Fálkinn - 13.05.1949, Síða 13
FÁLKINN
13
orðið að gjalda þess að hann leitaði þá
upþi. Það var ekki liægt að andmæla við-
bárum Archers, og Gregory vorkenndi hon-
um, en erindi sitt varð hann að reka. Til-
litið til Archers varð að víkja, þvi að það
sem landið krafðist var mildu mikilsverð-
ara. Hann horfði í augu Archers og sagði
hægt:
— Pearl Wyburn er lagleg stúlka, finnst
yður ekki?
Það kom auðsjáanlega á Archer en svo
svaraði hann: — Hvað kemur þetta henni
við?
— Talsvert. Hún er dóttir eins af forn-
vinum yðai. Og þér tókuð hana að yður
að vissu leyli þegar hún var lítil og síðan
hafið þér farið með hana eins og hún væri
yðar eigið harn. Það liefir verið dálitið
erfitt að tjónka við hana því að hún var
svo skrambi lagleg. Hún hæfir auðsjáan-
lega ekki til að vinna í verksmiðjum eða
á skrifstofu. Eg liefi lagt mig fram til þess
að afla upplýsinga um hana, skiljið þér.
Hún veit vel sjálf að liún er lagleg og er
staðráðin i að nota fegurðina til að koma
sér áfram r veröldinni. Yitanlega hefir
hún gaman af fallegum fötum, og af þvi
að hún er ekki sérlega séð þá byrjaði hún
sem tískustúlka. En þær fá ekki mikið
kaup og fá ekki að nota fallegu fötin nema
á sýningunum. Af þessu leiddi að liún
komst í skuldir og þér hjálpuðuð henni
til að koma sér á réttan kjöl. Ef þér liefð-
uð ekki gcrt það væri hún fyrir löngu orð-
in frilla einhvers af ríku aðdáendunum
sínum. En þér hafið harist fyrir henni
mcð hnúum og hnefum, þó að hún kosti
yður rneira en þér hafíð efni á að borga.
Eftir þvi sem smekkur hennar fyrir óhófi
hefir þroskast hafið þér orðið að útvega
henni meiri og meiri peninga, því að hún
hefir vald yfir yður. Eg vil ekki beinlínis
segja, að þér hafið tekið traustataki pen-
inga hjá flokki j7ðár, en þó finnst mér það
hugsanlegt úr því að þér borgið leiguna
fyrir stóru íbúðina hennar í Brayanston
Court. Við skulum að minnsta kosti ganga
úr skugga um það, þegar málið kemur
fyrir rétt.
Andlitið á Archer var þrútið af reiði.
— Hvern andskotann eigið þér. við? öskr-
aði hann.
Svar Gregorys kom fljótt og var illúð-
legt: — Ekki annað en það, að ef þér neit-
ið að gefa mér upplýsingar þá skal ég sjá
um að félagar yðar fái að vita, að Pearl
er frilla yðar og að þér hafið lialdið henni
við í mörg ár.
— Það er andskotans lygi.
— Eg veit að það er lygi. En hvað er
hægt að gera við því?
— Eg kæri yður fyrir róg, þrumaði Ar-
cher. — Það er eitt að bera fram svona
staðhæfingar og annað að sanna þær.
— Vitanlega. En ég skal gera hvort-
tveggja.
— Skítuga svín! Þér vitið best sjálfur
að liún er heiðarleg stúlka og að dylgjur
um að hún hefði átt vingott við mann á
mínum aldri mundu gerspilla mannorði
hennar. Hún mundi ekki lifa það af.
— Eg veil það. Það hryggir mig hennar
vegna. En það eruð þér, sem berið ábyrgð-
ina ef hún lendir i þessu hneykslismáli.
Og það mirndi koma henni illa, einmitt
núna. Mér er kunnugt um það. Það vill
svo til að ég veit að liún er á veiðum eftir
Ollie Travers, syni Bellingham lávarðar
og það virðist sem lienni ætli að takast að
ná í hann.
— Þér vitið það líka? Þér verðið að
hlífa henni fyrir alla muni. Hann er besti
piltur, þótt hann sé varðliðsforingi. Það er
lítilmóðlegt að ógna mér til að eyðileggja
möguleikana sem hún liefir á góðu gjaf-
orði.
— Eg játa að það er hrein og bein
þvingun.
— Jœja, haldið þér áfram. En þér getið
ekki með nokkru móti sannað að þessi
sakargift yðar sé rétt. Eg skal sjá um að
þér verðið kærð.ur og með því móti fær
hún uppreisn.
— Eg get sannað þetta. Gregory tólc ljós-
myndina upp úr vasanum og rétti Archer.
-— Lítið þér á þetta, hr. Arcíier!
Myndin var gerð af fagmanni, sem kunni
sitt verk. Þótt það tæki nokkra daga að gera
hana þá hafði ekki verið erfitt að ná í
það sem lil þess þurfti. Pearl Wyburn var
alþekkt sem týskusýningarstúlka í West
End, og í tískuverslunum var nóg til af
inyndum af henni í allskonar útgáfum.
Myndin sem hann hafði valið sýndi hana
mjög fáklædda. Archer var líka kunnur
maður svo að ekki hafði verið neinn vandi
að ná í mynd af honum. Ljósmyndarinn
Iiafði valið mynd af honum þar sem hann
var hattlaus og snöggklæddur eftir að hafa
talað á stjórnmálafundi á heitum sumar-
degi.
Ljósmyndirnar tvær voru límdar inn á
mynd af svefnherbergi. Pearl stóð liálf-
nakin yfir óumhúnu rúmi en Archer
snöggldæddur við hliðina á henni og horfði
brosandi á hana. Á litlu borði stóðu
kampavinsflöskur, tvö hálffull glös, síg-
arettur og skál með sælgæti. Dýr loðkápa
lá á einu stólbakinu. Þetta var prýðilega
vel gerð falsmýnd.
— Ivunnur marxisti lifir tvífaralífi, taut-
aði Gregory. Sextíu ára gamall karl elur
22. ára sýningarstúlku í hefðaríbúð. Hvern-
ig líst yður á það?
Er Archer hafði rennt augunum yfir
spratt hann upp, harði krepptum hnefan-
um í borðið og öskraði: — Fúlmenni! Eg
skal kæra yður fyrir þetta.
— Nei, þér gerið það ekki, sagði Gre-
gory rólegur. — Þér dirfist ekki að stefna
þessu máli fyrir rétt, það vitið þér best
sjálfur. Við leggjum liald á fjárhaldsbæk-
urnar yðar og sýnum upphæðirnar, sem
þér liafið greitt fyrir Pearl. Sá kviðdómur
er ekki lil sem mundi sýkna yður. Og svo
skal ég sjá um að þessi mynd sé send öll-
um félögum yðar og sérstaklega hável-
bornum Oiphant Travers. Það bætir úr
skák fyrir Pearl.
Stóri raumurinn bak við skrifborðið
virtist hjaðna. Andlitið varð allt í einu
mörgum árum ellilegra. Gregory blygðað-
ist sín fyrir athæfi sitt, en hann varð að
huga Archer og nú sá hann að það hafði
tekist.
— Guð útskúfi yður, muldraði Arclier
og rétti þunglamalega úr sér í stólnum. —
Eg hefi reynt sitt af hverju, en þetta tekur
þó út yfir. Og þér kallið yður Englending?
—- Voruð þér ekki að segja að elcki
væri gerandi upp á milli þjóða?
— Eg sagði það. En ég sagði ekkert um
að sumar þjóðir væru ekki á liærra stigi
en aðrar. Við Englendingar gortum af oklc-
ur sjálfum. Enska stjórnin bölvar Ilitler
og sakar liann um að hafa byrjað strið
gegn konum og börnum. Helvískir liræsn-
ararnir! Er þetta nokkuð annað en stríð
gegn salclausum manni og umkomulausri
ungri stúlku?
— Leggið ekki sökina á stjórnina, sagði
Gregory. Enginn ráðherranna veit neitt
um þetta. Það er ég einn sem er sekur.
— Jæja, sagði Archer hugsandi, — það
sem þér minntust á varúðarráðstafanir
áðan var þá bara blekking?
— Að meira eða minna leyti. En það
skiptir engu máli lengur. Eg liefi plötuna
að þessari mynd á vísum stað, og ég heí'i
nægar sannanir fyrir tengslum ykkar Pearl
Wyburn til þess, að fólk mun álíta liana
frillu yðar. Annað hvort verðið þér að
lijálpa mér að útvega þær upplýsingar
sem ég verð að fá eða ég geri þetta mál
opinbert.
Archer slrauk andlitið. — Jæja, livað
viljið þér vita?
Eg verð að fá nöfn og heimilsfang þeirra,
sem þér hafið samband við í Þýskalandi.
Og sérsaklega hvernig þér farið að kom-
ast hjá ritskoðun og halda sambandinn
við þótt stríð sé. Þér verðið að gefa mér
allar upplýsingar sem þér getið um þýsku
andstöðuhreyfinguna. Og áður en ])ér bvrj-
ið ætla ég að gefa yður aðvörun. Það þýð-
ir ekki að segja mér neitt, sem ég get ekki
sjálfur gengið úr skugga um livort rétt er
eða ekki. Eg er of gamall í liettunni til að
hlusta á eitthvað bull, sem yður kynni að
detta í hug að segja, af þvi að þér eruð neydd
ur til að segja eitthvað. Eg vil sjá bréfa-
skiptin sem þér hafið haft, svo ég geti
sannfærst um hvort þér segið satt.
— Eg get sagt yður margt. En það tekur
tíma úr því að þér viljið ekki taka mig
trúanlegan. Eg geymi ekki hættulég bréfa-
skipti liér á heimilinu.
— Jæja, hvar geymið þér þau þá?
— Það vil ég ekki segja yður. Bréfin á-
samt öllum trúnaðarskjölum sem snerta
flokkinn eru geymd á vísum stað, og þér
getið ekki búist við að ég segi óviðkom-
andi mönnum hvar sá staður er. Þér vitið
vel að við erum engir hægfara jafnaðar-
menn, sem tökum á móti heimboðum í
Buckingliam Palace. Við viljum fremur
brenna þá höll. Við eru ekki einu sinni
hvitglóandi kommúnistar. Ef við ættum
heima i öðru landi mundura við vera kall-
aðir anarkistar. Það er rneira en nóg af
landráðum í þessum plöggum til þess að
heiðarlegir borgarar færu í liáttinn fyrir
fullt og allt, og til þess að gefa dómur-
um samfellda vinnu i sex mánuði, ef lög-
reglan næði í þau. Þér hljótið að vera
þrautheimskur maður ef þér haldið að ég
segi njósnara eins og yður hvar plöggin
eru geymd.
— Þá verðið þér að ná í bréfin, sem ég
vil sjá.
— Það er ekki hægt. Þau eru innan um
hundruð annarra leyniskjala og öll trún-
aðarmál. Ef þetta væru aðeins eitt eða tvö
bréf gæli ég kannske laumað þeim undan