Fálkinn


Fálkinn - 26.11.1948, Síða 12

Fálkinn - 26.11.1948, Síða 12
12 FÁLKINN DENNIS WHEATLEY: ÚT I' OPINN DAUÐANN I. Kap. Atvinnuleysinginn. Gregorj^ Sallust æddi eirðarlaust aftur og fram um lierbergið sitt í Gloucester Road 272. Mjór og renglulegur búkurinn virtist vera kengboginn, vegna þess að Gregory lagði í vana sinn að ganga niðurlútur. Hann kipraði saman varirnar og úr mögru og kinnfiskasognu andlitinu skein áköf reiði. Hvíta örið sem náði frá vinstri auga- brún og upp að hrafnsvörtu gljákembdu iiárinu, og minnti stórum á myndir af kölska, var sérstaklega áberandi, eins og alltaf þegar liann þrútnaði af bræði. Lát- laust þrammið um gólfið minnti lielst á vilidýr, sem er að reyna að brjótast út úr búrinu sinu. Rudd og Gregory voru einir í stofunni. Rudd gegndi þvi einkennilega tvíþætta starfi að vera þjónn Gregorys og liúsbóndi hans. Hann sat á brúninni á bekk og fágaði tvær skammbyssur af mikilli natni. Þegar Gregory lauk varaliðsforingja- menntun sinni og fór til Frakklands til að gegna herþjónustu þar síðustu ár fyrri heimsstyrjaldarinnar, hafði Rudd verið þjónn bans. Eftir vopnahléð bafði Rudd gert langan leigusamning um búsið nr. 272 við Gloucester Road. Neðsta liæðin var leigð nýlenduvörukaupmanni, en að öðru leyti var búsið aðallega hæli stúdenta frá Lundúna-háskóla, sem stóð ekki langt frá. Á annarri bæð, út að götunni, var óvistleg sameiginleg setustofa leígjendanna, þar óð allt á súðum og þar létu þeir grammó- fóninn glymja, héldu sumbl og elduðu ofan i sig sjálfir á litilli gasvél, þegar lítið var um peningana. Einu tekjur Rudds voru hin óvissa húsa- leiga og það litla, sem hann fékk fyrir ýmisskonar snatt hjá nýlenduvörukaup- manninum. Fyrir löngu hafði allt verið komið í þrot bjá honum ef liins fasta leigjanda, Gregory, hefði eklci notið við, en Iiann bjó í Iveimur bestu herbergjun- um með tilheyrandi baðklefa á annarri bæð.‘ Rudd var með hörgult bár, snoðklippt og stóð alltaf upp í hvirfilinn. En að fram- an óx það i lokk, sem var vandlega olíu- borinn og greiddur í boga yfir ennið. Þó að bann hefði dálítinn vendilega snyrtan yfirskeggshýjung á efri vör tókst honum ekki að leyna því, að tennurnar í honum befðu mjög svo þurft á því að halda að tannlæknir liti á þær. Augun voru blá, fjörleg og full af glettni. Hann lagði frá sér aðra skammbyssuna, tók hina og leit kviðnislega til húsbóndans. — Þér megið ekki láta svona, mr. Gre- gory, þeir þurfa bráðlega á yður að halda aftur úr því að þeir eru komnir i stríð á ný. Áður en mánuðurinn er úti verðum við báðir farnir að afgreiða Þjóðverja til heljar. Gregory nam staðar og leit reiðilega á Iiann. — Éttu það sem úti frýs! Þú skiíur þetla ekki. Þetta er ekki eins og það var í fyrri styrjöldinni. Nú er allt afráðið fyrirfram. Hefirðu ekki Iieyrt tilkynningarnar í út- varpinu? Enginn verður skipaður liðsfor- ingi nema hann bafi verið í aðalhernum eða sé sérfræðingur. Og æfingaberbúðirn- ar eru fullar af unglingum kringum tvítugt. — Þeir eiga það bara. En leyniþjónust- an þá, eða þetta nýja upplýsingaráðuneyti? Þér talið þýsku eins og innfæddur, þér þekkið meginlandið eins og brókina yðar, og þér liafið rekið ýms flókin erindi fyrir stórlaxana í Fleet Street. Getið þér ekki fengið yður borgaralegt starf einhvers- staðar? —- Fjandinn liirði öll borgaraleg störf! Eg er ekki nema þrjátíu og níu ára, og ég vil berjast. Því í fjáranum fæ ég það ekki? — Olræt, olræt! En striðið liefir nú ekki staðið nema viku enn, og við fáurn meira en nóg af því áður en Hitler gamli er kom- inn þangað, sem hann á heima. — Já, það er einmitt það! gaus upp úr Gregorj'. — Stríðið befir staðið í viku og samt er ég hér enn. 1 hverri einustu her- deild, sem ég hefi reynt að smokra mér inn í, hefir hvert pláss verið setið, og ég hefi ekki snefil af líkum til að komast nokkursstaðar að. — Hægan, bægan, sir! Stríðið er svo að segja að byrja, og ég þarf varla að segja yður, að Þjóðverjar þola talsvert mikla flengingu. Stríðið stendur í íjögur ár, eins og það gerði fyrra skiptið, já, minnst það, þetta er nú mín skoðun, því að nú hafa þeir gert þennan samning við Rússland og fá allt sem þeir þurfa þaðan. Gregorv kinkaði kolli. — Já, það gera þeir, en mundu að þeir verða að borga fyrir það sem þeir fá, og þeir eru í mikl- um kröggum. Og Rússarnir eru bara að ýta undir þá, svo að þeir skeri sjálfa sig á báls. — Þessir Rússar eru undirförlir hrapp- ar, sagði Rudd. Gregory sneri sér að hon- um auðsjáanlega gramur. — Hættu fyrir alla lifandi muni að nudda þessar skammbyssur! Þú hefir ekki gert annað i viku, og slítur þeim upp til agna. Eg ætla að bregða mér inn til hinna til að spyrja frétta.------ Þetta var árdegis á sunnudegi, og í sam- eiginlegu stofunni liitti Gregory fjóra af leigjendunum sex. Hildebrand Pomfret, grár og fölur, vonsvikinn höfundur bók- mennta sem venjulegt fólk neitaði að við- urkenna, var að þrefa um stríðið við sköll- óttan kúluvamba á sexlugsaldri, sem hét Beadle. Ennfremur voru þarna Griselda Girlie, útsteypt af grafbojum og með gler- augu, og Ann Croome, lítil og hnubbótt, kringluíeit og með fjólublá augu; þær stóðu þegjandi og blustuðu á. Þegar Gre- gory varð litið á Ann kom allt i einu bros á majgurt andlilið á honum. Hann var ekkert hrifinn af benni, en honum geðjað- ist að fegurð í bvaða mynd sem var. — Var nokkuð nýtt í síðustu fréttunum? sagði bann, án þess að beina orðum sín- um til nokkurs sérstaks. — Ekki var það nú mikið, svaraði Ann. — Pólverjar lialda enn velli fyrir utan Varsjava, en útvarpið er fremur fréttafátt um þátttöku okkar í stríðinu. Annars var Griselda að fá tilkynningu rétt áðan, um að bún væri kvödd í heimavarnarliðið. — Kvödd, át Gregory eftir og' hnyklaði brúnirnar. — Eg vissi elcki að þér kynnuð nokkuð til slíks starfa, Griselda. Slúlkan bólugrafna brosti eilítið. •— Jú, vegna þess að ég er læknanemi er vitan- lega liægl að nota mig fyrir hjúkrunar- konu. Þetla seinkar að vísu prófinu lijá mér, en um það er ekki að fást. Þetta var afráðið fvrir nökkrum dögum og þeir ætla að senda mig til Soutbampton. Eg fer i dag. — Eg óska yður alls góðs. Gregory leit á Beadle, sem var i undir- tyllustöðu hjá tollstjórninni. — Þér eruð kominn yfir herþjónustualdur og eigið vit- anlega að balda áfram í tollinum? Beadle bristi ljóshærðan, sköllóttan hausinn, — Nei ekki alveg! Skoðun hlut- lausu skipanna verður að framkvæmast af fagmönnum, því að þau geta baft bann- vöru meðferðis. Og af þvi að ég liefi ver- ið tollmaður í mörg ár þá á að setja mig um borð í eitt af liafnbannskipunum. Gregory saug upp í nefið. — En þér, Pomfret? Úr því að slríðið er byrjað á annað borð vona ég að það verði til þess að auka söluna á bókunum yðar. Annars er það skaði að þér skulið ekki semja reyfara. Pomfret yppti visnum öxlunum. — Eg er hræddur um að ég bafi ekki tima til að skrifa mikið. Eg hefi nefnilega verið svo heppinn að fá stöðu i upplýsingaráðuneyt- inu. Eg veit ekki livar stjórnardeildin mín á að vera til húsa meðan striðið stendur, en mér hefir verið skipað að vera viðbú- inn að fara frá Londori með augnabliks fyrirvara. — Guð hjálpi mér ef menn eins og gamli Pomfret eiga að stjórna skrifstofum, hugs- aði Gregory með sér og leit á Ann Croome. — Eg má víst gera ráð fyrir að þér verðið bárna og gerið tilveruna bjartari fyrir okkur, Ann? Eða eruð þér að liugsa um að fela yður í einbverju skúmaskoti upp í sveit líka. -—Nei, sagði hún og brosti. Eg verð í London. Húsbóndi minn liefir verið sett- ur i eina borgaralegu deildina í hermála- ráðuneytinu. Eg verð ritari lians áfram svo að ég verð í þjónustu hermálaráðuneytis- ins líka. Hvað ætlið þér að gera, Gregoi-y?

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.