Fálkinn - 26.08.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
s
FLUGBÁTUR LENDIR.
1 fyrsta sinn í 21 ár hefir flugbátur
lent á Thames inni í London. Hann
heitir Short Solent og var skiröur
„City of London“ á 30 ára afmœli
enska flugsins, 10 mai. s.l.
NÝLIÐAR I KU-KLUX-KLAN.
Þessi óhugnanlega mynd er frá At-
landa í Georgia-fylki í Bandaríkjun-
um. Ungu mennirnir, sem hafa bund-
ið fyrir andlitiö til aö þekkjast ekki,
eru nýliöar, sem af eldri mönnum í
bófafylkingunni Ku - Klux - Klan eru
fluttir upp í fjöll, til þess aö gerast
meölimir i þessum leynifélagsskap en
inntakan fer fram meö alls konar fá-
ránlegum seremonium.
VILDU TALA VIÐ
BORGARST J ÓRANN.
Eins og kunnugt er snerist. verk-
fállsdeilan í Berlín, sem nú er útkljáö,
einkum um það hve mikiö Rússar létu
greiða járnbrautarstarfsmönnunum af
kaupi þeirra í vestur-mörkum. Fjöldi
járnbrautarmannanna á heima í Vest-
ur-Berlín og veröur að greiða allar
sinar nauðsynjar í vestur-mörkum, en
telur austur-mörkin ónýt sér. — Út af
verkfallinu var m. a. kröfuganga gerö
að ráðhúsi Berlínar, og þegar kröfu-
menn heyrðu, aö borgarstjórinn, dr.
Ernst Reuter, heföi ekki tima til aö
tala við þá, reyndu þeir að ryöjast inn
í ráöhúsið meö váldi. Hér sjást ráð-
húsþjónarnir og lögreglumenn vera að
reyna að verja hi'isið.