Fálkinn - 28.02.1947, Síða 14
14
FÁLKINN
GuSmundur H. Guðmundsson, skip-
stjóri, Flókagötu 1, verður fimtugur
4 mars næstk.
LENGSTI skip,askurður veraldar er
hvorki við Súez né Panama heldur
er hann í Svíþjóð og lieitir Göta-
Kanalen. Hann er 115 enskar mílur,
en Súezskurðurinn ekki nema 100
og Panamaskurðurinn 50. Skurður-
inn frá Volga til Moskva er 80 míl-
ur og Aibertskurðurinn jafnlangur,
en Kielarskurðurinn 61 míla. Göta-
kanalen liggur frá Götaelven og eftir
honum og' um stórvötnin Vanern og
Vattern er hægt að komast siglandi
til austurstrandar Svíþjóðar, skamint
fyrir sunnan Stokkhólm. En hann
er aðeins fær smáum skipum.
*****
Látið ekki mölinn granda
eignum yðar. Vellyktandi möl-
kúlur fást í flestum smáversl-
unum.
1 heildsölu hjá
Kristján G. GísIason&Co.
Bllaraðirnar við IIag;a.
Stærsta bílascnding sem komið
hefir hingað til landsins, kom fyrir
skömmu með leiguskipi Eimskipa-
fólagsins „Lublin“. Það eru mest-
megnis franskir „Reynaud“-bílar í
HITLER
sendingu þessari, en eitthvað líka
af „Skoda-bílum. Ljósu bílarnir eru
„Skoda“-bilar. — Myndin er tekin
af bílunum á stæði við Tlaga á Mel-
unum og munu vera yfir 100 talsins.
Nanna Egilsdóttir söngkona.
Innan skamms mun frú Nanna
Egilsdóttir halda hljómelika liér í
Reykjavik með aðstoð dr. Urbantscli-
itsch.
Frúin hefir dvalist í Þýskalandi
og Austurriki öll stríðsárin og hefir
hún getið sér góðan orðstír ytra
fyrir söng sinn. Nanna er dóttir
lijónanna Þórunnar Einarsdóttur og
Egils Guðmundssonar í Hafnarfirði.
Framh. af bls. 3.
fyrir honum á hverju götuhorni.
Sjaldan kom hann út úr jarðhúsinu,
sem hann hafði herstöð sína í, og
sjaldan sá hann annað fólk en skottu
lækni sinn, ritara sína og nokkra
andlausa hershöfðingja. Hann kom
sjaldan til vígstöðvanna, vissi aldrei
til fullnustu um þær ófarir, sem
herir hans fóru, eða þau áföll, sem
borgir hans og iðjuver urðu fyrir.
Öll stríðsárin kom liann aldrei i
borg, sem eyðst hafði í sprengju-
regni. Meðan Þýskaland var að
molna i rúst, var hann að brjóta
heilann um ýms áform viðvíkjandi
skipulagningu borga og húsagerðar-
list. Hann var ekki að gera teikn-
ingar að breytingum á Buckingham
Palace eins og hann vildi hafa það
fyrir sjálfan sig, eins og óvinir hans
sögðu. Hann var að gera frumdrætti
að nýju söngleikhúsi og listasafni
i Linz.
Framhald i næsta blaði.
„Lordmajorinn" heldur boð. — Borg-
arstjóri Lundúnaborgar, eða „lord-
mayor“ eins og hann er kaUaður,
bauð mjlega 1200 börnum á síðkjóla-
ball. Hér sést hann heilsa einum
hinna litlu gesta, sem augsgnilega
finnst mikið koma til klæðnaðar
gestgjafans.
FLEET STREET. — Eins og kunnugt er liafa öll siærsíu blöð
Lundúnaborgar aðsetur silt í Fleet Street, og sést hluti af göt-
imni hér á mgndinni. Stórblöðunum hefir farið fækkandi að
undanförnu, og mikil tilhneiging hefir verið til hringamyndun-
ar. Þar sem þetta er talið hættulegt fgrir prenlfrelsið og skoð-
anafrelsi yfirleitt, þá hefir breska þingið fyrirskipað rannsókn
á málum þessum.
Ofhugiö!_____________________________
Vikublaðið Fálkinn er selt í lausasölu í
öllum bókabúðum og mörgum tóbaksbúðum,
kaffistofum og brauðsölubúðum. Snúið yður
þangað, eða beint til afgreiðslunnar, þegar
yður vantar vinsælasta heimilisblaðið.-
Uikublaöið „Fálkinn“-----------------