Fálkinn - 07.06.1946, Síða 5
T
FÁLKINN
5
,,Queen Elisabeth", eins og hún leit út þegar hún kom inn til Southam-
ton i október í fyrrahaust, meö herfanga frá Asiu. Skipið er grá-
málað — „i herklœðum".
skip til þess að fara fram úr
öðrum að því er snerti stærð og
hraða, heldur væiá stærðin mið-
uð við það, sem hentugast væri
fyrir rekstursafkomu skipanna.
Árið 1941 gat sir Percy Bates
þess, að „Queen Mary“ hefði
horið sig vel frá upphafi. Síðan
1922 eftir að Bandaríkin fóru
að takmarka innflutning fólks,
hefði ekkert skip liafl eins mik-
inn tekjuafgang heilt ár, eins
og „Queen Mary“ hafði fyrstu
tólf mánuðina, sem hún sigldi.
Og það er þeim mun eftirtektar
verðara sem aldrei hefir verið
jafn mikil samkeppni milli
stóru skipafélaganna á Atlants-
hafinu og var einmitt á árun-
um fram að styi-jöldinni. Og
fyrstu átta mánuði ársins 1939
(friðarmánuðina) þá flutti hún
fleiri farþega en hún liafði gert
tvö undanfarin ár, þrátt fyrir
viðsjár þær, sem þá voru orðn-
ar í heiminum.
Nú skal lita á suma erfið-
leikana, sem voru á því að
smíða jafnstórt skip og „Queen
Mary“ er. Lengd skipsins er
309 metrar. Þurfti að breyta
kvínni og setja upp ýmsar til-
færingar til þess að hægt væri
að smíða skipið, styrkja allar
undirstöður og setja upp hærri
og sterkari hegra en áður.
Meðan verið var að athuga
teikningarnar að skipinu voru
um 7000 tilraunir gerðar með
ýmiskonar líkön af því í „til-
raunatank“. I lionum var liægt
að búa til — i vasaútgáfu —
ofviðri, og athuga hvernig líkön
in stæðust það. Líkönin voru
látin sigla meira en 1600 kíló-
metra í þessum tilraunatank.
í skipunum eru alls tólf þil-
för, neðan frá neðsta þilfari
upp á sólþilfarið svonefnda.
Neðri þilförin eru þó ekki sam-
anhangandi yfir allt skipið, því
að vélar skipsins ná gegnum
þau. I allri yfirbyggingu skips-
ins, er notað stál með óvenju-
lega miklu þanþoli. Alls vegur
málmurinn í skipinu, skrokkur
og vélar yfir 50.000 lestir. Plöt-
urnar í skrokknum eru 2j4—9
metra langar og allar notðaðar
saman. Fóru yfir 10 miljón
hnoðnaglar í hvort skipið. En
ef þeim væri raðað saman endi-
löngum mundi röðin verða vfir
4000 kílómetrar á lengd.
Bæði skipin eru knúð áfram
með Parsons-eimtúrbínum. —
Hvorl skipið liefir fjórar skrúf-
ur, og knýr ein vél hverja
skrúfu.
Þegar undan eru skildar sjálf-
ar aflvélarnar, er allt „rafmagn-
að“ um borð í skipinu, og það
svo ríflega, að rafslöðvarnar í
hvoru skipi mundu geta séð
150.000 íbúa borg fyrir raforku.
Rafleiðslurnar i hvoru skipi eru
um 6000 kílómetrar, og lampa-
stæðin 30.000.
Þrjú farrými eru i skipum
þessum: „Cabin“, „tourist“ og
III. farrými. En öll farrýmin
eru miklu rúmbetri og betur
Hér sjást málararnir vera að mála
,,Queen Elisabeth“ eftir að hún
varð laus úr herþjónustunni og
hverfa nú hin gráu „herklœði“ og
skipið fœr aftur sinn fgrri svip.
útbúin en lilsvarandi farrými
á öðrum skipum.
Tuttugu og fimm samkvæmis-
salir eru í hvoru skipinu. Aðal-
veitingasalurinn 18.720 ferfel
að gólffleti og er ætlaður lianda
815 manns. Meira en þrjátíu
enskir listamenn hafa lagt hönd
að því að skreyta skipin mál-
verkum, höggmyndum, málm-
smíði og glermyndum. í skip-
inu eru 50 tegundir af viði víðs-
vegar úr heiminum og má sjá
margar einkennilegar viðarteg-
undir í þiljum á sölum, göngum
og farþegaklefum. Um fimtíu
lestir af lakkfernis fóru á tré-
verkið i hvoru skipi, svarandi
STJÖRNUSPÁR
EFTIR JÓN ÁRNASON
Sólmyrkvi 30. maí 1946.
Alþjóðayfirlit.
Sólmyrkvi þessi er í Tvíbura.
Sést ekki liér á landi og hefir þess
vegna ekki eins mikil áhrif. Hann
hefir sérstaklega sterk álirif í þeim
löndum, sem talin eru vera undir
áhrifum Tvíburans, svo sem Banda-
ríki Norður-Ameríku, Belgíu, Norð-
ur-Egyptalandi, vesturhhita Englands
og Wales, Lundúnir, Melhourn, Ver-
salir, San Francisco. Kunnur maður
eða menn, sem lifa á blaðaútgáfu,
prentsmiðjurekstri, samgöngum, póst
göngum og fréttaflutningi gætu dáið.
— Flutningar og ferðalög eru mjög
á dagskrá víða um lieim og vekja
athygli. Landbúnaðurinn á í örðug-
leikum og koma fjárhagsmálin þar
einnig til greina. — Stjórnmála-
örðugleikarnir halda áfram, þvi
Neptún bendir á það og ágreining-
ur sýnilegur eins og áður. Ráðend-
ur ríkjanna liafa nóg að gera og
barátta er sýnileg i Marsafstöðunni
í Ljónsmerki. Jarðskjálfti gæti átt
upptök sín 19 stig fyrir austan
Tokyo um Kamtsliaka og Salomons-
eyjar eða á þeirri lengdarlínu. Á-
greiningur og barátta meðal klerka
trúmálaleiðtoga — hatur og fyrir-
lilning á lögum guðs og manna.
Lundúnir. — Örðugleikar munu
koma í ljós í sambandi við verka-
menn og þjóna, einnig hermenn og
órói mun gera vart við sig. Veik-
indafaraldur mun stinga sér niður
einkum í taugum. — Úran ræður
utanrikismálum og hefir slæm áhrif
og óvænt atvik koma i ljós og áróð-
urs verður vart gegn Englandi. Á-
greinings gæti orðið vart á milli
Englands, .Bandaríkjanna og Rúss-
lands. Venus er meðverkandi og
gæli ef til vill eiltlivað dregið úr
þessum áhrifum. Mars er í 8. húsi
og bendir á dauðsföll meðal kunnra
manna í her, flota, lækna og i járn-
iðnaðinum. Plútó hefir hér einnig
áhrif og gætu ófyrirséð myrkraverk
komið i Ijós. — Júpiter er í 10.
húsi. Er það góð og heillavænleg
afstaða fyrir stjórnina og veitir
þjóðinni aukið álit.
fíerlín. — Leikhús og skemmtan-
ir verður nokkuð á dagskrá og
örðugleikar eru sýnilegir. Verka-
til þess að yfirborðið sem lakk-
borið var, væri 11,5 hektarar.
Sjálfstillandi rafmagnshitun
er um allt skip og loftræsling.
Þilförin, sem farþegum eru
ætluð til að hreyfa sig á, eru
svo rúmgóð, að þar væri hægt
að koma fyrir fjörutíu tennis-
brautum.
Þessar tölur gefa nokkra
hugmynd um, að þetta eru eng-
in smásmiði. Nú eru bæði skip-
in í höfn og er verið að skinna
þau upp aftur eftir hermanna-
flutningana. Og bráðum fara
þau að sigla gömlu Atlants-
hafsleiðina á ný.
mannaörðugleikar miklir og óvænt
atvik gerast i því sambandi. —
Viðskifti við aðrar þjóðir ætti að
vera í sæmilegu lagi, því Venus
er í 7. húsi. En Satúrn er með-
verkandi, sem mun tefja og draga
úr áhrifunum. Dauðsföll munu á-
berandi meðal hátt settra manna.
Dulfræða- og andatrúarviðleitni mun
áberandi og liafa heill með sér.
Meiri hluti pláneta bendir á tafir
í framkvæmdum og framtaki.
Moskóva. — Hagur landbúnaðarins
mun mjög á dagskrá i Rússlandi
og vekja athygli og eru ýmsir örðug-
leikar þar á ferð, sem örðugt er að
fást við. Stjórnin á i ýmsum örðug-
leikum í því sambandi. — Skemmt-
ana- og leikhúslíf og starfsemi er
undir örðugum áhrifum og óvænt
atvik koma sem auka á örðugleik-
ana. Venus í 6. liúsi, verkamanna,
og hefir góð áhrif á aðstöðu þeirra
og ýmislegt verður gert þeini i hag
þrátt fyrir slæma afstöðu frá Nep-
tún. — Satúrn er í 7. húsi. Utan-
ríkismálin undir mjög örðugum á-
hrifum. Mars og Plútó eru með-
verkandi og bæta eigi úr áhrifum.
Neptún í 8. húsi og bendir á dauðs-
föll vegna eiturnautna og geðveiki
fer i vöxt. — Framlak er þó áber-
andi.
Tokgo. — Betrunarhús, spítalar,
heilsuhæli og góðgerðastofnanir
munu vekja athygli og ýmsar breyt-
ingar og lagfæringar geta komið til
greina og reynt að ráða bót á
ýnisu í þeim efnum. — Satúrn er í
öðru húsi og hefir slæmar afstöð-
ur. Miklir örðugleikar í fjármálum
Japans og tekjur munu minnka að
mun og eignafall koma í ljós. —
Neptún í 5. húsi. Leikhús og skemmt
anir undir óvæntum örðugleikum.
— Mars og Plútó í 3. húsi, sem
hefir slæm áhrif á samgöngur og
flutninga, blöð og bókaútgáfu. í
heild eru afstöðurnar mjög veikar.
Washington. — Allar plánetur eru
yfir sjóndeildarhring og bendir það
á sterka afstöðu og rnikinn þrótt
með þjóðinni og að hún njóti sín
vel. Venus ræður utanlandssigling-
um og mun hafa fremur góð áhrif i
því að lyfta undir þær. Plútó og
Mars eru í hádegisstað og bendir
það á ýmsa örðugleika fyrir stjórn-
ina. Hún á í harðri baráttu við
þá, sem hátt eru seltir og miklu
ráða. — Neptún er i 12. liúsi. Bend-
ir á misgerðir í fjáraflamálum i
Framhald á bls. Pi.