Fálkinn - 30.04.1948, Side 7
FÁLKINN
7
— Nú er veturinn liðinn
og fólkið farið að téngja vonir
sínar við sólríkt sumar. Ótiðin,
sem verið hefir landlæg hér
tvö síðustu misseri, yrði ekki
hörmuð af neinum, þótt hún
grði að víkja fyrir mildari
veðráttu og stöðugri núna um
misseraskiptin. Góð sumartíð
yrði aufúsugestur hér á landi,
og við skulum vona að hún
geri vart við sig. — Iiér birtist
mynd frá „Sun Valley", helsta
vetrarskemmtistað Bandaríkja-
manna. Um jólaleytið var þann
ig umhorfs þctr. Metersþykkur
snj.ór hvildi á jörðu. Fjöldi
hótelgesta iðkaði skíðaíþróttir,
aðrir syntu í volgum laugum,
og sumir fóru meira að segja í
sólbað, því að sól skein í heiði
og sólbaðsskýlin voru sérstak-
lega vel útbúin. — Við íslend-
ingar megum líka muna sót-
skinsstundir að vetrarlagi, þótt
margar hafi þær eigi verið í
vetur.
* * * * *
VETURINN KVEÐUR - SUMARIÐ HEILSAR
ÍHtÍ
sllHlsli!
ilflttii
llÍSi
1
■■■
Á síðastliðnu sumri var haldin
mikil veðreiðahátíð í Englandi.
Þátttakendur voru frá Eng-
landi, Frakklandi, Belgíu, Ítalíu
og Eire. Hér sést einn yngsti
knapinn með gæðing sinn eftir
hlaupið.
Til vinstri:
Enginn ís í þrónni. — Á köldum
vetrum eru bændurnir í Banda-
ríkjunum í vandræðum með að
halda þrónum hjá skepnunum
ófrosnum. Nú hefir verið séð við
þessu með því að koma rafhita■
tæki fyrir í þrónni, svo að vatn-
ið frjósi ekki. Tækið rýfur raf-
strauminn sjálfkrafa þegar
vatnið hefir náð ákveðnu hita-
stigi.
Til hægri:
Þótt England hafi ef tit vill ekki
neitt hrikalegt landslag að bjóða
upp á á sumrin, þá leita samt
bæði innlendir og erlendir ferða
menn til fjalla strax og vora
tekur. Einkum liggur mikill
straumur ferðafólks til fjalla-
héraða Cumberlands, og liann
er þegar byrjaður þetta árið. —
Mynd þessi er af fjallgöngu-
manni í Cumberland.
Páska-pílagrímsför. — Stúdentar frá ýmsum héruðum Englands fóru um páskana í píla-
grímsför frá London til Washingham í Norfolk iil þess að sjá hið fræga dýrlingaskrín i borg
inni. Hin 200 kílómetra leið til baka var farin fótgangandi og síðasta spottann gengu þeir
berfættir. — Myndin er af nokkrum stúdentunum í göngunni. Þeir bera stóran eikarkross.