Fálkinn - 14.02.1947, Side 14
14
FÁLKINN
V af hvcrjum tíu jilmsljurnuin vitu að htill, hressumli /jvottur
með LUX haiutsápu er ákjósanleyuslu umhyyyjun fyrir hörund-
inu. Lálið þvi fcyuröarsápu lilmstjurnunnu yera hörund yðar
mýkra og jafnara cn nokknrntimu áöur.
LUX TOILET SOAP
NotaÖ af V filmstjörniim a/ lu/crjum 10
X-LTS 678-925
LEIKKYÖLDIÐ.
Framh. af bls. S.
urlega, en þó er hún helst til ung-
leg og lítt fyrirgengin í hlutverki
sínu sem miðaldra kona. Hún virð-
ist næstum því eins blómleg og ung-
leg og heimasæturnar Sjana og
Baby, dætur Gæju. Sjana er leikin
af Theódóru Thoroddsen en Baby
af Elinu Guðmannsdóttur. Var leik-
ur þeirra allsæmilegur, en þó eng-
in tiljírif i honum, enda erfitt að
gera slíkum hlutverkum þannig skil.
Hin börn ungamóðurinnar og ekkj-
unnar frú Gæju eru Denni, leikinn
af Kjartani Magnússijni. Hann er
svo nefndi laukur ættarinnar, og
leysir hann hlutverk sitt vel af
hendi. Leikur hans er eðlilegur, eink-
um þó i fyrsta þætti, og hlutverk
hans fellur inn í ungíslenskan hugs-
unarhátt. Hann er fremur kæru-
laus náungi, hugsar meira um að
eyða, en afla, og námið hefir hann
slegið slöku við og ,,kolfallið“ á
prófum. En hann hefir þó bæði þrótt
og viðkvæmar kenndir hið innra
og þegar á reynir. Georg, elsta bróð-
urinn, leikur Sigmundur Magnússon
ágætlega á köflum. Hlutverk hans
er skemmtilegt og setur mikinn svip
á leikinn. Pétur, þriðja bróðurinn,
leikur Magnús Pálsson einnig vel.
Kötu greyið, elstu heimasætuna, sem
ekki gat giftst og enginn vildi, svo
að hún varð utanveltu við lífið,
lék Guðrún Stephensen, og gerði hún
þvi góð skil. Og svo var það liann
Jón Daffi, oddviti og póstmeistari,
sem er snilldarlega leikinn af Einari
Jóhannessgni. Er hlutverk hans ef
til vill skemmtilegast og best leikið
af karlmannshlutvcrkunum, að hin-
um algjörlega ólöstuðum, því að leik-
ur þeirra flestra var mjög sæmileg-
ur. Svava Jakobsdóttir leikur unn-
ustu „ættarlauksins“ og dóttur Jóns
Daffa, Hreggviður Stefánsson unn-
usta Sjönu og Bergljót Garðarsdóttir
Hönnu þjónustustúlku. Eru það allt
fremur lítil hlutverk.
Leikstjórn annaðist Lárus Sigur-
björnsson og þýðingu leikritsins
önnuðust þeir Sigurður S. Magnús-
son, stud. med. og Friðrik Sigur-
björnsson, stud. jur.
Kínverskt réttlæti. — Kínverskur afi
var að flengja sonarson sinn, er
faðir stráksins kom að. Þegar hann
sá þetta þreif hann spanskreyr og
fór að berja sjálfan sig. Afinn spurði
hverju þetta sætti, en þá svaraði
sonur hans: „IJr því að þú flengir
son minn, verð ég að flengja þinn.“
Skotasaga. — Hér er ein af sögunum
sem Skotar Ijúga upp1 á sjálfa sig —
til þess að græða peninga á þeim:
Skoti nokkur fór til London ásamt
konunni sinni. Hann fór út úr braut-
inni á hverri stöð og keypti sér
jafnan farmiða en aðeins til næstu
stöðvar. Eftirlitsmaðurinn furðaði
sig á þessu, en Skotinn gaf hinum
skýringuna: — Eg vil ekki eiga á
liættu að borga of mikið. Konan
mín segir að ég sé með hjartabilun.
A1 Capone dáinn.
Hinn alrœmdi glœpamaður, Al
Capone, sem á sinum tima var
skelfing Chicago-borgar, lést nýlcga
á skrautbúgarði sinum, Palm Island,
nálœgt baðstaðnum fræga Miami á
Florida. Banameinið var lungna-
bólga, og var hann á tíma mjög
þungt haldinn, en siðan rénaði veik-
in og lœknar gáfu góða von um
bata. En þá elnaði sóttin skyndilega
og varð honurn að bana. Hann var
M) ára að aldri. Þessi mynd er af
Capone í fangelsi, en þangað var
liann settur fyrir skattsvik, en ekki
þau 100 - 200 morð, sem hann hafði
á samviskunni.
Ný framhaldsmyndasaga
Landgangan á Gulleyjunni.
Athygli lesenda slcal vakin á því, að í næsta töluhlaði
Fálkans hefst framhaldsmyndasaga, sem áreiðanlega
á eftir að verða vinsæl. Það er „Gulleyjan“ eftir hinn
heimsfræga skáldsagnahöfund Robert L. Stevenson, og
verða myndirnar sérstaklega góðar og ævintýraþrungn-
ar, eigi síður en sagan er spennandi og atburðarík,- Það
rnun engum leiðast að fylgjast með skipsdrengnum Jim
Hawkins í baráttu hans við hinn einfætta þrjót Jolux
Silver og kumpána hans um gull kapteins Flint. Fylg-
ist með frá byrjun! Hérna fylgja með tvær myndir úr
„Gulleyjunni“ sem sýnishorn. Þess má og geta að á
eftir „GulleyjunnV' lcemur önnur framhaldssaga, sem
verður ekki heldur af lakara taginu!
Bardaginn um virkið.