Fálkinn - 18.07.1947, Side 14
14
FÁLKINN
Mót norrænna lcaupsýslu- og bankamanna
Fiilltrúarnir fyrir utan Hindsgavl- höllina.
Fálkinn hefir snúið sér til Hannesar Þorsteinssonar, stór-
kaupmanns, og leitað frétta af nýafstöðnu móti norrænna
kaupsýslu- og bankamanna, sem haldið var í Kaupmanna-
höfn. Hannes hefir látið í té eftirfarandi upplýsingar.
18. mót norrænna kaupsýslu- og
bankamanna var haldiS dagana 2.
til 10. júní á veg'um Foreningen
Norden í Danmörku.
Uppliaflega var gerl ráð fyrir 12
þátttakendum frá hverju liinna nor-
rænu landa þ. e. a. s. ísland, Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð og Finn-
landi, en végna mistaka komust
ekki nema 5 fulltrúar frá íslandi og
var sá lialli jafnaður upp með því að
hin löndin fengu þess fleiri full-
trúa, og var það að vonum til lítils
sóma fyrir íslendinga, enda ekki
ákjósanlegt, að hinar norrænu þjóð-
irna séu látnar stækka á okkar
kostnað.
Mótið var sett í Börsen i Kaup-
mannahöfn 2. júní af C. V. .Brams-
næs bankastjóra þjóðbankans danska
en Jian er formaður norræna fé-
lagsins i Danmörku.
.Börsen er tvímælalaust frægasta
byggingin í sögu danskrar kaupsýslu.
Hún var byggð 1023-’24 af Krist-
jáni 4. Danakonungi og fram á
þennan dag liefur hún verið mið-
stöð danskra kaupsýslumanna og
samkomustaður til að ræða ýms
vandamál stéttarinnar.
Eg vildi gjarnan mega lýsa þessu
fornfræga húsi ásamt öðrum bygg-
ingum og atvinnufyrirtækjum sem
við skoðuðum í þessari ferð, en
þar sem mér er þröngur stakkur
skorinn af ritstjóranum, verð ég
að vera fáorður.
Eftir að mótið liafði verið setl
skoðuðum við skipasmíðastöðina
Burmeister & Wein, en þvi miður
allt of lauslega.
Burmeister & Wein er stærsta-
skipasmíðastöð á Norðurlöndum og
jafnframt brautryðjandi í ýmiskonar
skipasmíða- og vinnuvélatækni. —
Þannig byggðu Burmeister & Wein
eða .Baumgarten & Burmeister eins
og fyrirtækið hét þá fyrsta diesel-
mótorinn 1904 og var það land-
mótor. Hann er nú geymdur sem
minjagripur í safni skipasmíða-
stöðvarinnar en |)að er mjög merki-
legt. Árið 1912 hljóp „Selandia" af
stokkunum og var það fyrsta skip
í heimi, sem knúið var diéselvél.
Hjá Örsteds-aflstöðinni í Danmörku
er í gangi heimsins stærsta diesel-
mótor og hefir hann 22.000 hestöfl.
Hann er smíðaður hjá Burmeister
& Wein, sem er yfir hundrað ára
gamalt, sofnað 1843.
Efttir að hafa skoðað þetta merki-
lega fyrirtæki var borðaður hádegis-
verður i boði skipasmiðastöðvar-
innar.
Þriðjudagsmorguninn 3. júni var
lagt af stað í stórum langferða-
bílum frá Kaupmannahöfn að Hinds
gavl á Fjóni og þar hélt mótið á-
fram til 7. júni.
Hindsgavl er gamalt óðalsetur á
Norður-Fjóni, skammt frá Middel-
fort. Síðan 1923 hefir það verið
samkomustaður Foreningen Norden
og er nú eign þess. Staður ]>essi
á langa og merkilega sögu að baki
sér, sem því mið'ur verður að
sleppa að þessu sinni. Þó má geta
])ess að hér úti fyrir var háð sjó-
orusta 1287 milli danska og norska
flotans.
Árið 1295 mættust Eirikur Mein-
ved og Eirikur prestahatari hér með
heri sína. Árið 1300 var saminn
friður á Fænö milli Dana og Norð-
manna, sem síðan hcfir haldist.
Á Ilindsgavl undirritaði Friðrik
VI. Kílarsamninginn 1814 og hér
bjó Bernadotte, síðar Svíakonungur
eftir að Spánverjar höfðu brennt
hið rammgerða Koldinghus. Hinds-
gavl geymir líka fjölda af minjum
frá styrjöldunum við Svía 1058,
1848- 50 og 1864, og í síðustu styrj-
öld 1939 -’45 höfðu Þjóðverjar og
síðar Englendingar aðsetur á Hinds-
gavl og ber staðurinn ])ess ýmis
merki nú.
Alll þelta útskýrði hinn aldraði
Oberstlöjtnant Helge Bruhn fyrir
okkur, en liann var gestgjafi okkar
á Hindegavl. Hann er ósvikinn föð-
urlandsvinur, hermaður í þess orðs
fyllstu merkingu.
Alls voru lialdnir á mótinu 8
fyrirlestrar um eftirtalin efni: Versl-
un, bankastarfsemi, norræna sam-
vinnu, iðnað, fjármál, fiskveiðar,
ferðalög alm. og landbúnað. Fyrir-
lestrarnir voru yfirleitt fluttir af
færustu og kunnustu mönnum Dana
í hverri grein. Þannig talaði Hr.
próf. Thorkil Kristenson, fjármála-
ráðherra um fjármál; Paul Ingholt
bankastjóri um bankamál; Chr. H.
Olésen forstjóri um norræna sam-
vinnu o. s. frv.
Olesen er forstjóri dönsku Spritt-
verksmiðjanna, en flestir íslendingar
þekkja framleiðslu þeirra, ef ekki
af reynd ])á að minnsta kosti af
afspurn, enda er Álaborgar-brenni-
vín og ákavíti í hávegum liaft hér
sem annarsstaðar.
Olesen var líka fararstjóri okkar
og fórst ])að að sjálfsögðu myndar-
lega úr hendi, enda var ekki einu
sinni undirbúningurinn heldur einn-
ig framkvæmdin á móttökunum út-
færð eftir danskri nákvæmni.
Síðustu þrjá dagana 8. 9. og 10.
júni ferðuðumst við um Jótland
og skoðuðum þar margar verksmiðj-
ur og merkisstaði. Þessi fyrirtæki
voru skoðuð auk Burmeister & Wein
sem fyrr getur.
Fyens Disconto Kasse i Odense,
Dansk Svovlsyre & Superphosphat-
fabrik í Fredericia, Nordiske Kabel
& Traadfabrikker i Mikkelfort, Aar-
hus Oliefabrik A/S i Aarhus, Cem-
éntfabrikken Rördal i Aalborg, C.
W. Obel A/S Aalborg, De Danske
Sþrittfabrikker, Aalborg.
Eftir að liafa kynnst þessum þált-
um dansks iðnaðar lilýtur maður
að sannfærast um, að danska þjóð-
in cr mjög dugleg og afkastamikil.
í landi eins og Danmörku þar sem
engin hráefni eða orkulindir finn-
ast, er undravert, live iðnaðurinn
stendur með miklum blóma, þegar
l)ess er gætt að Danmörk er fyrst
og fremst landbúnaðarland.
Fyrir okkur, þátttakendur i þessu
móti, er ferð þessi ekki einungis
ógleymanleg fyrir famúrskarandi
móttökur. heldur höfum við allt ann-
an skilning á þjóð þeirri, sem bauð
okkur heim og landinu sem hún
byg'gir.
En mót sem þetta gefur okkur
ekki einungis tækifæri til að kynn-
ast gestgjöfum okkar heldur einnig
nágrönnunum og var það að sinu
leyti ekki síður skemmtilegt.
Yfirvöld allra landa spara nú
gjaldeyri og aínast við ferðalögum
til útlanda eftir fremsta meg'ni, en
hér er um greinilega fásinnu að
ræða.
Ekkert gefur lieiminum meira ör-
yggi en skilningurinn á högum ann-
arra. Einangrunin er háskaleg og
stefnir hverri þjóð i voða. Skiln-
inginn öðlast menn fyrst við kynn-
ingu. Þessvegna álít ég að gjald-
cyrir sá sem eytt er til ferðalaga
til annarra landa komi aftur með
vöxtum og vaxtavöxtum, enda þ.ótt
fjármálaspekúlantana kunni að svíða
í fingurgómana i bili við að telja
út peningana.
Að síðustij vil ég færa Forening-
en Norden í Danmörku alúðar þakk-
ir fyrir móttökurnar og öllum þeim
dönskum fyrirtækjum sem opnuðu
okkur dyr sín'ai' og héldu okkur
dýrðlegar veislur.
Eg óska líka Norrænufélögunum
í hinum norrænu löndum allra
heilla með hið gifturíka starf, sem
þau berjast fyrir og ég er sannfærð-
ur um, að það muni færa hinum
norrænu þjóðum mikla blessun í
framtíðinni.
Hannes Þorsteinsson
Ólafur Túbals fimmtngur
Hinn góðkanni veitingamaður og
listmálari, Ólafur Túbals frá Miila-
koti i Fljótshlíð, varð fimmtugur
13. jiili síðastliðinn. Ólafur er öll-
um kunnur fgrir hin fjölmörgu mál-
verk sín úr Fljótshlíðinni og viðar.
í lilefni afmœlisins, eru málverk
eftir liann til sýnis i sýningdrglugga
Jóns Björnssonar í Bankastræti. -
Foreldrar hans eru heiðurshjónin
Guðbjörg Þorleifsdóttir og Túbal
Karl Magnússon, sem landskunn eru
vegna hins glœsilega blóma og trjá-
garðs í Múlakoti sem var á sinn líka.