Fálkinn - 20.05.1949, Síða 3
F Á L K í N N
3
Leikfélag Reyhjavikur:
»HAMLET«
Eftir William S/iakespeare — Leikstjóri: Edvin Tiemroth
Það þótti miklum tíðindum sæta,
þegar það spurðist, að Leikfélag
Reykjavíkur liefði í hyggju að taka
til meðferðar „mesta snilldarverk
allra leikbókmennta" (eins og Edvin
Tiemroth kailar það) — Hamlet
eftir William Shakespeare. Menn
biðu óþreyjufullir eftir því að fá
að kynnast þessu meistaraverki á
sviði, ekki livað síst, þegar það var
kunngjört, að Edvin Tiemroth, hinn
ungi og þekkti danski leikstjóri
ætti að setja leikinn á svið og ann-
ast leikstjórn. Nú er stundin komin.
Sýningar á Hamlet eru byrjaðar.
Þótt söguþráðurinn i Hamlet sé
mörgum kunnur, þá skal liér skýrt
frá efninu nokkuð: Hamlet Dana-
prins fær vitneskju um það hjá
varðmönnunum við Krónborgar-
kastala, að vofa, sem líkist hinum
nýlátna föður lians, hafi birst í
virkinu. Hamlet afræður að ganga
úr skugga um þetta í von um, að
liann geti aflað sér betri heimilda
um lát föður síns, sem hann telur
hjúpað leyndardómum. Hann nær
fundi af vofunni og fær þar stað-
festan liinn versta grun sinn: Að
Kládíus hróðir liins látna konungs
hafi hyrlað honum eitur, er hann
svaf, og síðan gengið að þvi að
eiga ekkjudrottninguna, móður Ham-
lets, og tekið sér konungdóm. Ilam-
let lofar hefndum fyrir ódæðið,
og þögn yfir vissu sinni. Hann vekur
og þagnareið af hermönnunum, sem
sáu vofuna. • —■ Vegna hinna miklu
frétta og stórræðanna, sem hans
bíða, verður Hamlet gripinn eins
konar hrjálæði, sem þó er að miklu
leyti uppgerð, svo að hann geti bet-
ur dulið áform sin. Hann skrifar
samhengislaus en eldheit ástarbréf
til 0])lielíu, dóttur Pólóniusar rik-
isráðs. Þá ber leikfokk að liailar-
garði, og að bón Hamlets sýnir
hann ákveðinn sjónleik fyrir kon-
ungshjónum. Leikurinn er um morð
á hertoga í Feneyjum. Sagan kem-
ur heim við atburðinn, sem útt hafði
sér stað í Danmörku. Hamlet fylgist
ekki með leikendunum, en þeim
mun betur með svipbrigðum frænda
Frú Guðriai Jóhannesdóttir, Vestur-
götu 77, Akranesi, vai-ð 60 ára 17.
þ. m.
síns, bróðurmorðingjans. Kládius
bliknar við, þegar liann er svo ræki-
lega minntur á sinn eiginn gllæp, og
fer brott úr salnum. Nú er Hamlet
viss um að saga vofunnar er sönn.
Hann bíður nú aðeins hefndar.
Móður Hamlets, Geirþrúði drottn-
ingu, verður einnig órótt vegna
sjónleiksins og kveður Hamlet á
sinn fund, þar sem hún gefur hon-
um áminningu. En Hamlet lætur
liart mæta liörðu og gengur frá móð-
ur sinni yfirbugaðri af blygðun og
sektartilfinningu. Að beiðni liins
látna konungs, sem birtist honum,
skilur Hamlet þó betur við móður
sína, en liann ætlaði. Pólóníus rík-
isráð, sem liggur á hleri, er veginn
i ógáti af Hamlet, sem tók liann
fyrir Kládíus konung. — Ákveðið
er að senda Hamlet í útlegð. Tveir
fyrrverandi skólafélagar lians eru
sendir með honum til Englands, þar
sem þeir eiga að sjá um, að hann
fái bana. Samsæri og tilviljun koma
þessum skólafélögum hans (Rósin-
krans og Gullinstjarna), fyrir kattar-
nef og Hamlet kemur aftur til Dan-
merkur. Átakanleg sjón heilsar hon-
um. Hann verður sjónarvottur að
útför ungrar stúlku. Kóngur og
drottning eru viðstödd. Það er
Ophelía, hin gamla ástmær Hamlets,
sem borin er til grafar. Hin ógæfu-
sama stúlka hafði orðið vitskert
vegna óiieilla Hamlets, dauða föður
síns og fjarveru bróður síns, Laer-
tes. Hún hafði gengið um höllina,
sungið og stráð blómum, en loks
drukknað i á. — Þegar Hamlet sér,
að það er Ophelía, sem borin er til
grafar, missir hann stjórn á sér af
sorg. Hann hleypur niður i gröf-
ina og lendir í ybbingum við Laer-
tes, sem er nýkominn lieim afiur.
Laertes vill ólmur drepa Ifamlet,
því að hann telur hanp hafa verið
óheillavald fjölskyldu sinnar. Þetta
hugarfar Laerles ætlar Kládíus kon-
ungur sér að nota vil þess að losna
við Hamlet. Hann leggur á rúðin um
skylmingar, þar sem Laertes og
Hamlet eiga að reyna með sér.
Sverðsoddur Laertes er eitraður, en
Hamlet grunar ekkert. Til þess að
vera öruggur, ef Hamlet skyldi ekki
skeinast af sverði Laertes, þá brugg-
aði Kládínus eiturblöndu til að gefa
Hamlet. Hamlet sóttist vel, og drottn
ingin grípur eiturglasið til þess að
drekka fyrir honum. Hamlet skeinist
siðan örlítið, en nær siðan sverði
Laertes og kemur sári á hann með
því. Drottningin og Laertes deyja
bæði, en áður hefir Laertés skýrt
Hamlet frá launbruggi konungs, og
Hamlet rekur Kládíus i gegn, áður
en hann hnigur sjálfur niður dauð-
ur af sárinu.
Sviðsetning Edvins Ticmroth er
mjög góð og sviðið vel nýtt. Bak-
liluti þess var aðskilinn með for-
tjaldi, og þar var búið sérstakt
svið, meðan atriði fóru fram ú
framsviðinu. Með þessu móti urðu
engin lilé milli atriða. Heildarálirif
Frh. á bls. 14.
Sýrumorðið — svonefnda hefir vakið feikna umtal í Englandi.
Það hefir orðið uppvíst um verksmiðjueigandann John Haigh
að hann hafi drepið fólk og eytt líkunum með ýmiss konar sýr-
um, svo að ekkert er eftir af þeim. Hér sést Haigli leiddur í
réttarlialdið, þar sem hann hélt því fram að ómögulegt væri
að sanna morð á hann, úr því að engin væru líkin til að sýna
í málinu.
í skjóli Gíbraltar-klettsins. — Einn liður í kennslu enskra flug-.
manna er sá, að þeir eru látnir fljúga til Gibraltar til að læra
að rata á þennan mikilsverða stað. Hér sést áhöfnin af Lan-
caster-flugu vera að athuga uppdrættina áður en haldið er af
stað til Englands aftur.