Fálkinn


Fálkinn - 22.10.1948, Blaðsíða 4

Fálkinn - 22.10.1948, Blaðsíða 4
4- F Á LKIN-N- Hér eru tveir ekta sheikar og maSurinn yst til hœgri er emír Feisal al Saud priiis, nœstelstur af 1,0 sonum Ibn Saud. allt þaö, sem fulltrúar á þingi jSameinuðu þjóðanna þurfa að gera, segir blaðamaðurinn Gunnar Leistilcov í eftir- farandi grein um dagleg störf UNO-fulltrúanna í Flushing Meadows — og þó hafa þeir ennþá meira að gera sem sitja í mörgum nefnd- um og eiga sæti í hinum föstu ráðum UNO, svo sem öryggisráðinu — eða „Rifrildisráðinu“. SÁ SEM VILL vera fulltrúi á þingi Sámeinuðu þjóðanna — UNO — eða í Öryggisráðinu þyrfti helst að hafa þrenna fætur, ferna handleggi og sex höfuð. Hann verður að vera við því búinn að taka samstundis og bindandi fyrir þjóð sína, afstöðu til fjölda ólikra málefná, og halda langar ræður og ítarlegar án þess að gefa sér tíma til undirbúnings. Við skulum athuga þessa stundatöflu, sem aðalritari lief- ir samið til leiðbeiningar fyrir þátt- takendur i.þinginu i nóvember 194(5: Á fætur kl. 7!4- Hálfur annar tími til að baða sig og klæða, eta litla- skatt, Jesa bréfin sin og morgunblöð- in í New York, en eitt þeirra, „New York :Times“ er stærra en öll blöðin á íslándi til samans. Kl. 9: Nefndar- fundiir á einliverju gistihúsinu í borg- inni, þar sem fulltrúar frá sama land- inu koma saman til þess að ræða um og taka afstöðu til málanna, sem eru á dagskrá þingsins þann daginn. — Kl. 10 !4: Farið innan úr borginni og ekið til Flushing Meadows, en þar eru þingfundir haldnir. Það tekur 40 mínútur að aka þangað svo að 5 min. eru til að heilsa kunningjum úr sendi- nefndum annarra landa cða eiga einkasamtal við einhvern áður en þingfundurinn byrjar. Kl. 11: Hann stendur 2 til 2!4 tíma. Svo kemur 1!4 tími til að sækja í sig veðrið, fá sér matarbita, skrifa bréf eða orða breyt- ingartillögu og lita í blöðin til þess að sjá livað veröldin hefir aflagast mikið síðan í morgun. Og svo er framhaldsfundur kl. 15. Þessir siðdegisfundir standa oft til kl. 19. En kl. 19 /4 ekur þreyttur full- trúinn inn til New York aftur, og ef hann vill dubba sig eitthvað upp og MaSurinn, sem oftast liefir beitt neit- unarvaldi í ÚryggisráSinu; Gromyko. ógert, og svo er það )íka margt, sem honum finnst að hann þyrfti að sjá úr því að hann er í New York á annað borð. Sá sem samdi stundatöfluna hefir verið að skrifa á stundatöfluna fyrir tímann 22 til 24: „Skemmtanir eða vinna.“ En hvernig var nú þetta? Fulltrú- anum liöfðu borist boð um að koma í „cocktail-party“ á 5 til 0 stöðum og í ýmisleg önnur samkvæmi, bæði síð- degis og um kvöldið! Og liann liafði lofað að mæta á þremur stöðunum, að minnsta kosti að reka inn liausinn sem snöggvast, og á einiim eða tveim- ur stöðum þurfti hann að' liitta mikils- háttar mann, sem hann þurfti endilega að ná í, en aldrei er hægt að ná til á fundunum. Þegar svona ber undir finnst full- trúanum það afar leitt, að liann skuli ekki geta verið á tveimur eða þremur stöðum í einu. SVONA GENGUR ÞAÐ dag eftir dag. En hvergi á stundatöflunni sést að tími sé ætlaður til þess að setja sig inn í ýms mikilsverð og flókin vanda- mál, svo sem viðvíkjandi atómsprengj- unni, neitunarvaldsréttinum, friðar- samningunum, ólgunni á Balkan og í Pálestínii, fjárliagsáætlun UNO óg ýmsu öðru. Og hvenær á hann að hafa næði til að endursemja ræðuna sína, sem liann ætlaði að lialda i fjárhags- nefndinni en varð ónýt í gær vegna þess að málið horfir nú allt öðruvísi við, eftir umræðurnar sem þá fóru fram. Og svo voru það allir þessir menn sem hann þurfti að liitta og tala við ......... Svona líður dagurinn og enda tals- vert af nóttinni Hka, hjá venjulegum fulltrúum frá iiinum smærri þjóðum. Og þá getum við liugsað ókkur livernig það sé að standa i sporum stórvelda- fulltriianna og vera mr. Warren Aust- in frá U. S. A., sir Alexander Cadogan frá United Kingdom eða Gromyko frá U. S. S. R., sem auk þess að eiga sæti á þinginu og í Öryggisráðinu eru með- limir margra mikilsverðra nefnda og undirnefnda og eru skyldugir til að taka til máls i þeim öllum, um öll þau má), sem fram kunna að koma þar. Og svo er margnefnd stundaskrá miðuð við daga, þegar ekkert sérstakt er á seyði, rólega daga þegar epginn kvöldfundur er! hafa fataskipti, verður klukkan oft 20% áður en hann getur sest við mið- ÁhaldiS, sem maS- urinn ber í ól um hálsinn er ekki myndavél heldur svonefnt „wdlkie- talkie" viStœki, — sem hcegt er aS stilla á þann, sem talar þá stundina eSa túlkinn lians, og heyra rceSuna livar sem maSur er í líúsinu. RceSurn- ar eru túlkaSar samtímis á fimm mál: ensku, rúss- nesku, frönsku, kín versku og spönsku. degisborðið. Hann er þreyttur og sjúskaður, en samt á hann margt eftir ENGINN KEMST YFIR

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.