Fálkinn - 24.03.1950, Qupperneq 7
FÁLKINN
7
Þau sættust. — Umberto fyrrum
Italíukonungur og Marie José
kona hans hafa nú hist aftur
í fyrsta skipti eftir að þau skiídu
árið 19b6. Umberto hefir sem
sé heimsótt konu sína, sem býr
á Merlingen, skammt frá Gen-
eve, með börnin. En Umberto
á heima í Portúgal. — Hér sjást
hin endursameinuðu hjón á
gangi skammt fyrir utan
Geneve.
Konunglegt fólk á Möltu.
Elizabeth Englandsprinsessa
gerði sér nýlega ferð til Möltu,
til þess að heimsækja Filippus
bónda sinn, sem er foringi á
herskipi, er hefir bækistöð á
Möltu. — Hér sjást hjónin njóta
útsýnisins yfir höfnina í Valetta,
höfuðborg Möltu.
Heimsókn í Indlandi. — Soldáninn í Muscat, sem er ríki í Aust-
ur-Arabíu við innsiglinguna í Persaflóa, fór í heimsókn til Ind-
lands í byrjun desember og átti tal við breska stjórnarfulltrú-
ann þar. — Á myndinni sést soldáninn (í miðju) ásamt sir
Archibald Nye, aðalfulltrúa Bretlands í lndlandi (t v.) og
forsætisráðherra Indlands, Sliree C. Rajgopalachari.
FRÉTTAMYNDIR
Bevin til Ceylon. — Bevin utan-
ríkisráðherra fékk hjartabilun á
aðfangadagskvöld en jafnaði sig
furðu fljótt og hélt af stað til
Ceylon um nýárið, en þar átti
hann að sitja ráðstefnu bresku
samveldislandanna, sem hófst
9. apríl. — Hér er Bevin bros-
andi út undir eyru (hann á svo
hægt með að brosa út undir eyru
því að hann er svo munnstór).
Afreksverki lokið. — Flugmennirnir úr „loftbrúnni til Berlín“
hafa nú lokið störfum, og fyrir nokkru tóku enslcu konungs-
hjónin á móti þeim við hátíðlega athöfn. Og Lbndon vildi líka
fagna mönnunum, sem unnu „kalda stríðið“ um Berlín, svo
að borgarstjórinn bauð þeim til hádegisverðar í Guild Hall. —
Á myndinni, sem er frá kynningunni fyrir hádegisverðinn, sést
omeríski generalmajórinn W. H. Turner (t. h.) heilsa sir
Frederich Rowlands borgarstjóra — eða Lord Mayor.
Nýr erkibiskup. — Hinn nýi
erkibiskup í París, æðsti Icirkju-
höfðingi Frakklands, Feltin
kardínáli, hefir fyrir skemmstu
verið settur inn í embættið. Hér
sést erkibiskupinn við þá athöfn.
Fáni Georgs V.— Á skipasmíða-
stöð enska flotans í Chatham var
hátíðleg athöfn nýlega, er einka-
fána Georgs konungs fimmta
var „lagt upp“. Venjulega fer
þessi athöfn fram undir eins og
konungur deyr, en í þetta skipti
hafði verið gerð undantekning
og orrustuskipið, sem bar nafn
konungsins látið nota fánann
áfram. En nú er herskipið „HMS — Hér sést hinn kunni franski
Georg V“ komið í varaflotann, stjórnmálamaður, Jules Moch,
og getur því ekki notað kon- vera að tala við blaðamenn fyr-
ungsfáuiann lengur. — ir utan Elysee-höllina.