessum ástæðum verða ákvarð- anir islensku jijóðarinnar um sam- bandsslit og lýðveldisstofnun nú ekki sambærilegar við nein sam- bandsslit milli lijóða, þar sem skort hefir lagagrundvöll að alþjóðarrjetti fyrir slitunum. Einn af aðalleiðtogum frjálsra Dana komst svo að orði i brjefi til min alveg nýlega, að hann hafi þá trú, að eins og árið 1918 varð til þess að bæta sambúðina milli landa okkar og lijóða, jiannig muni einnig verða það sama um árið 1944. Að því vilji hann vinna. Jeg er þess fullviss að flestir eða allir íslend- ingar beri líkar hugsanir i brjósti. Aðdáun vor fyrir hetjubaráttu kon- ungs og dönsku jijóðarinnar nú styrkir vinarþel vort til beggja. Yjer erum norræn lijóð og höldum áfram að vera það. Þessvegna eru vin- áttuyfirlýsingar hinna bræðraþjóð- anna norrænu oss sjerstaklega kær- komnar. Núverandi forsætisráðherra komsl m. a. svo að orði í útvarpserindi fyrir rúmum þremur missirum siðan „Með lýðveldismyndun stigum við engan veginn lokasporið i sjálf- stæðismálinu. Lokasporið eigum vjer aldrei að stíga. . .. .Sjálfstæðisbaráttan er i fullum gangi. Núverandi styrjöld og siðustu timar hafa fengið oss ný og mikil- væg viðfangsefni í sjálfstæðismálinu, viðfangsefni sem vjer verðum að glíma við á næstunni, verða auð- vitað ekki talin i stuttu máli svo tæmandi sje. En þau eru að ýmsu 5 leyti svipuð jieim viðfangsefnum, sem margar aðrar þjóðir hafa þegar gert sjer ljóst að fyrir þeiin liggi og hafa búið sig undir að giíma við þau. Eins og kunnugt er, mæðir þungi styrjaldarinnar ekki síst á nágranna- þjóð vorri, Bretum. Þeir byggja eyland eins og við. Þeir verða því að fá talsvert af nauðsynjum sínum frá öðrum löndum og verða því að geta selt öðrum sem mest af fram- leiðslu sinni umfram eigin nauðsynj- ar. Hjer má draga sandíkingar, sem eiga við lijá oss. En margt er þó ólíkt. Fyrir styrjöldina var Bret- land talið mjög auðugt land, þar sem fjöidi manns gat veitt sjer meiri lífsþægindi en vjer höfum nokkurn- tíma þekkt. Bretar hafa liegðað sjer eftir breyttum viðhorfum. Þeir hafa kunnað að breyta lífsvenjum sín- um svo, að nú er hverjum jiar i landi skamtaður biti úr hendi, bæði um mat drykk, klæðnað og annað sem talið er lífsnauðsynjar. Þeir hafa gert það upp við sig að þessu verði að halda áfram að minsta kosti nokkur ár eftir styrjöldina. Allir vinnufærir Bretar, karlar og konur, vinna „með einni sál“ tii þess að vinna styrjöldina og vinna friðinn á eftir. Þeir geta með stolti bent á þá staðreynd, að þjóð þeirra hefir lirátt fyrir takmarkaðra viðurværi en áður bætt heilsufar sitt á striðs- árunum frá því sem áður var, og þó eru flestir sona þeirra, þeir sem hraustastir eru líkamlega, á vig- völlunum. Þeir liafa nú þegar allan hug á ráðstöfunum til þess að tryggja útflutningsverslun sina að styrjöld- inni lokinni. Vjer íslendingar tölum oft um það, í ræðum og riti, að land vort sje auðugt. En framandi mönnum, sem koma frá frjósömum löndum, mun ekki lcoma land vort svo fyrir sjónir, að það sje auðugt land. Og þó er það svo auðugt, að lijer hefir haldist bygð í meira en þúsund ár, þrátt fyrir plágur og liörmungar; þrátt fyrir það að oss hafi um marg- ar aldir verið meinað að njóta ávaxta vinnu vorrar; og þrátt fyrir það rányrkjusnið, sem löngum hefir ver- ið á atvinnuháttum vorum, saman borið við ræktúnarmenningu margra annara þjóða. Jeg lield að kalla mætti ísland auðugt land ef vjer gætum jiess i sjálfstæðisbaráttunni, sem er fram- undan, að vinna öll án undantekn- ingar með aukinni þekkingu og not- færa oss aukna tækni nútímans. Það er vinnan, framleiðslan, sem ríður baggamuninn um auð eða fátækt þjóðanna. Fyrsta skilyrðið til þess að vinna friðinn að fengnum umráðum yfir öllum málum vorum, mætti þvi lýsa með þessum orðum: Vinna og aukin þekking. Þess vegna ber að leggja mikið í sölurnar á þessu sviði. Öllum vinnu færum körlum og konum verður að reyna að tryggja vinnu við þeirra hæfi og reyna að gefa þeim kost á aukinni jiekkingu við hvers hæfi. Að vísu er vinnan venjulega nauð- synleg til þess að afla einstaklingn- um lífsviðurværis. En vinna vegna vinnunnar, vegna vinnugleðinnar, er áreiðanlega meira virði en atvinnu- leysi eða iðjuleysi. Jeg lield að segja megi, að atvinnuöryggi það, sem fólst í því að flestir unnu að land- búnaði, og voru bundnir við jórð- ina, sem alltaf var gjöful, hafi átt mikinn þátt í því að halda lífinu í íslensku þjóðinni á hörmungar- tímum, þó við fátækt væri oft að búa. Slikt vinnuöryggi þarf nú að skapa með breyttum viðhorfum. Vinnuöryggið held jeg að verði aðalatriðið. Hvort menn uppskera fyrir vinnu sína sömu eða hærri krónutölu, verður aldrei að eins miklu atriði. Verðmæti peninganna er liáð sifeldum breytingum. Þeir eru því að vissu leyti eins og rnýrar- ljós sem villir mönnum sýn, en er í sjálfu sjer ekkert ljós. Og vinnu- öryggið er því aðeins hægt að skapa til langframa, að framleiðsluvörur verði ekki óútgengilegar vegna dýr- leika. Enginn mun fáanlegur til bess að greiða hærra verð fyrir fram- leiðsluvörur vorar en það, sem hægt er að kaupa fyrir samskonar vörur annarsstaðar. Þessari einföldu stað- reynd ættu flestir að geta gert sjer grein fyrir með þvi að grípa i eigin barm. Með aukinni þekkingu má öðlast meiri tækni til þess að framleiða útgengilegar vörur með samkepnis- færum tilkostnaði. En þangað til fengin er sú þekking, og að þvi leyti sem hún hrekkur ekki til, verð- um við að gera það sama sem Brct- ar og ýmsar aðra þjóðir hafa gert, annaðhvort af fúsum vilja eða vegna kúgunar, að breyta lífsvenjum vor- um, lækka kröfurnar um stund um það, sem vjer nú teljum nauðsyn, en hefir reynst öðrum þjóðum að komast af án, meðan við erum að gera oss hæfari til samkeppnisfærr- ar framleiðslu. Að sameina kraftana um þetta verður einn af fyrstu prófsteinun- tim í framhaldssjálfstæðisbaráttu vorri. Menn skipa sjer í stjettir og flokka um sameiginleg hugðarmál. Svo hefir verið og svo mun verða. Baráttan milli stjetta og flokka virðist óum- flýjanleg. En þá baráttu verður að heyja þannig, að menn missi aldrei sjónir af því, að þegar allt kemur til alls, erum við allir á sama skip- inu. Til þess að sigla því skipi heilu í liöfn, verðum vjer að læra þá list að setja öryggi þjóðarheildar- inn öðru ofar. Hjer á landi er ekkert gamalt og rótgróið auðvald eða yfir- stjett. Heldur ekki kúguð og undir- okuð alþýða. Flestir okkar eiga frændur og vini í öllum stjettum þjóðfjelagsins. Oss ætti þvi að vera auðveldara en ýmsum öðrum að vilja hver öðrum vel. Að bera ekki i brjósti heift og hatur, öfund og tor- tryggni hver til annars, þótt vjer höf- um lent í mismunandi stjettum í þjóðfjelaginu. Oss ætti því að vrra auðveldara að leggja liver sinn skerf eftir efnum og ástæðum til þess að byggja upp fyrirmyndar þjóðfjelag á þjóðlegum grundvelli. Vjer verðum að sækja þekkingu til annara um margt. En vjer verðum að temja oss það að semja þá þekk- ingu að íslenskum högum og háttum. Það mun aldrei blessast að færa is- lensku þjóðina í erlendan stakk, sem sniðinn er eftir öðrum aðstæðum. Vjer verðum að sníða stakkinn sjálf- ir eftir vorum eigin vexti. Jeg hefi veitt því eftirtekt í löggjöf vorri, að innflutt löggjöf annara landa svo að segja óbreytt án þess að laga hana eftir íslenskum aðstæðum, hefir ekki komið að því gagni sein ætlast var til. Það eru ekki margir áratugir síðan við þóttumst vanfærir um að færast nokkuð veru lega í fang, vegna fátæktar. „Vjer höfum ekki ráð á því“ var viðkvæðið. Á því sviði hefir oss vaxið svo ásmegin, að sumir telja oss nú liafa ráð á hverju sem er. Vjer verðum að reyna að temja oss þá hugsun, að það er til takmarkalína, sem ekki verður far- ið útfyrir, ef vel á að fara. Sú tak- markalína er framleiðslugeta þjóðar innar sem heildar. Oss her að varast þá hættu að eyða meiru en vjer öflum, þjóðin sem heild og einstak- lingárnir. Merkur danskur bóndi sagði við mig á kreppuárunum eftir 1930: „Búskapur getur alltaf borgað sig, hvernig sern árar, ef hann er ekki bygður á skuldum. llæfilegt bú mun alltaf sjá bóndanum farborða. En það gefur aldrei þau uppgrip, að það geti staðið undir háum vöxtum , og afborgunum af skuldum“. Má ekki heimfæra þetta upp á þjóðarbúið íslenska? Vorum við ekki fyrir fáum árum að sligast undir þessari skuldabyrgði? Nú telj- um við oss vel stæða vegna gróða á stríðsárunum. Ótalmörgum hefir tekist að losa sig úr skuldum og standa því betur að vígi en nokkru sinni fyrr, ef þeir kunna sjer hóf. Þjóðarbúið mundi einnig standa allt öðruvísi að vígi, ef ríkið gerði sama og einstaklingarnir, að losa sig úr skuldum. Og okkur ætti að vera það hægt. Ef vjer svo gætum jiess að nota þá fjármuni, sem oss hafa safnast að öðru leyti til þess að auká þekkingu vora, framleiðslutækni og aðra þekk- ingu, þá getum við horft ineð bjart sýni fram á veg. Þá ættum vjer að geta skapað vinnuöryggi fyrir allt vinnufært fólk i landinu. Þá gætum vjer orðið liðtækir í samvinnunni með öðrum lýðfrjálsum þjóðum til þess að skapa betra framtíðarskipu- lag þjóðanna. Þetta er liægt, ef mönnum tekst að sandaga skoðanir sínav og stefnur betur en verið hefir á jiessu sviði og vilja færa þær fórnir, sem nauð- synlegar eru til þess. Með þessum orðum flyt jeg allri þjóðinni, hverjum einstökum, kveðju mína og bið þess að blessun megi fylgja þjóð vorri á þeirri braut, sem hún hóf með stofnun lýðveldis- ins á Lögbergi í gær. Þvinæst fluttu formenn stjórnmála- flokkanna fjögra ávörp. Tók fyrstur til máls Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins og flutti sköru- lega ræðu. Þvi miður er ekki hægt að rekja liana eða hinar, sem á eftir komu, en nokkur orð ólafs voru þessi: „Nú fremur en nokkru sinni fyrr, ber oss að sannprófa sjálfa oss, og gera oss ljóst hvað biður vor, og hvers vjer erum megn- ugir.... Kjörorð hins íslenska lýð- veldis er: Mannhelgi. Húgsjón þess að lijer lnii um alla framtíð frjáls og öllum óliáð menningarþjóð, and- lega og efnalega frjálsir og ham- ingjusamir menn. Þeirri hugsjón vilj- um vjer allir þjóna“. Næstur tók-til máls Eysteinn Jóns- son, fyrir liönd Framsóknarflokks- ins, þá Einar Olgeirsson af hálfu Socialistaflokksins og loks Haraldur Guðmundsson vegna Alþýðuflokksins Frh. á bls. ík.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.