Fálkinn - 06.06.1947, Side 7
FÁLKINN
/
Hungur í Róm. — ítalir hafa
bæði liðið liungur og kulda í
vetur og liefir það leitl til mik-
illa kröfugangna og æsinga í
Róm. Hér sést ein slík liópganga,
þar sem mæður og börn ganga
um göturnar með skilti, sem
skýra frá þjáningum þéirra.
Kostagripur. — Ameriskur lög-
regluþjónn hefir átt þennan liesl,
sem vakið hefir mikla atliygli
vestra fjrrir listir sínar. Á sýn-
ingu, sem haldin var fyrir hetj-
urnar frá Bataan, sat eigand-
inn hestinn inn í cldhring, án
þess að hesturinn væri lnð allra
minnsta órólegur. — Wainright
liershöfðingi varð svo hriíinn,
að eigandinn gaf honum liestinn.
Á leið heim til Þýskalands. — Þýskir liðsforingjar, sem dvalist
liafa í fangabúðum í Bretlandi, eru nú sem óðast fluttir til
Þýskalands til yfirheyrslu. — Þeir verða sjálfir að bera far-
angur sinn til járnbrautarstöðvarinnar,
David Ross hinn sjötugi rektor
við Oriel College í Oxford, sem
skipaður var formaður fyrir
nefnd, er rannsaka átti hringa-
mvndun meðal ensku blaðaút-
gáfufyrirlækjanna.
Hér sjáum við Montgomery hershöfðingja i liðskönnun.
Sjúkur, þýskur herfangi í fanga-
búðnm í Frakklandi.
Gjafabögglar til Evrópu. Hér sésl Píus páfi XII skoða gjafa-
Iiöggla, sem NCW.C National Catholic Welfare Confcrenee
hefir sent til nauðstaddra í Evrópu.
Til vinstri:
Frá París. — Þær eru nú orðn-
ar margar ráðstefnurnar eftir
stríðslok lil að revna að gera
friðvænlegra í heiminum. Þessi
mynd var tekin meðan friðar-
ráðstefnan var í París. Þá var
mikil umferð um göturnar, og
starfslið til umferðarstjórnar var
aukið. Maðurinn, sem sésl hér
á myndinni, er að mála strik á
götuna fyrir framan Óperuna
til að afmarka bílastæðin.
Þrýstiklefi Churchills. — Þessi
egglaga þrýstiklcfi var búinn lil
lianda Churchill, þegar læknar
bönnuðu honum að fljúga hærra
en í 2000 metra hæð. Alltaf ])eg-
ar Churchill þurfti að fara lofl-
leiðis, sem var oft á stríðsár-
unum, hreiðraði hann um sig í
klefa þessum, sem settur var
inn í flugvélina. Þar var matur,
stóll, bókahilla og sími, svo að
lílil hætta var að honum leidd-
isl eða illa iæri um liann.