Fálkinn - 13.05.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Búa enn í hellisskútum. — Styrjaldarlöndin í Evrópu eru smátt
og smátt að rísa úr rústum eftir slríðsvitfirringuna, en á Spáni
virðist allt vera í sama horfinu og þegar borgarastyrjöldinni
lauk fyrir tíu árum. Þannig hafa hundruð þúsunda af fólki
ekki þak yfir höfuðið, síðan það missti hús sín í styrjöldinni.
— Verst er ástandið í Madrid, en þar búa 1.300.000 manns. 1
verkamannahverfinu í Las Ventas býr fjöldi fátæklinga i hell-
um og jarðhýsum við skilyrði, sem oklcur þættu óhugsandi.
Skammt frá þessum jarðhýsum hafa verið byggðar 2000 íbúð-
ir fyrir efnafólk, en í slíka staði komast fátæklingarnir aldrei.
Hér geta menn séð hvernig umhorfs er í Las Ventas, í útjaðri
Madrid-borgar.
Neonljós í London. — Nú hefir
Lundúnabúum loks verið leyft
að nota Ijósaauglýsingar á ný,
eftir að þeir hafa orðið að vera
án þeirra í tíu ár. Fyrsta lwöld-
ið sem neon-ljósin uppljómuðu
borgina var óvenjulega margt
fólk á ferli úti til þess að skoða
dýrðina og fagna Ij.ósunum.
Blóm handa krónprinsessunni.
— „Oslofjord" hið nýja skip
Norsku Amerikulínunnar (N A.
L.) hljóp af stokkunum í mars-
lok og voru Ólafur krónprins
og Martha krónprinsessa þar
viðstödd og skírði hún skipið.
Áður færði lítil hollensk stúlka
dóttir forstjóra skipasmíða-
stöðvaririnar, henni blómvönd.
Enskur erkibiskup í Berlín. — Erkibiskupinn af York gerði
sér nýlega ferð til Berlín til að líta þar eftir ýmsum menning-
arstofnunum, sem Bretar hafa komið á fót á hernámsárunum.
Efst sést erkibiskupinn koma á flughöfnina í Gatow og stend-
ur vallarstjórinn, Iarde ofursti þar við hlið honum. — Á neðri
myndinni er erkibiskupinn staddur í skóla í flughöfninni, þar
sem börn flughafnarliðsins fá kennslu. Hann er að dást að
líkani af flughöfninni, sem börnin hafa gert.
Fyrsta skip ísraels. — Fyrir nokkrum vikum kom fyrsta skip
Israelsríkis, s.s. „Haifa" til New York og var fagnað með kost-
um og kynjum. Hér sést skipið fánum skreytt á East River í
New York. Nafn eigendanna er málað á skipshliðina — á
ensku og hebresku.