Fálkinn - 22.10.1948, Side 3
FÁLKINN
3
y>(ílILLM I1LIÐIЫ
EFTIR DAVÍÐ STEFÁNSSON TEKIÐ TIL SÝNINGAR AÐ NÝJU.
Leikfélag Reykjavíkur hefir nú
tekið upp að nýju sýningar á „Gullna
hiiðinu“ eftir Davíð Stefánsson hér
í Reykjavík. Þegar það var sýnt hér
fyrir nokkrum árum var aðsókn fá-
dæma góð og ummæli um leikinn eft
ir því. Davíð Stefánsson hefir. verið
vegsamaður fyrir þetta sniildarverk
sitt og músík dr. Páls ísólfssonar fall
ið mönnum vel í geð. Til viðbótar
Arndís Björnsdóttir leikur kerlingu
Jóns, hina tryggu og fórnfúsu eigin-
konu, og gerir hún það ágætlega.
Lárus Pásson leikur Óvininn með
ágætum. fjann hefir einnig á hendi
leikstjórn og ferst hún vel úr hendi.
Valur Gislason leikur Lykla-Pétur,
Þorsteinn Ö. Stephensen Pál postula,
Haraldur Björnsson bóndann, Stein-
gerður Guðmundsdóttir Mariu mey,
Við Gullna hliðið. Arndis Björnsdóttir sem kerlingin, kona Jóns, og
Valur Gíslason sem Lgkla-Pétur.
við liina góðu innlendu dóma þá
hefir leiknum A'erið tekið ákaflega
vel erlendis, bæði þegar hann var
sýndur í Osló og nú i liaust, er
Leikfélag Reykjavíkur efndi til sýn-
inga á honum i Finnlandi. Hafa ýms
bréf frá Finnlandi ásamt blaðaum-
mælum borið vitni þess, að gesta-
leikurinn j)ótti takast með afbrigð-
um vel.
Hlutverkaskipunin í „Gullna hlið-
inu“ er nú að sumu leyti með öðr-
um hætti en áður, en flestir eru þó
leikendurnir hinir sömu og áður.
Brynjólfur Jóhannesson leikur Jón
kotbónda, orðhákinn mikla, og ger-
ir hann hlutverkinu hin bestu skil.
s»
Þorsleinn Ö. Stephensen sem Páll
postuli.
Gestur Pálsson prestinn, Haukur
Óskarsson fiðlunginn, Edda Kvaran
Helgu vinkonu kerlingar, Valdimar
Helgason og Anna Guðmundsdóttir
foreldra kerlingar, Regina Þórðar-
dóttir frillu Jóns bónda, Lárus Ing-
ólfsson drykkjumann, Jón Aðis þjóf,
Anna Guðmundsd. Vilborgu grasa-
konu og Valdimar Helgason sýslu-
manninn. Yfirlcitt má það um með-
ferð hlutverka segja, að hún er mjög
góð, þótt þau geri mjög misjafnar
kröfur.
Hér skal ekki fjölyrt um efni
„Gullna hliðsins". Það er of þekkt
til þess. Enginn vafi er á því, að
fjöldi manns mun fara í leikhúsið
til þess að sjá það, bæði þeir, sem
hafa séð það áður, og hinir, sem
ekki hafa séð það.
146 MILLJÓNIR í U.S.A.
Á árinu sem leið fjölgaði ibúum
Bandarikjanna uin 2.7 milljónir, eða
nær hálfri milljón meira en á árinu
1946. Dánartalan var 1.4 milljónir
eða Hkt og var fyrir striðið, en
fæðingum fjölgaði um hálfa milljón
og urðu um 6 milljónir. Um inn-
flutning til landsins eru ekki til
áreiðanlegar tölur, en hann er á-
ætlaður 250.000 manns. Fólksfjöld-
inn var 146 milljónir i byrjun þessa
árs, og hefir* vaxið um 14 milljónir
síðan 1940.
Svertingjum hcfir fjölgað tiltölu-
lega meira en hvítum mönnum. Á
Jón kotbóndi (Brynjólfur Jóhannesson) þráttar við Lykla-Pétur (Val
Gíslason) fyrir utan Gullna hliðið.
Septembersýningin
1948
Allir muna eftir Septembersýning-
unni í fyrra. Hún vakti geysimikið
umtal og var allvel sótt. Dómarnir
sem hún fékk, voru þó siður en svo
vinsamlegir. Nú hefir annarri Sept-
embersýningu verið komið upj), en
að vísu í októbermánuði. Sýna þar
9 listamenn samtals 97 verk, þar af
3 höggmyndir. Hitt eru málverk,
vatnslitamyndir, kritarmýndir og
teikningar auk einnar tuskusam-
setningar.
Myndirnar eru mjög misjafnar
vægast sagt. Myndir Gunnlaugs
Scheving, 5 að tölu, vekja mesta
athygli. Jóhannes Jóliannesson á
þarna lika nokkrar skemmtilegar
myndir. Hér og þar um salinn má
sjá athyglisverða mynd á stangli, en
margar eru þær líka, sem fáum
verða til augnagamans.
i
Sýnendur eru þessir:
Þorvaldur Skúlason .... 19 myndir
Gunnlaugur Scheving .. 5 ----
Valtýr Pétursson ...... 24 ------
Kristján Davíðsson .... 14 ----
Snorri Arinbjarnar .... 9 ----
Kjartan Guðjónsson ... 11 -i—
Jóhannes Jóhannesson . . 12 ----
Tove ólafsson ......... 2 höggm.
Sigurjón Ólafsson .... 1 ----
árunum 1940—-’46 fjölgaði hvítum
um 7% en svörtum um 10%. Mest
er mannfjölgunin i bæjunum í vest-
urrikjunum.
40.000 STRÍÐSGLÆPAMENN.
Stríðsglæpanefndin er að leggja
síðustu hönd á skjölin viðvikjandi
þeim 40.000 körlum og konum, sem
sökuð eru um „glæpi gegn mann-
kyninu". 1835 mál 5944 manna liafa
verið afgreidd þegar. Af sakborn-
ingunum voru 1567 dæmdir til
dauða, 3380 í fangelsi en 997 sýkn-
aðir.
Vigfiis Guðmundsson frá Keldum,
Laufásveg 43, verður 80 ára l dag
(22. þ. m.).
Frii Kristin Ólafsdóttir, Bjargi,
Djúpárhreppi, Bangárvallas. verður
65 ára 22. þ. m.
RÍKUR „FÁTÆKLINGUR".
Sjötugur Frakki fannst fyrir
skömmu dauður á þaklierbergi í
lélegu gistihúsi, sem hann liafði átt
heima á í mörg ár og borgað kr.
1.75 fyrir á dag. Þegar farið var að
athuga dánarbúið kom það á dag-
inn að maðurinn átti 50.000 doll-
ara í 5 bönkum, og rennur arfurinn
nú til frænda hans, sem ekki vissi
betur enn að maðurinn væri blá-
fátækur. Svo að ekki liefir eigna-
könnunin verið einhlýt þar.