Fálkinn - 08.09.1944, Qupperneq 3
F Á L K I N N
3
Vesturför forsetans
Á laugardaginn var koniu forseti
VIKUBLAÐ MBÐ MYNDUM
liitstfóri: Skúli Skúlaaoa.
FraifikvMjóri: Svavar HJalteated
Skrifttofa:
Bankastr. 3, Reykjavik. Simi 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðis fyrirfram
H ERB ERTSpren t.
SKRADDARAÞANKAR
Þeir henda gaman af Píialust
gamla fyrir aS hann spuröi „Hvað
er sannleikur?" En ef satt skal segja
þá eru flestir litlu fróðari en Pílatus
enn þann dag í dag. Því að enn
spyrja menn hvað sannleikurinn
sje, og enn í dag leggja þeir sig í
líma um að gera sannleikann tor-
tryggilegan og gera úr lionum um-
skifting, sem kallaður er lyg'i.
Á sama liátl er lygin dubbuð upp
i fallegan grímubúning og send á
strœti og mannamót, með stimpil
sannleikans á enninu.
Þetta er gömul saga, sem aldrei
endurtekur sig jafnoft og á stríðs-
timum. Einhver fróður maður kvað
hafa sagt, að til þess að vinna stríð
þyrfti þrennt: Peninga, meiri pen-
inga og enn meiri peninga. Víst
mun þetta vera rjett, en hæta mætti
þvi við, að lika þarf annað her-
gagn, sem heitir lygi, meiri lygi og
enn meiri lygi. Án hennar mundu
skriðdrekar og sprengjuflugvjelar sjá
skammt.
Aldrei hefir verið beitt jafn mikl-
um áróðri og i núverandi styrjöld,
enda hafa áróðurrstækin aldrei ver-
ið jafn fullkominn og nú. Áður var
hægt að teppa landamærin fvrir
innflutningi blaðanna og skera á
símalinurnar. Nú eru frjettaleiðirn-
ar þannig úr garði gerðar, að eigi
er hægt að teppa þær. Það er hægt
að lama þær, með því að leggja
dauðarefsingu við því að hafa út-
varpstæki, eins og sumar þjóðir
hafa gert, en það er ekki hægt að
teppa þær að fullu. En einmitt á-
róðursmáttur útvarpsins hefir sann-
ast á þvi, hve milcið kapp þær þjóðir
sem hræddastar eru við sannleikann,
hafa lagt á, að byrgja leiðirnar um
ljósvakann.
Þess mun varla langt að biða, að
útvarpstækninni fari svo fram, að
ekki verði unnt að loka þessum
leiðum. En það eru sjálfar upp-
sprettur áróðursins, sem seint mun
verða liægt að loka. Alltaf verða
til menn, sem geta talið sjer það
til gildis að vera öðrum fremri í
því að snúa sannleikanum í lygi og
lyginni í sannleika. Og alltaf verða
nægilega margir til að trúa þeim.
Því að heimurinn liefir alltaf viþiað
láta blekkjast og mun vilja láta
biekkjgsi meðan hann stendur. Það
er vist eitt af boðorðunum i náttúru-
lögmálinu.
íslands, herra Sveinn Björnsson, og
Btanríkismálaráðherrgnn, Vilhjálmur
Þór, heim úr Bandaríkjaför sinni.
Hafa dagblöðin greint frá þessu
ferðalagi jafnóðum, en það tóksl i
alla staði giftusamlega og hefir orð-
ið til þess að vekja athygli á ís-
lensku þjóðinni meðal Bandaríkja-
þjóðarinnar og óbeinlínis miklu
víðar um heim.
Utanríkisráðuneytið hefir nú gef-
ið út sanifellda ferðaskýrslu en vegna
þess live hún var seint fullgerð er
ekki unnt að birta hana í þessu blaði.
En næst mun Fálkinn birta hana í
heilu lagi, svo að lesendur Fálkans
eigi ítarlega greinargerð fyrir þessu
fyrsta ferðalagi islensks þjóðhöfð-
ingja til annars rikis. Verða þá
væntanlega fleiri myndir til úr ferð-
inni en ennþá eru komnar hingað.
En hjer skal aðeins drepið á nokkur
helstu atriði ferðasögunnar.
Þeir forseti og utanrikisráðherra
lögðu í förina 23. ágúst, ásamt
Pjetri Eggerz forsetdritara, Bjarna
Guðmundssyni blaðafulltrúa og Jakob
Jónssyni lögregluþjón. Var flogið
veslur i tveimur áföngum og komið
til Washington kl. 4 síðd. á fimmtu-
dag. Gistu þeir forsetinn og utan-
ríkismálaráðherrann í Hvíta liús
inu um nóttina, en veisla var þeim
haldin um kvöldið, að viðstöddum
ráðherrum og ýmsum hæstsettu em-
bættismönnuin landsins. Þar voru og
Tlior Thors sendiherra og Henr.
Sv. Björnsson. Að lokinni veislunni
áttu þeir forseti íslands og utan-
rikismálaráðherra langt viðtal við
Roosevelt forseta, en morguninn eftir
kvöddu þeir hann og fluttu i Blair
House, gististað þann, sem ætlaður
er opinberum gestum i Washington.
Þar bjuggu fyrir þeir þrír, er voru
í fylgd með þeim.
Föstudaginn fór forseti í heim-
sókn til Bandaríkjaþingsins og hitti
forseta beggja þingdéilda og formenn
utanríkismálanefnda þeirra, þá Sol
Blom og Tom Conally. En Vilhj.
Þór fór um sama leyti á fund
Cordell Hull utanríkismálaráðherra.
Siðan var farið tit Mount
Vernon, fæðingarstaðar hins fvrsta
forseta Bandaríkjanna og er hann
jarðsettur þar. Lagði forseti íslands
sveig á leiði hans í grafhýsinu.
Síðan var farið að gröf óþekkta lier-
mannsins, í Arlington-kirkjugarði og
var þar slutt athöfn að viðstddum
ýmsum yfirmönnum hers og flota,
en forseti íslands lagði blómsveig á
gröfina. 21. heiðursskoti var skot-
ið við komu og burtför forsetans
á þessum stað.
Á laugardaginn 26. ágúst átti
forseti og utanrikismálaráðherra tal
við blaðamenn, og liefir það verið
rakið ítarlega í dagblöðunum. Þann
dag um liádegi liafði Cordell Hull
utanríkisráðlierra boð fyrir gestina'
á Carlton Hotel og flutti þar hlý-
lega ræðu til forseta en liann þakk-
aði. En um kvöldið liafði Thor
Thors sendiherra boð inni fyrir
gestina. Og á sunnudaginn að aflið-
andi hádegi flugu hinir íslensku
gestir til New York og var nú lokið
heimsókninni i Washington. — —•
Þar tók á móti gestunum Fiorello
LaGardia horgarstjóri og dr. Helgi
Briem aðalræðismaður og Doris frú
hans og dóttir þeirra tveggja ára,
sem rjetti forseta blómvönd. Margir
íslendingar voru þar aðrir, sumir
langt að komnir. Þar voru og við-
skiftafulltrúar íslands í New York,
Helgi Þorsteinsson og Ólafur John-
son konsúll. í New York gistu gest-
irnir á Waldorf Astoria, frægasta
gistihúsinu i New York. Þar lijelt
dr. Briem aðalræðismaður veislu um
kvöldið og var þar margt íslandinga
saman komið, m. a. Villij. Stefánsson
og Richard Becli prófessor. Daginn
eftir hjelt Internalional Chamber of
Commerce gestunum veislu, og var
þar saman komið margt heimsfrægra
manna,, svo sem Leahy aðmíráll
og Henry Kaieser, iðjuliöldurinn
mikli. Watson, forseti Alþjóðaversl-
unarráðsins stýrði hófinu.
Síðdegis sama dag hafði aðal-
ræðismaður íslands og frú lians
samkvæmi fyrir a.lla íslendinga,
sem til náðist i New York, eða um
300 manns. En um kvöldið liafði
Ólafur Johnson viðskiftafulltrúi boð
fyrir gestina.
Tvo sí?iustu daganna vestan hafs
dvaldi forsetinn i sumarbústað í
Maine, ásamt ritara sínum, en þeir
utanrikisráðherra og Bjarni blaða-
fulltrúi voru i New York á meðan.
1. sept. var haldið af stað flugleiðis
heim til íslands og komið liingað
síðastliðinn laugardagsmorgun eftir
niu daga útivist.