Fálkinn - 14.02.1947, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
mmlim
Rio de Janeiro, höfuðborg Braziliu,
hefir löngum verið rómuð fyrir feg-
urð. Þar getur að líta fögur fjöll
og kletta, trjágróður og blóma-
runna. Hinir stílhreinu skýjakljúf-
ar setja og sinn svip á borgina
og ströndin blá dregur að sér gesti
hennar. — Það má einnig minna
á að í Rió setja stjórnmálin sinn
blæ á borgina, eins og eðlilegt er
um höfuðborg miljónaríkis. Fyrir
ekki alllöngu fóru borgarbúar t.
d. í hópgöngu til rússneska sendi-
ráðsins þar og létu all ófriðlega.
Var þetta gert í mótmælaskyni
vegna móðgunar sem braziliskur
stjórnmálaerindreki varð að þola
er hann dvaldi í Moskva nýlega.
*****
Fyrsta verk forsetans. — Auriol, hinn nýkjörni forseti Frakk-
lands, byrjaði embættisferil sinn með því að leggja blómsveig
á gröf óþekkta hermannsins undir sigurboganum. Myndin
er frá þeirri athöfn. Auk Aurol sjást m. a. þeir Leon Brum
og Gentilhomme hershöfðingi á myndinni.
Stansgate lávarður fyrrum þingmaður
og flugmálará,ðherra síðan 19i5,
fékk þann vanda á hendur að verða
formaður nefndar þeirrar, sem
Bretlandsstjórn setti á laggirnar til
þess að semja við Egypta um endur-
skoðun á hermálasamningi rikjanna.
Egyptskir sjálfstæðismenn krefjast
þess að Bretar verði á burt með all-
an sinn her úr landinu hið fyrsta.
Stansgate er tæplega sjötugur og
fékk lávarðartign 19M, en fyrir þann
tíma hafði hann komið mikið við
opinber mál. 1906 -1918 sat hann á
þingi fyrir St. George Tower Ham-
lets og síðan i 9 ár fyrir Leith og
var jafnan l frjálslynda flokkmim.
Um skeið var hann forseti i borgar-
ráði Lundúna. Árið 1928 gekk hann
í verkamannaflokkinn og var þing-
maður fyrir Aberdeen til 1931, og
á þeim tíma varð hann Indlands-
málaráðherra.
Indverska þingið tekur til starfa. — Acharya Kripalani, forseti
indverska þjóðþingsins, sést hér með konu sinni. — Myndin
er tekin við komu þeirra til fyrsta þingfundarins í New Delhi.
Ný þýsk frfmerki. — Þýsku frímerkj-
unum verður breytt, eins og öllu
öðru i Þýskalandi, til þess að upp-
ræta nazismann. Hér eru sýndar
fjórar tillögur um frímerkjagerð af
6000 sem bárust yfirstjórn Banda-
manna í Þýskalandi. Allar eiga þær
að tákna ósigur Nazismans, hryggð
yfir örlögum Þýskalands eða fram-
tlðarinnar.