Fálkinn - 06.06.1947, Side 14
14
FÁLKINN
BeethovensMtíð Tónlistarfélagsins.
Busch-kvartettinn: F. v. Adolf Busch, Ernst Driicker, Hermann Busch
og Hugo Gottesmann.
Næstkomandi laugardag liefst Jiór
í Reykjavík tónlistarliátíð i tilefni af
120 óra afmæli Beethovens og 15 ára
afmæli Tónlistarfélagsins. Salur hins
nýja Austurbæjarbíós verður vígður
með þcssum hljómleikum, en þar
rúmast um 800 manns í sæti.
Verður margt erlendra tónsnill-
inga á hátíð þessari, og fjöldi ís-
lenskra tónlistarmanna. — Fyrstu
erlendu gestirnir, sem koniu var
.Busch-kvartettinn. Aðrir þekktir
tónsnillingar, sem gista landið, verða
þessir: Fagottleikarinn Gwydion
Holbrooke, klarinettleikarinn breski,
Kell og obóleikarinn Terence Mc-
Dougal. Erling Blöndal Bengtson
tekur einnig þátt i hátíðinni.
Alls munu hljómleikarnir verða
8, og helsta viðfangefnið verða
strokkvartettar Beetliovens. Á síð-
ustu hljómleikunum munu erlendu
og íslenzku tónlistamennirnir mynda
symfóniuhljómsveit, sem verður
skipuð 40—50 manns. Verður dr.
Urbantscliitsch stjórnandi.
Landskeppnin í bridge.
í síðastl. mánuði komu til Reykja-
víkur 5 breskir bridgemenn, sem
mættu fyrir Bretland i millilanda-
kepimi við íslendinga. Kappleikur
sá fór svo að úrvalsliðið íslenska
sigraði breska landsliðið.. Var kepiit
á tveim borðum og spiluð hundrað
spil á hvoru borði, með því fyrir-
komulagi að sömu spilin ganga á
milli hinna tveggja borða, cn við
livort borð voru tveir Islendingar og
tveir .Bretar.
Millilandakeppnin liófst kl. 4 e.
h. þann 8. maí og lauk kl. 12 á mið-
nætti þ. 9. maí. Höfðu Islendingar
þá fengið um 37 þúsund en Bretar
rúm 29 þúsund, en mismunurinn
var nákvæmlega 7720.
Landslið Breta var skipað M. C.
Harrison-Gray, sem var fyrirliði
þess, .1. Simon, London, J. Marx,
London, E. Kempson, Newcastle on
Tyne og J. Hastic, Edinborg. 1 liði
Islendinga voru Árni M. Jónsson,
foririgi liðsins. Benedikt Jóhannsson,
Iiinar Þorfinnsson, Gunnar Pálsson,
Hörður Þórðarson og Lárus Karls-
son allir úr Reykjavík.
Að millilandakeppninni lokinni,
kepptu Iiinir bresku spilarar við
ýmsar sveitir reykvískra bridgespil-
ara þ. á. m. sveit Einar B. Guð-
muridssonar, sem vann meistaramót
Reykjavíkur í vetur.
Höfðu Bretarnir jafnan sigur þó
að stundum væri mjótt á munun-
Beg. Allan, markvörður. D. Magnall, forstjóri Q. P. B.
IIEIIVISÓKN
»QIJEE]1’S PARK RAAGERS«.
Skömmu fyrir liádegi á mánudag
komu hingað til landsins knatt-
spyrnumenn úr breska liðinu
„Queen’s Park Bangers“. Dveljast
þeir hér á vegum Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur og munu heyja alls 4
kappleiki hér við íslensk lið. Eru
þetta allt atvinnumenn, og taldir all-
góðir leikmenn í Bretlandi.
Knattspyrnuráð Reykjavikur hélt
þeim miðdegishóf á Café Höll sama
daginn og þeir komu. Voru þar flutt-
ar margar ræður. I). Magnall, fram-
kvæmdastjóri Queen’s Park Rangers
og Wodehouse, einn af forstjórum
þess, liöfðu orð fyrir Bretum, en
Sigurjón Jónsson, formaður K.R.R.,
Agnar Kl. Jónsson, forseti Ivnatt-
spyrnusambands íslands, og Björg-
vin Schram, formaður móttöku-
nefndar, mæltu af hálfu Islend-
inga. Einnig tók til máls Victor Rae,
knattspyrniulómari, sem var þjálf-
ari hér um skeið, eins og menn
muna, og Baker frá Q.P.R. Bret-
arnir munu ferðast hér eitthvað í
boði ríkisstjórnar og bæjarstjórn-
ar, meðan þeir standa við.
Fyrsti leikurinn fór fram á
íþróttavellinum á þriðjudagskvöldið.
Þar mættu þeir úrvali úr Reykja-
víkurfélögunum og sigruðu með
miklum yfirburðum. Markfjöldinn
var 9:0. — Sýndu Bretarnir mjög
góðan leik i hvívctna, en leikur
íslenska liðsins var mjög í molum.
Bar þar sennilega hvorttveggja til,
að alltof margir dauðir punktar
voru í liðinu og samleik hrá sjald-
an fyrir. Spörkin voru mörg út í
bláinn og áberandi var, hve lítill
hraði var í leik þeirra. — Bretarn-
ir aftur á nióti voru hver öðrum
fótfrárri, skiptingar með afbrigðum
góðar, og upphlaup snögg og óvænt,
en mjög fálmlaus þó. Var unun að
horfa á liina lipru knattmeðferð
þeirra. Markmaður þeirra, Allen,
fékk ekki mjög hættuleg skot, en
sýndi þó getu sína á ótvíræðan hátt.
Sérstaklega vöktu athygli hinar
liingu útspyrnur hans og útköst. Og
rólegur var liann i markinu og viss,
þó að hann fengi skot. — Af ís-
lendingum var .Birgir Guðjónsson
vafalaust bestur. í byrjun síðari háll'
leiks meiddist Sveinn Helgason á
fæti og varð að fara út af. Þá
sýndu Bretar það drengskapar-
hragð að serida einn mann úr sínu
liði út af líka, svo að þeir neyttu
ekki liðsmunar. Þess skal þó getið,
að það var ekki af breskum leik-
manni, sem Sveinn hlaut meiðsl sin.
Síðar í leiknum kom Sveinn þó
inn aftur.
Dómari var Guðjón Einarsson og
dæmdi hann vel. Eina vítaspyrnan,
sem dæmd var í leiknum, var á
fslendinga, en Bretarnir gáfu hana
eftir, enda var sigurinn ekki tor-
sóttur án hennar. (!)
Eins og áður var sagt, leika
Bretarnir þrjá leiki til viðbótar
hér. Ef til vill stendur „landinn“
sig betur í þcim.
um einkum við sveitir Brynjólfs
Stefánssonar og Gunngeirs Péturs-
sonar.
Hin góða frammistaða íslendinga
í leikjum þessum kom Bretum mjög
á óvart, því að lið þeirra var talið
nljög sterkt i Bretlandi, enda höfðu
Bretar unnið Tékka l'yrir nokkrum
mánuðum með miklum yfirburðum
en Mið-Evrópuþjóðirnar liafa jafn-
an staðið mjög framarlega í þessari
íþrótt.
í ræðu, sem Mr. Harrison-Graý
hélt í skilnaðarhófi, sagði hann m.
a. að íslenska úrvalsliðið væri
sterkasta lið sem hann héfði lcnt í
síðan 1937 þegar austuríska lands-
liðið, sem þá voru heimsmeistarar
kepptu í Bretlandi við breska lands-
liðið.
Frá vinstri J. Marx, Gunnar Pálsson
E. Kempson, — sá sem snýr bakinu
að myndatökumaninum er Lárus
Karlsson, Árni M. Jónsson er borð-
vörður og situr við hlið Gunnars
Pálssonar.
Varið ykkur á háu tónunum. —
Ef þið lieyrið söngkonu syngja
tóna, sem eru hærri en háa C, er
vissast að flytja allt sem heitir gler
sem lengst í burtu, því að annars
getur farið lijá ykkur eins og
Lundúnabúanum nýlega.. Hann var
að hlusta á fræga söngkonu í út-
varpinu og brotnaði þá kristalskál,
sem stóð á borðinu hjá honum í
smátt, þetta gerðist er söngkonan
söng tónana E og F, en þær tón-
sveiflur þoldi kristallinn ekki. Nú
er eftir að vita hver á að borga
skálina. Maðurinn hefir stefnt út-
varpinu til þess að fá skorið úr
þvi. Hann er ekki vitund lirifinn
af söngkonunni og segir að hún
hafi „brothljóð“.